Lögmannablaðið - 01.10.2009, Side 24
24 < LÖGMANNABLAÐIÐ 3 / 2009
Minningarmót
Minningarmót LMFÍ 2009 um
Guðmund Markússon, hrl., og Ólaf
Axelsson, hrl., fór fram hinn 19. júní sl.
á Hólmsvelli í Leiru. Aðstæður til
golfiðkunar voru töluvert erfiðar
þennan dag, enda hvasst og frekar kalt
í veðri. Alls tóku 15 golfarar úr
lögfræðingastétt þátt í mótinu.
Úrslit urðu þessi:
A. Í keppni um Guðmundarbikarinn (án
forgjafar):
1. Hjalti Pálmason, 28 punktar.
2. Rúnar Guðmundsson, 23 punktar.
3. Karl Ó. Karlsson, 21 punktur.
B. Í keppni um Óla Axels bikarinn (með
forgjöf):
1. Stefán Pálsson, 34 punktar.
2. Ólafur Gústafsson, 32 punktar – 18
punktar á síðari níu holum.
3. Gestur Jónsson, 32 punktar – 16
punktar á síðari níu holum.
Þar sem Ólafur og Gestur voru með
jafn marga punkta eftir 18 holur réði
punktafjöldi á síðari níu holum
úrslitum.
Fjórleikur við lækna
Líkt og undanfarin ár fór keppnin við
læknana fram á Strandarvelli við
Hellu þann 28. júní. Læknar sigruðu
með 5,5 vinningum gegn 4,5 og hafa
nú sigrað lögfræðinga fjögur ár í röð.
Við þessu verður augljóslega að
bregðast á næsta ári, eins og lofað
hefur verið undanfarin ár.
Á léttum nótum
Gott golfsumar að baki
F.v.: jóhannes Eiríksson, Stefán orri ólafsson, Haukur Örn birgisson og Ásgeir Ragnarsson voru verðlaunahafar á meistaramóti
LmFÍ í ágúst sl.
Stund milli stríða í viðureign lögmanna og lækna þar sem læknar sigruðu okkar menn
fjórða árið í röð. Læknar hafa reynst lögmönnum erfiðir viðureignar en áætlanir eru
um að spýta í lófa, bretta upp ermar og gera betur að ári.