Lögmannablaðið - 01.10.2009, Blaðsíða 11
LÖGMANNABLAÐIÐ – 3 / 2009 > 11
ráðuneytið gripi til mættu ekki vera til
þess fallnar að brjóta gegn þessum
grundvallar reglum.
Í ljósi þess að ábendingar félagsins
hafa verið virtar að vettugi, óskaði
stjórn félagsins eftir því við ráðuneytið
að það upplýsti hversu mikla skerðingu
aðrir fagaðilar sem koma að meðferð
opin berra mála, bæði á rannsóknarstigi
og fyrir dómi, hafa þurft að sæta á
tímabilinu 2007 til 2009. Tekur beiðni
félagsins m.a til upplýsinga um dómara
og annað starfslið dómstóla, sak-
sóknara, sýslumannsembætta, lögreglu,
skjala þýðenda, dómtúlka, sálfræðinga,
geð lækna, rannsóknarstofa og annarra
sem þjónustu veita við rannsókn
opinberra mála.
Nauðsyn eflingar íslenskra
dómstóla
Nýlega ritaði stjórn Lögmannafélags
Íslands bréf til dómsmálaráðherra þar
sem félagið deilir áhyggjum með
dómstólaráði vegna stöðu íslenskra
dómstóla við úrlausn mála tengdum
hruni íslensku bankanna, sem búast
megi við að verði fyrirferðarmikil í
dómskerfinu næstu misseri og ár.
Í bréfinu vekur stjórn félagsins
sérstaka athygli á að undanfarna
mánuði hafi mörg af stærstu fyrir-
tækjum landsins ýmist verið úrskurðuð
gjald þrota, þau sett í nauða samn-
ingsferli eða sætt sérstakri meðferð
samkvæmt neyðar lögum sem sett voru
í kjölfar hrunsins. Í ljósi flókinna
viðskipta samninga þessara fyrirtækja,
fjölda innlendra sem erlendra kröfuhafa
og þeirra gríðar miklu fjár hagslegu
hags muna sem í húfi eru, sé viðbúið að
flókin ágreiningsmál - mörg hver af
fáheyrðri stærðargráðu – kunni að
koma til kasta dómstóla hér á landi.
Jafnframt sé hugsanlegt að dómstólar
fái á sama tíma til úrlausnar flókin
efnahags brotamál, m.a frá sérstökum
saksóknara, þar sem líklegt er að reyna
muni á ýmsar sérreglur.
Þá er bent á að stjórnvöld hafi þegar
lagt verulega aukið fé til rannsókna
sakamála í kjölfar efnahagshrunsins.
Stjórn Lögmannafélagins telji hins
vegar einboðið að tryggja þurfi öðrum
þáttum réttarvörslukerfisins full-
nægjandi grund völl til að leiða málin
til lykta.
Í ljósi þessa gríðarlega álags sem
fyrirsjáanlega verður á dómstólunum,
og reyndar á réttarvörslukerfinu í heild,
sé mikilvægt að íslensk stjórnvöld
tryggi að dómstólar, hvort heldur sem
er héraðsdómstólar eða Hæstiréttur, fái
þann fjárhagslega og faglega stuðning
sem nauðsynlegur er til að takast á við
þau verkefni sem framundan eru. Slíkt
er ekki eingöngu nauðsynlegt til að
leysa úr ágreiningsmálum á ásættan-
legum tíma heldur einnig til þess fallið
að tryggja réttláta málsmeðferð
gagnvart þeim sem hagsmuna eiga að
gæta og þá sérstaklega mannréttindi
sakborninga í refsimálum sem kunna
að koma til kasta dómstóla. Í bréfinu
hvetur stjórn félags ins dómsmála-
ráðherra til að grípa þegar í stað til
aðgerða sem tryggja að dóm stólar
landsins geti staðið undir þeim kröfum
og því mikla álagi sem fyrir sjáanlegt er
á næstunni.
Starfsábyrgðartryggingar
lögmanna
Í grein sem undirritaður ritaði um
starfsábyrgðartrygginu lögmanna í 4.
tbl. Lögmannablaðsins 2008, var m.a
vakin athygli á mikilvægi þess að
lögmenn geri sér grein fyrir þeirri
fjárhagslegu áhættu sem kann að fylgja
hagsmunagæslu í stórum málum og
mikilvægi þess að þeir uppfæri
tryggingavernd sína og starfs manna
sinna til samræmis við það. Í því
samhengi var bent á að velflest íslensk
tryggingafélög bjóða viðskipta vinum
sínum að meta áhættur í rekstri og
voru lögmenn hvattir til að nýta sér
slíka þjónustu og uppfæra trygginga-
vernd sína til samræmis við niðurstöðu
slíks áhættumats. Einnig var í greininni
fjallað um ákvæði 4. mgr. 25. gr.
lögmannalaga, þar sem lögmönnum er
veitt heimild til að takmarka, með
samningi um ákveðið verk, hámark
bótaskyldu sinnar við tiltekna fjárhæð,
sem þó verður að nema að minnsta
kosti lágmarki ábyrgðar tryggingar. Rétt
er þó að taka fram að slík takmörkun
bindur aðeins við semjanda lögmanns
og getur ekki náð til annars tjóns en
þess sem stafar af einföldu gáleysi.
Eins og vísað er til hér annars staðar
í blaðinu, þá hafa mörg af stærstu
fyrirtækjum landsins fyrir hrun bank-
anna ýmist verið úrskurðuð gjaldþrota
á undanförnum mánuðum, þau verið
sett í nauðasamningsferli eða sæta
sérstakri meðferð samkvæmt neyðar-
lögum, sem sett voru í kjölfar hrunsins.
Vegna meðhöndlunar lögmanna á
flóknum viðskipta samningum þessara
fyrirækja, fjölda kröfuhafa, innlendra
sem erlendra, og þeirra gríðarmiklu
fjár hagslegu hags muna sem í húfi eru,
þykir rétt að árétta ábendingu félagsins
til lögmanna um að þeir hugi að
uppfærslu trygg ingaverndar sinnar og
skoði vel þá möguleika sem felast í
heimild lögmannalaganna til að
takamarka ábyrgð.
Greiðsla árgjalda
greiðsluseðlar vegna árgjalds til Lögmannafélags Íslands og félagsdeild
LmFÍ fyrir yfirstandandi ár, voru sendir félagsmönnum í maí s.l., með
gjalddaga 1. júní og eindaga 8. júní. Þeir lögmenn, sem enn hafa ekki
gengið frá greiðslu árgjaldsins eru hvattir til að greiða hið fyrsta. Einnig
eru þeir félagsmenn sem skulda eldri árgjöld hvattir til að ganga frá
greiðslu án tafar en allar ógreiddar gjaldfallnar árgjaldsskuldir verða
sendar í lögfræðiinnheimtu innan tíðar.