Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2012, Side 22
Sögumaður af guðs náð
n Saga um samskipti, völd og ótta
M
inning um óhreinan engil, er
söguleg skáldsaga um ævin-
týri ungrar sænskrar stúlku
í Afríku um aldamótin 1900
skrifuð af Henning Mankell sem er
Íslendingum vel kunnur fyrir sögur
sínar um rannsóknarlögreglumann-
inn Kurt Wallander.
Henning skrifar ekki aðeins
spennusögur heldur einnig klass-
ískar skáldsögur eins og til að mynda
bókina Danskennarinn snýr aftur.
Aðalsöguhetjan Hanna Lund-
mark er alin upp í nístingskulda og
við andlega og veraldlega fátækt í
sænskri sveit. Allslaus stígur hún
upp í skip á leið til Ástralíu. Örlög-
in ráða því að hún yfirgefur skipið í
Austur-Afríku og stígur á land.
Henning dregur upp sterka
mynd af snauðri konu sem hef-
ur tilveruna í Afríku. Hún er sak-
laus og án lífsreynslu og því er sýn
hennar ómenguð. Hún fær gistingu
á vændishúsi og fær samúð með
vændiskonunum. Hún er hvít kona
í svörtu landi og fær að kynnast ótta
hvíta fólksins við þá sem það undir-
okar. Smám saman litar óttinn
sýn hennar þar til voðaatburður
verður til þess að hún tekur af-
stöðu.
Henning býr til skiptis í Sví-
þjóð og Maputo í Mósambík og
frásögnin ber þess merki. Lýs-
ingar á náttúru, fólki og umhverfi
eru leiftrandi fagrar og snjallar.
Hann er sögumaður af guðs náð.
Umskiptunum úr hvítum kuld-
anum þar sem átökin eru helst
við náttúruöflin, í hitann þar sem
ríkja allsnægtir en óttinn hefur
tekið völd, er lýst af listfengi.
Minning um óhreinan eng-
il er saga um samskipti, völd
og ótta. Henning leikur sér að
hugmyndum um allsleysi og
allsnægtir og teflir á móti hug-
myndum um ríkidæmið eða
innri fátækt. n
22 Menning 17. október 2012 Miðvikudagur
Hreint hjarta
Heimildamyndin Hreint hjarta
eftir Grím Hákonarson er
nú sýnd í kvikmyndahúsum.
Myndin fjallar um Kristin Ágúst
Friðfinns son sem hefur verið
prestur á Selfossi og nágrenni í 20
ár. Hann er litríkur persónuleiki
sem er ekkert óviðkomandi
þegar kemur að þjónustunni
við sóknarbörnin. Kristinn þykir
góður sálusorgari og margir leita
til hans um hjálp. En á með-
an hann leysir úr vandamálum
annarra þarf hann að glíma við
eigin vandamál og stendur í deil-
um við yfirvöld innan kirkjunnar.
Myndin var valin besta heimilda-
myndin á kvikmyndahátíðinni
Skjaldborg 2012.
Bestu myndir
10. áratugarins
Vefsíðan AV Club hefur sett
saman lista yfir 50 bestu kvik-
myndir tíunda áratugarins.
Efst á lista er myndin Good-
fellas sem þeir segja eldast
ákaflega vel. Hér að neðan gef-
ur að líta þær kvikmyndir sem
verma tíu efstu sætin sam-
kvæmt AV Club.
1. Goodfellas (1990)
2. Pulp Fiction (1994)
3. Toy Story 2 (1999)
4. Dazed And Confused (1993)
5. Chungking Express (1994)
6. Out Of Sight (1998)
7. Reservoir Dogs (1992)
8. Unforgiven (1992)
9. Rushmore (1998)
10. Being John Malkovich (1999)
Kristjana Guðbrandsdóttir
kristjana@dv.is
Bækur
Minning um óhreinan engil
Höfundur: Henning Mankell
Útgefandi: Mál og menning
368 blaðsíður
Sterk mynd af snauðri konu
Henning leikur sér að hugmynd-
um um allsleysi og allsnægtir
og teflir á móti hugmyndum um
ríkidæmið eða innri fátækt.
