Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2012, Side 16
19 sparnaðarráð
16 Neytendur 17. október 2012 Miðvikudagur
Algengt verð 587,8 kr. 262,6 kr.
Algengt verð 257,6 kr. 262,3 kr.
Höfuðborgarsvæðið 257,4 kr. 262,2 kr.
Algengt verð 257,7 kr. 262,6 kr.
Algengt verð 259,9 kr. 262,6 kr.
Melabraut 257,6 kr. 262,4 kr.
Eldsneytisverð 16. október
Bensín Dísilolía
Óvænt
þjónusta
n Lofið fær Hárstofa Sigríðar. „Ég
var að koma úr axlaraðgerð og
á erfitt með að þvo hárið á mér
þannig að hárgreiðslukonan hér
á Reyðarfirði bauð mér að koma í
hárþvott. Dóttir mín er að læra hár-
greiðslu og við mættum mæðgurn-
ar til Sigríðar síðasta föstudags-
morgun án þess að gera boð á
undan okkur og alls ekkert vissar
um að ég kæmist að. Þegar við
mætum bauð Sigríður dótturinni
að þvo móður sinni og æfa sig sem
við þáðum báðar. Þar að auki bauð
hún okkur að setja lit í mig og að
lokum þá snyrti hún Sigríður að-
eins á mér toppinn og ég fór út
svona líka fín fyrir helgina og þetta
mátti ég alls ekki greiða neitt fyrir,
bara bæta smá við næst
þegar ég kæmi – efnis-
gjald. Þarna fengum
við mæðgur báðar mjög
svo óvænta þjón-
ustu, dóttirin
fékk að æfa sig
með leiðsögn og
ég fékk lit, þvott
og snyrtingu á
toppnum.“
Gat ekki not-
að gjafabréf
n Lastið fær Flugfélag Íslands en
DV fékk eftirfarandi sent: „Ég fékk
að gjöf gjafabréf á inneign í flug
að verðmæti 20.000 krónur. Fyrri
skömmu ætlaði ég svo að panta
mér flug til Reykjavíkur yfir jólin en
komst þá að því að það er ekki hægt
að nota svona gjafabréf á netinu
heldur verður maður að hringja í
þjónustuverið. Þetta varð til þess að
ég gat ekki nýtt mér nettilboð held-
ur varð ég að nýta mér bónussæti.
Þetta gerði það að verkum að í stað
þess að greiða 13.630 krónur fyrir
nettilboð, borgaði ég 20.000 króna
gjafabréfið auk tæplega 4.000 króna
fyrir nákvæmlega það sama.“
DV hafði sambandi við Inga Þór
Guðmundsson, forstöðumann
sölu- og markaðssviðs. „Það hefur
ekki verið hægt hingað til að bóka
gjafabréf á heimasíðu Flugfélags Ís-
lands. Hins vegar er verið að vinna
í því að gera það tæknilega mögu-
legt. Flugfélag Íslands
er að taka í notkun
nýja bókunarvél í
nóvember. Í fram-
haldinu verður
farið í þróun á nýju
bókunarvélinni
sem mun gera við-
skiptavinum Flugfélags Ís-
lands kleift að bóka gjafa-
bréf þar,“ sagði Ingi Þór.
Lof og last
Sendið lof eða last á neytendur@dv.is
B
úðu til gjafir, slökktu á sjón-
varpinu og lærðu 10 sek-
úndna regluna. Þetta eru
nokkur af fjölmörgum góð-
um ráðum sem hægt er
að nýta sér þegar kemur að því að
spara. Á vefsíðunni The Simple
Dollar telur Trent Hamm upp 100
einföld ráð til að draga úr pen-
ingaeyðslunni. Eftir að hafa lent í
miklum fjárhagserfiðleikum fyrir
nokkrum árum fór hann að taka
saman alla þá litlu hluti sem skipta
máli og hvernig króna hér og króna
þar safnast að lokum saman. Hér
eru nokkur af ráðum Hamm sem
hægt er að tileinka sér og spara.
slökktu á
sjónvarpinu
Ein leið til að spara
er að horfa minna
á sjónvarp. Þú getur
sagt upp sjónvarps-
áskriftum, þú sérð minna af freist-
andi auglýsingum, hefur meiri tíma
til að einblína á þá hluti sem skipta
máli og sparar rafmagn. Það er mikil-
vægt að ná að slaka á á kvöldin og ná
sér niður eftir erfiðan dag en finndu
þér aðra leið til þess en að hanga fyrir
framan sjónvarpið.
