Lögmannablaðið - 01.06.2005, Qupperneq 25

Lögmannablaðið - 01.06.2005, Qupperneq 25
25 fræðingaþing með því sniði sem kynnt hefur verið að ofan. Þar leggst á eitt hversu mörg og ólík efnin eru sem fjallað er um, hversu margir koma að þessari umfjöllun, hinn mikli fjöldi almennra þátt- takenda og hin umfangsmikla dagskrá sem venja hefur skapast um í tengslum við þingin. Undirbún- ingur þingsins hefur staðið yfir undanfarin ár, og hafa þar verið í fararbroddi Guðrún Erlendsdóttir, formaður Íslandsdeildar norrænu lögfræðingaþing- anna, og Erla Jónsdóttir, ritari deildarinnar, ásamt undirrituðum, sem útnefndur hefur verið aðalritari þingsins. Auk þess hafa margir aðrir lagt hönd á plóginn. Mikið verk er þó eftir óunnið. Einkum er þar um að ræða annars vegar fjáröflun til að standa straum af þeim kostnaði sem gestgjafi þingsins verður að bera, og hins vegar að skipuleggja heim- boð fyrir erlenda þátttakendur á þinginu til íslenskra starfsbræðra sinna og systra föstudags- kvöldið 19. ágúst, en hefð er fyrir slíkum heim- boðum á þingunum. Vonar Íslandsdeild norrænu lögfræðingaþinganna að íslenskir lögfræðingar leggist á eitt í þessum efnum, og býður þá um leið hjartanlega velkomna á 37. norræna lögfræðinga- þingið í Reykjavík 2005. L Ö G M A N N A B L A Ð I Ð AÐALFUNDUR LÖGMANNAFÉLAGS ÍSLANDS 2005 Aðalfundur Lögmannafélags Íslands 2005 varhaldinn föstudaginn 11. mars s.l. Á dagskrá fundarins voru venjuleg aðalfundarstörf sam- kvæmt samþykktum félagsins. Fundarstjóri var Þórður Bogason, hdl., og fundarritari Margrét Einarsdóttir, hdl. Endurskoðaður reikningur fyrir liðið reikningsár. Ingimar Ingason, framkvæmdastjóri félagsins, gerði grein fyrir ársreikningi þess fyrir árið 2004. Fjallaði framkvæmdastjórinn sameiginlega um niðurstöðu reikninga hins lögbundna hluta félags- ins og félagsdeildar þess. Einnig um ársreikning Námssjóðs LMFÍ. Í máli framkvæmdastjóra kom fram að þrátt fyrir nokkurt tap á rekstri lögbundna hlutans, sem rekja mætti til greiðslu á 3,5 milljón króna stjórnvaldssektar vegna samkeppnismáls- ins, hafi um kr. 600.000 hagnaður orðið af rekstri félagsins í heild, vegna góðrar afkomu félags- deildar. Eftir yfirferð reikninga var orðið gefið laust og svaraði framkvæmdastjóri fyrirspurnum frá fundarmönnum. Að því loknu bar fundarstjóri ársreikning ársins 2004 undir fundinn og var hann samþykktur samhljóða. Skýrsla félagsstjórnar o.fl. Gunnar Jónsson hrl., formaður félagsins, tók til máls og fór yfir helstu atriði í skýrslu stjórnar og vísaði m.a. í prentaða ársskýrslu sem send var félagsmönnum fyrir fundinn. Formaður gat þess sérstaklega að tekin hefði verið ákvörðun um að framkvæmdastjóri félagsins færi framvegis með formanni þess á fulltrúafundi CCBE, sem haldnir eru tvisvar á ári. Taldi formaðurinn þetta nauðsyn- legt í ljósi vaxandi mikilsvægis CCBE ráðsins fyrir íslenska lögmenn. Formaðurinn fjallaði einnig sérstaklega um niðurstöðu 9 manna nefndar sem stjórn LMFÍ skipaði í samræmi við ályktun félagsfundar. Lægju tillögur 9 manna nefndarinnar fyrir fundinum og hvatti formaður fundarmenn til að kynna sér þær vel. Loks þakk- aði formaðurinn öllum sem hafa starfað með honum í stjórn og nefndum undangengin ár sem og félagsmönnum öllum fyrir ánægjulegt sam- starf. Að lokinni yfirferð formanns um skýrslu stjórnar var orðið gefið laust og tók Sif Konráðs- dóttir hrl., til máls og óskaði eftir nánari út- skýringum á þeirri hugmynd sem kæmi í greinar- gerð 9 manna nefndarinnar, að setja á kvóta innan félagsins. Formaðurinn svaraði því til að sjálfstætt starfandi lögmenn hefðu haft af því áhyggjur að aðrir en sjálfstætt starfandi lögmenn væru orðnir meira en helmingur félagsmanna. Í upphafi vinnu nefndarinnar hafi komið fram að hugsanlega þyrfti að deildarskipta félaginu, en niðurstaðan F.v. Gísli Tryggvason hdl., Þórunn Guðmundsdóttir hrl. og Guðmundur Ingvi Sigurðsson hrl.

x

Lögmannablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.