Frjálsleg uppskrift
í réttum hlutföllum
S
öngva- og gleðimyndin Með
allt á hreinu á þrjátíu ára af-
mæli á þessu ári og af því til-
efni hefur hún verið endur-
útgefin á DVD í þriggja
diska safni undir nafninu Astral-
terta. Ásamt DVD-diskinum inni-
heldur Astralterta tónlistina úr kvik-
myndinni sem gefin var út á plötu á
sínum tíma, sem og aukadisk með
lögum sem heyrðust í myndinni en
fóru ekki á plötuna.
Nafnið á safndisknum kann
að koma þeim sem ekki þekkja til
myndarinnar spánskt fyrir sjónir, en
það er tilvísun í texta lagsins ÚFÓ,
þar sem Stuðmenn reyna að sann-
færa lögreglumenn um að þeir hafi
hitt geimverur sem buðu þeim upp
á astraltertu. Þeir náðu ekki mynd-
um en sönnunargagnið var astralt-
ertugubb, sem ekki var skilgreint neitt
frekar. Lagið sló hins vegar í gegn líkt
og myndin sjálf og öll tónlistin úr
henni.
Allt gekk upp
Það er óhætt að segja að Stuðmenn
hafi hitt naglann á höfuðið með
kvikmyndinni en vinsældir henn-
ar urðu gífurlegar og hafa lítið dvín-
að. Myndin hefur nefnilega elst ótrú-
lega vel og virðist einnig höfða til
nýrra áhorfenda af næstu kynslóð á
eftir þeirri sem sá hana fyrst. Stuð-
mannahúmorinn er svo kostulega súr
og flippaður og virðist á einhvern dá-
samlegan hátt bara virka. Hann virk-
aði fyrir þrjátíu árum og virkar enn
þann dag í dag.
Í nýlegu viðtali í DV viðurkenndi
Egill Ólafsson, söngvari Stuðmanna,
að þeir hefðu oft rætt það sín á milli
af hverju myndin varð svona vin-
sæl, en ekki komist að neinni niður-
stöðu. Þetta hefði einfaldlega verið
þannig að ungir menn hefðu hist á
tilteknu augnabliki og allt hefði geng-
ið upp. „Fullorðnir og börn horfðu á
hana og allir virtust geta samsamað
sig þessu skrýtna galleríi af fólki sem
fram kemur í myndinni,“ sagði Egill í
viðtalinu.
Samtöl spunnin á staðnum
Engin samtöl í Með allt á hreinu voru
skrifuð í handrit, heldur voru þau að
miklu leyti unnin á staðnum við tök-
ur á myndinni. Sýnir það bæði hvað
sköpunarkrafturinn var mikill og
samstarf allra þeirra sem að myndinni
komu þurfti að vera óaðfinnanlegt.
Í myndinni er vissulega stund-
um vaðið úr einu í annað enda bruna
hljómsveitirnar Stuðmenn og Gær-
ur landshorna á milli og keppast um
hylli ballgesta í hinum ýmsu félags-
heimilum víðsvegar um landið. Það
kemur þó ekki að sök því tónlistarat-
riðin eru límið sem heldur myndinni
saman.
Þetta var frjálsleg uppskrift, þó í
réttum hlutföllum, sem einfaldlega
gekk upp og náði til fólks.
Kolféll fyrir kvikmyndinni
Ég sá Með allt á hreinu í fyrsta skipti
fyrir 18 árum, þá 12 ára, og kolféll
einmitt fyrir þessu skrýtna galleríi af
fólki sem Egill talaði um. Um var að
ræða VHS-útgáfuna sem fylgdi með
tvöföldum pylsupakka í Bónus. En
á þeim tíma fylgdu íslenskar myndir
gjarnan með pylsupökkum og gengu
þær margar hverjar í endurnýjun líf-
daga fyrir vikið.
