Lögmannablaðið - 01.10.2009, Blaðsíða 16
16 < LÖGMANNABLAÐIÐ 3 / 2009 LÖGMANNABLAÐIÐ – 4 / 2008 > 16
Lengi vel voru fáar konur félagsmenn í Lögmannafélagi Íslands en fyrsti kvenfélaginn var Rannveig Þorsteinsdóttir hrl. sem
varð lögmaður árið 1952. Hún var kjörin heiðursfélagi árið 1979.
Fyrsta konan sem kosin var í stjórn LMFÍ er Svala Thorlacius hrl. en hún sat í stjórn árin 1980-1982. Þórunn Guðmundsdóttir
hrl. er eina konan sem gegnt hefur formennsku í stjórn Lögmannafélagsins síðan félagið var stofnað árið 1911 en hún var
formaður árin 1995-1997.
Mynd þessi er tekin af stjórn Lögmannafélags Íslands ásamt framkvæmdastjóra árið 1996-1997 en þá sátu í fyrsta skipti tvær
konur í stjórn. F.v. Marteinn Másson hrl., framkvæmdastjóri 1990-1999, Kristín Briem hrl., Hreinn Loftsson hrl., Þórunn
Guðmundsdóttir hrl. og formaður, Sigurmar K. Albertsson hrl. og Jakob Möller hrl.
Úr myndasafni
Söguleg stund: Tvær konur í stjórn LMFÍ