Lögmannablaðið - 01.10.2009, Síða 25
LÖGMANNABLAÐIÐ – 3 / 2009 > 25
Fjórleikur við tannlækna
Lögmenn öttu kappi við tannlækna
þann 14. júlí sl. og var dagskipun
fyrirliða að endurheimta Dentalex-
bikarinn sem hafði tapast í fyrra eftir sjö
ára samfellda sigurgöngu lögmanna. Á
fögrum grundum Húsatóftavallar í
Grindavík unnu lögmenn nokkuð
öruggan sigur og er bikarinn góði því
kominn heim aftur.
Fjórleikur við
endurskoðendur
Leikur við endurskoðendur fór fram
miðvikudaginn 12. ágúst á Garðavelli,
Akranesi. Veður var gott og endur-
skoðendur mættu að vanda frískir til
leiks. Leikar fóru þannig að liðin
lönduðu jafn mörgum stigum í hús, 4-4.
Það nægði okkur lögmönnum til að
halda bikarnum góða.
Meistaramót LMFÍ
Meistaramót lögmanna var haldið á
Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði 20. ágúst sl.
en ákveðið var að hafa mótið fyrr á
ferðinni til að útiloka slæmt veður. Það
gekk ekki eftir því 23 keppendur áttu í
mikilli baráttu við vindinn þennan dag
sem setti stórt strik í reikninginn. Engu
að síður komust allir keppendur lífs af
þótt sjálfstraustið hafi verið örlítið marið
að leik loknum.
Haukur Örn Birgisson ber heiðurs-
titilinn félagsmeistari Lög manna félags
Íslands næsta árið.
Á léttum nótum
Fv.: jón Steinar gunnlaugsson, Sveinn Snorrason, Eyjólfur Kristjásson og guðni Á.
Haraldsson.
Samruni, yfirtaka og aðrar umbreytingar á rekstrarformi út frá skattareglum 17. nóv.
Á námskeiðinu verður fjallað um þær reglur skattaréttar sem gilda við samruna og skiptingu félaga, slit félaga,
umbreytingu á rekstrarformi, s.s. við yfirfærslu einstaklingsrekstrar í félagsform, yfirtöku rekstrar við kaup og
önnur aðilaskipti að rekstri. Farið verður yfir helstu dóma, úrskurði yfirskattanefndar og ákvarðanir skattyfirvalda
um efnið.
Kennari garðar g. gíslason hdl. hjá LEX.
Staður Kennslustofa LmFÍ, Álftamýri 9, 108 Reykjavík.
Tími Þriðjudagur 17. nóvember 2009, 16:00-19:00.
Verð Kr. 20.000,- en fyrir félaga í félagsdeild kr. 15.000,-
Námskeið haustannar
Úrslit mótsins urðu þessi:
Án forgjafar
1. Haukur Örn Birgisson 79 högg
2. Stefán Orri Ólafsson 80 högg
3. Jóhannes Eiríksson 84 högg
Með forgjöf
1. Haukur Örn Birgisson 77 högg
2. Stefán Orri Ólafsson 80 högg
3. Ásgeir Ragnarsson 81 högg
Næstur holu 10. braut: Haukur Örn
Birgisson 96 cm
Lengsta teighögg á 13. braut: Enginn
hitti brautina í rokinu að þessu
sinni.
Nefndin þakkar öllum þeim sem tóku
þátt í mótum sumarsins og vonast til að
sjá enn fleiri næsta sumar.
Með kveðju frá sjálfskipaðri golfnefnd
LMFÍ