Ég hreifst svo af Með allt á hreinu
að ég horfði á hana nánast á hverj-
um degi í heilt ár. Hún kom mér alltaf
í gott skap og tónlistin var hressandi.
Eftir því sem tíminn leið og myndin
rúllaði oftar í gegnum vídeótækið fór
ég að hafa áhyggjur af því að ég myndi
eyðileggja spóluna. Ég dró úr áhorf-
inu því ég vildi alls ekki tapa þessari
gersemi og fór í kjölfarið á stúfana
að reyna að hafa upp á plötunni með
tónlistinni. Gekk á milli hinna ýmsu
plötubúða og safnara án árangurs.
Tónlistin úr myndinni virtist á þess-
um tíma ófáanleg og ég varð að gjöra
svo vel að sætta mig við það. Nokkrum
árum síðar var hún þó endurútgefin á
geisladiski sem ég stökk á um leið.
Nú eftir þrjátíu ár er þetta loksins
fáanlegt í einum pakka, kvikmyndin
og tónlistin, og finnst mér ég hafa
himin höndum tekið.
Festir sig í sessi í sálinni
Það voru komin nokkur ár frá því
ég sá Með allt á hreinu þegar ég
fékk Astraltertu í hendurnar fyrir
skömmu. Með glöðu geði endur-
nýjaði ég kynni mín af bæði kvik-
myndinni og tónlistinni. Og afstaða
mín hefur ekki breyst frá því ég var 12
ára, ást mín á Stuðmönnum er ein-
læg og sönn. Með allt á hreinu er að
mínu mati meistaraverk sem ætti að
vera til á hverju heimili. Það er bara
eitthvað við þessa skrýtnu karaktera,
gleðina og stemninguna sem nær
til fólks og festir sig í sessi í sálinni.
Stuðmenn voru með allt á hreinu við
gerð myndarinnar og slíkt verður ekki
leikið eftir. n
n Með allt á hreinu er meistaraverk sem á að vera til á hverju heimili
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrun@dv.is
Bíómynd
Astralterta - Með allt á
hreinu - afmælisútgáfa
Leikstjóri: Ágúst Guðmundsson
Útgefandi: Sena
Komu saman aftur Stuðmenn komu
saman aftur í tilefni 30 ára afmælis Með allt
á hreinu og héldu tónleika í Hörpu.
Með allt á hreinu „Fullorðnir og börn horfðu á hana og allir virtust geta samsamað sig þessu skrýtna galleríi af fólki sem fram kemur í
myndinni,“ sagði Egill Ólafsson um myndina í viðtali í DV um nýverið.
Góð Kaup
GODDI.IS
Auðbrekku 19, 200 Kóp.
s. 544 5550
GÓÐ KAUP
Sérstakur afsláttur á
• Saunaklefum 206x206 sm
• Joutsen m/45 mm bjálkum
• Roro m/38 mm bjálkum
Auðvelt að breyta í útihús
GODDI.IS
Auðbrekku 19, 200 Kóp.
s. 544 5550
GÓÐ KAUP
Sérstakur afsláttur á
• Saunaklefum 206x206 sm
• Joutsen m/45 mm bjálkum
• Roro m/38 mm bjálkum
Auðvelt að breyta í útihús
Auðbrekku 19, 200 Kóp. s. 544 5550
GODDI.IS
Auðbrekku 19, 200 Kóp.
s. 544 5550
GÓ
Sérstakur afsláttur á
• Saunaklefum 206x206 sm
• Joutsen m/45 mm bjálkum
• Roro m/38 mm bjálkum
Auðvelt að breyta í útihús
Nokkrir finnskir saunaklefar
fyrir heimahús á mjög góðu verði.
Þakflísar - brúnar, grænar,
rauðar og svartar.