Lögmannablaðið - 01.10.2009, Blaðsíða 23
LÖGMANNABLAÐIÐ – 3 / 2009 > 23
Af Merði lögmanni
Nú er illt í efni. Eins og upplýst hefur verið skildi Mörður ekkert í því að hans
góða mannorð, Flokkurinn eða tengsl hans við lykilmenn við Lækjatorg tryggðu
honum ekki tímaskriftir með ríkisábyrgð í kjölfar bankahruns á haustmánuðum.
Olli þetta pirringi hjá Merði enda taldi hann einboðið að titill sem
slitskilanefndaumsjónarmaður myndi ekki eingöngu bæta hjá honum bókhaldið heldur
einnig koma möguleikum hans á samneyti við hitt kynið í nýjar hæðir. Ekki veitti
af.
Til að gæta sanngirni er þó rétt að geta þess að stuttu fyrir hrunið var haft
samband við Mörð. Var þar á ferð Flokksfélagi sem Mörður minntist þess ekki að
hafa átt samskipti við nema stuttlega fyrir nokkrum árum í móttöku í tilefni
skipunar annars flokkshests í eitthvað rosa risaembættið eftir gagnsætt ferli.
Flokksfélaginn hringdi í Mörð og talaði við hann eins og þeir væru aldarvinir og
mærði á alla kanta áður en hann bar upp erindið: Til stóð að skipa Mörð sem
stjórnarformann í nýstofnuðu einkahlutafélagi hefði hann áhuga. Útskýringar um
tilgang félagsins skildi Mörður ekki. Enda kannski aukaatriði. Eitthvað tengdist
það þó kaupum erlends úlfaldasala á hlutum í íslenskum banka. Sá hafði víst
skyndilega fengið áhuga á íslenskum bönkum. Enginn átti þó að borga neinum neitt
nema í gegnum einhverja loftfimleika sem meira að segja Mörður áttaði sig á að
væru nýju fötin keisarans.
Aðalatriðið í huga Marðar var þó að um var að ræða lítið vinnuframlag fyrir
fínan pening og samkvæmt manninum í símanum hafði sérstaklega verið óskað eftir
Merði til starfans enda Mörður þekktur af vandvirkum vinnubrögðum og heilindum.
Mörður hafði alltaf verið ban bóngóður maður og greiðvikinn. Það var honum kennt
af móður sinni. Þótti honum ekki við hæfi að neita þessari bón enda bað maðurinn
svo fallega.
Því fór svo að Mörður tók sæti sem stjórnarformaður í félaginu og fékk greitt
fyrir. Hélt að svo búnu áfram með sinn rekstur og leiddi ekki hugann að málinu
aftur fyrr en að einn daginn birtist í dyrunum hjá honum maður sem Mörð minnti
að hafi eitt sinn verið sýslumaður á Akranesi. Sýslumaðurinn fyrrverandi veifaði
leitarheimild sem virtist Merði lögmæt. Merði var umsvifalaust tilkynnt að hann
hefði réttarstöðu grunaðs manns og fluttur til yfirheyrslu. Þetta þótti Merði
fullkomlega óskiljanlegt og sagði bara eins og var, hann hafi ekki kunnað við að
neita beiðninni, enda bóngóður.
Mörður bíður nú úrlausnar málsins og reynir í millitíðini að nýta sér titilinn
„réttarstöðu grunaðs manns“.Það gengur ekki vel en þó er fátt svo með öllu illt.
Mörður á von á því að fá senda mynd af sér sem tekin var við yfirheyrslur,
sambærilega við þær sem teknar eru af föngum í amerískum bíómyndum. Hyggst
Mörður hafa hana í brjóstvasanum næst þegar hann fer á öldurhús borgarinnar. Það
ætti að kveikja í elskunum.
xxxx
xxx
*Til fjölda ára hefur Mörður lögmaður sent vélritaða pistla sína í
Lögmannablaðið í brúnu umslagi á skrifstofu félagsins. Framvegis verða
pistlarnir skannaðir inn og birtir eins og þeir koma frá lögmanninum.