Búðu til gjafir
Það er hægt að búa til matarkörfur,
kerti, brauð, kökur og sápu auk ým-
issa annarra heimilishluta á ein-
faldan og ódýran hátt. Á netinu eru
fjölmargar síður sem kenna þér að
búa til heimagerðar gjafir. Þar sem
margar slíkar gjafir eru ætlaðar til
neyslu þá kemur þetta í veg fyrir
að skápar og geymslur hjá þeim
sem gjöfina fær fyllist. Handskrif-
aðu svo kveðju með og gjöfin verð-
ur persónulegri en nokkuð sem þú
hefðir getað keypt úti í búð, auk þess
sem þú sparar þér pening.
náðu góðum tökum á 30 daga
reglunni
Í hvert sinn sem þú íhugar að kaupa
hlut sem er óþarfur, bíddu þá í 30
daga og spurðu svo hvort þú virki-
lega viljir eða þurfir á hlutnum að
halda. Oft sérðu að þörfin til að
kaupa hann er liðin hjá og þú hef-
ur sparað þér peninga með biðinni.
Það er einnig gott ráð að vera með
30 daga lista þar sem þú skrifar þá
hluti sem þig langar í en ert ekki viss
um að þig vanti. Skrifaðu einnig dag-
setninguna sem þú ætlar að kaupa
hlutinn. Það er þó kostur að hafa
þennan lista einungis í huganum því
þá er góður möguleiki á að þú gleym-
ir hlutnum.
Gerðu við föt
Í stað þessa að henda skyrtunni sem
vantar á tölu eða buxunum með
gatinu, gerðu við fötin. Bættar buxur
er tilvalið að nota við þrif eða í garð-
vinnu. Einfaldur saumaskapur getur
því komið í veg fyrir að þú kaupir föt
sem þú átt í rauninni fyrir.
ekki eyða pening í að
skemmta börnum
þínum
Það er óþarfi að eyða
þúsundum króna
í bíó eða skemmti-
garða því það má eiga
góða stund með börnunum, sér-
staklega þeim yngstu á mjög ódýr-
an hátt. Leikið ykkur saman heima,
föndrið, litið, málið og leyfið ímynd-
unaraflinu að leika lausum hala. Það
má gera leiki úr einföldustu hlutum
á heimilinu, eins og reyna að henda
smápeningi í krukku. Ganga í fjör-
unni eða að kíkja niður að tjörn er
alltaf gaman. Mundu að börnin vilja
bara vera með foreldrum sínum og
þá skiptir ekki öllu máli hvað er gert.
Drekktu meira
vatn
Það er vitað að
vatn er besti drykk-
urinn og öll ættum
við að drekka meira
af því. Drekktu stórt vatns-
glas áður en þú sest við matarborðið.
Þannig gengur meltingin betur fyrir
sig auk þess sem þú borðar ekki eins
mikið og sparar á þann hátt pening.
Vatnið kemur einnig í veg fyrir að við
ofþornum.
Feldu kreditkortið
Taktu öll greiðslukortin þín og settu
á öruggan stað á heimilinu. Ekki hafa
þau í veskinu því þá er allt of auð-
velt að grípa í þau. Ef þér finnst að þú
þurfir að hafa þau í neyðartilvikum,
taktu þá heldur út pening og hafðu í
veskinu ef slíkt neyðartilfelli kemur
upp. Ekki hafa kortin á þér fyrr en þú
hefur öðlast þann viljastyrk sem þarf
til að sleppa því að grípa til þeirra í
hvert skipti sem þig langar í eitthvað
nýtt.
eyddu korta-
upplýsingum af
netsíðum
Það er svo auðvelt
að eyða pening á
netinu og sér í lagi á síðum þar sem
kortaupplýsingar þínar eru vistað-
ar. Þú sért eitthvað sem þig langar
í og þarft bara að ýta á kaupatakk-
ann. Besta leiðin til að koma í veg
fyrir þetta er að eyða út upplýsing-
um. Næst þegar þú ert við það að
falla í freistni þá þarftu að ná í kortið
og eyða tíma í að setja inn upplýs-
ingarnar. Á þeim tíma getur þú íhug-
að hvort þetta sé virkilega góð hug-
mynd.
Reglulegt viðhald
Skoðaðu reglulega öll heimilistæki
og passaðu að þau séu ekki að fyll-
ast af ryki og séu hrein. Kíktu bak við
tækin og ryksugaðu allt ryk. Skoð-
aðu allar viftur og loftgöt, sérstak-
lega á ísskápnum og þurrkaranum.
