Lögmannablaðið - 01.10.2009, Side 21
LÖGMANNABLAÐIÐ – 3 / 2009 > 21
Það var ánægjulegt að sjá að í kjölfar
ályktunar stjórnar Lögmannafélags
Íslands fimmtudaginn 10. september
sl., þar sem stjórnin tók undir áhyggjur
dómstólaráðs vegna stöðu dóm-
stólanna, kom frétt í Morgunblaðinu
sem staðfestir að Ragna Árnadóttir
dómsmálaráðherra hefur fullan skilning
á vandamálinu og hyggst bregðast við
því.
Vissulega er það svo að mjög kreppir að
þjóðinni og erfiður niðurskurður blasir
við hvert sem litið er. Líkast til verður,
ef til kemur, niðurskurður til heil-
brigðis-, félags- og velferðarmála
sársaukafyllstur því hann hittir fyrir þá
sem síst skyldi og erfiðast eiga með að
bera hönd fyrir höfuð sér. Hér þarf að
forgangsraða og á hefðbundnum
efnahagssamdráttarskeiðum, ef hægt er
að orða það þannig, rata dómstólar ekki
í efstu sæti listans.
Eftir efnahagshrunið sl. haust hefur
mikil tortryggni grafið um sig í
þjóðfélaginu og ákall um réttlæti er
mun háværara heldur en hefur verið
síðustu árin. Því er mikilvægt að
dómstólar verði ekki látnir mæta
afgangi heldur þvert á móti efldir a.m.k.
tímabundið eins og dómsmálaráðherra
gefur fyrirheit um.
Álag á dómstólana hefur nú þegar
aukist umtalsvert en líkur eru á að við
séum samt stödd í logninu á undan
storminum. Málin hrannast upp allt í
kring; mál tengd kröfuskrám fyrir
gömlu bankana, riftunarmál, endur-
kröfumál, mál vegna rannsóknarvinnu
sérstaks saksóknara og annarra eftir-
litsaðila. Einnig verður látið reyna með
margvíslegum hætti á neyðarlögin sem
sett voru í byrjun október sl. og þá
löggjöf sem fylgdi í kjölfarið. Það hlýtur
að vera okkur kappsmál að leyst verði
úr málum með vönduðum hætti og eins
hratt og kostur er í því andrúmslofti
sem ríkir í samfélaginu. Ég held að ekki
verði hjá því komist að fjölga dómurum
og reyna að byggja upp aukna sér-
þekkingu á efnahagsbrotum innan
dómstólanna ekki síður en hjá rann-
sóknaraðilum.
Það er því afar brýnt fyrir yfirvöld
dómsmála að ráðast strax af fullum
þunga í nauðsynlega undirbúningsvinnu
og skoðun á því hvernig þessu ástandi
verður best mætt.
Staða dómstólanna
Lárentsínus Kristjánsson hrl.
Formannspistill
Stórt verk lítið mál
Litlaprent ehf. | Skemmuvegi 4 | 200 Kópavogi
Sími 540 1800 | Fax 540 1801 | litla@prent.is
prent.is