Lögmannablaðið - 01.06.2005, Blaðsíða 20
20 2 / 2 0 0 5
Föstudaginn 20. maí 2005 fór fram í elleftaskipti meistaramót lögmanna í knattspyrnu
innanhúss. Mótið var haldið venju samkvæmt í
húsakynnum Frammara við Safamýri.
7 lið mættu til leiks og léku allir við alla. Mótið
bauð upp á góð og skemmtileg tilþrif.
Lið Reynslu og Léttleika sigraði örugglega og
voru þeir vel að sigrinum komnir.
Lokastaða mótsins varð þessi:
Reynsla og Léttleiki 5 1 0 18:7 16 stig
Mörkin+ 3 1 2 15:13 10 stig
AM Utd. 2 3 1 14:11 9 stig
Grínarafélagið
án Steinars 2 2 2 7:8 8 stig
Lex-Nestor 1 3 2 7:14 6 stig
KF Þruman 1 2 3 7:10 5 stig
Logos 0 2 4 5:10 2 stig
Mótið var jafnt og spennandi ef lið Reynslu og
Léttleika er ekki talið með! Lið Lex-Nestor kom
nýtt inn í mótið og eiga þeir ungu drengir örugg-
lega eftir að setja mark sitt á knattspyrnumót
framtíðarinnar. Faglegur framkvæmdastjóri knatt-
spyrnudeildar Lex-Nestor, Helgi Jóhannesson
hrl., var vant við látinn og komst ekki til að
stjórna sínum mönnum af hliðarlínunni, og setti
það örugglega mark sitt á liðið sem að öðrum
kosti hefði náð mun betri árangri.
Jóhannes
B. Björnsson
tekur við bikarnum
úr hendi Smára Hilmarssonar.
Lið Þrumunnar var óheppið í sínum leikjum ogvantaði herslumuninn að ná verðlaunasæti.
Gunnar Jónsson stýrði liði Markarinnar af rögg-
semi, og tók dómgæslu í sínar hendur þegar
honum þótti þörf á. Neitaði hann m.a. að víkja af
velli í einum leiknum eftir að hafa varið bolta með
hendi innan vítateigs og eftir skeleggan og ákafan
málflutning Gunnars um túlkun á mótsreglum
féllust dómarar mótsins á rök Gunnars og gáfu
sjálfum sér gula spjaldið fyrir það að hafa ætlað
að reka Gunnar útaf.
Eyrún Ingadóttir var konunglegur hirðljós-
myndari. Ber hún ábyrgð á þeim myndum sem
með greininni birtast og á að þeim höfundarrétt.
Meistaramót LMFÍ innanhúss 2005i t t Í i
Eins og sjá má voru tilþrifin á
vellinum fagmannleg enda eiga lög-
menn gott með að vera í vörn og
sókn, takast á maður á mann, tækla,
klobba, vippa og negla.