Því minna ryk, því betur ganga þessi
tæki og þau endast lengur.
Gefðu þjónustu í stað gjafar
Gefðu nýjum foreldrum pössun. Ef
þú þekkir einhvern sem á gæludýr,
bjóddu honum eða henni dýrapöss-
un þegar eigandinn er á ferðalagi.
Bjóddu nýjum húseigendum að
koma og slá grasið. Slíkar gjafir falla
vel í kramið og kosta ekkert.
Verslaðu hátíðarvörur eftir
hátíðarnar
Jólavörur fara á útsölu nokkrum dög-
um eftir jól. Verslaðu jólaskraut, jóla-
pappír og jólakortin strax eftir jól og
geymdu. Þú getur sparað heilmikið
með þessu.
ekki fara í verslun-
armiðstöð þér til
skemmtunar
Það gerir það að
verkum að þú eyðir
fé í óþarfa. Farðu
eitthvert annað en í
verslunarmiðstöð til að eyða tíman-
um. Farðu frekar í göngutúr í falleg-
um garði, kíktu á listasafn, út á fót-
boltavöll, í heimsókn til vinar eða
fjölskyldu eða finndu þér eitthvað að
gera heima við. Ekki setja samasem-
merki á milli verslunar og skemmt-
unar og veskinu þínu líður betur.
náðu taki á 10 sekúndna
reglunni
Alltaf þegar þú tekur upp hlut í búð-
inni til að setja í körfuna, taktu þér þá
10 sekúndur til að svara þeirri spurn-
ingu af hverju þú ætlar að kaupa
hlutinn og hvort hann sé nauðsyn-
legur. Ef þú getur ekki gefið sjálf-
um þér gott svar, settu hlutinn aft-
ur á sinn stað. Þetta hjálpar til við að
koma í veg fyrir hvatakaup.
Borðaðu morgunmat
Með því að borða
staðgóðan morgun-
mat ferðu full/ur af
orku út í daginn og
kemur á þann hátt í
veg fyrir þörf fyrir nart.
Þess utan getur morgunmaturinn
þinn verið mjög hollur, fljóteldaður
og ódýr. Hafragrauturinn trónir þar
í efsta sæti. Hann er ein besta leiðin
til að koma í veg fyrir hungur um há-
degisbil og einnig að þú farir út í há-
deginu og kaupir þér mikinn, dýran
og óhollan hádegismat.
Taktu með þér nesti
Í stað þess að fara út í hádeginu, taktu
með þér nesti. Sumir halda að nestið
verði orðið ólystugt um hádegisbil en
svo er ekki. Með smá undirbúningi
og með því að eyða nokkrum mínút-
um í það á morgnana er auðvelt að
útbúa hollt og gott nesti. Það sparar
þér heilmikinn pening.
Hvaða fríðindi hefur starfið þitt
upp á að bjóða?
Skoðaðu hvaða fríðindi eru í boði
á þínum vinnustað eða hjá þínu
stéttarfélagi. Flestir vita ekki á hverju
þeir eiga rétt svo það borgar sig að
kanna það því það gæti komið þér
á óvart. Hvort sem um ræðir gler-
augnastyrk, líkamsræktarstyrk eða
námskeiðsstyrk þá má alltaf spara
sér einhverjar krónur.
Búðu til þitt eigið
áfengi
Það er vel hægt að
brugga léttvín eða
bjór heima hjá sér
og spara þannig pen-
ing.
lestu meira
Lestur er ein af ódýrustu frístundun-
um, svo ekki sé talað um hve gott
það er fyrir sálarlífið. Þú þarft ekki að
hlaupa út í búð og kaupa þér bækur.
Farðu heldur á bókasafnið og fáðu
nokkrar bækur lánaðar. Finndu svo
þægilegan stað á heimilinu og sökktu
þér í lesturinn. Þú lærir eitthvað nýtt
og eykur lestrarhæfileikann án þess
að eyða krónu.
Hreyfðu þig meira
Farðu út að ganga eða skokka og
gerðu léttar æfingar auk þess að
teygja vel á. Það má gera þessar æf-
ingar hvar sem er, þær kosta ekk-
ert og hafa góð áhrif á heilsu þína.
Taktu frá smá tíma á hverjum degi í
æfingar og veskið verður þér þakk-
látt. n
n Áður en þú veist af hefur sparigrísinn þyngst og dafnað
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
Margt smátt gerir eitt stórt Það eru
litlu hlutirnir sem skipta máli og sparnaður
hér og þar borgar sig. MynD: PHoTos.coM