Úr þjóðarbúskapnum - 01.12.1960, Blaðsíða 14

Úr þjóðarbúskapnum - 01.12.1960, Blaðsíða 14
ÚR ÞJÓÐARBÚSKAPNUM IV. Kaup vöru og þjónustu. Hér eru tilfærð kaup vöru og þjónustu til rekstrarþarfa ríkis- ins, undanskilin eru því kaup vöru og þjónustu til fjármunamyndunar og viðhalds, sem falla undir flokka II og III. Laun tilfærð undir þessum flokki ná t. d. yfir hina raunverulegu ríkisþjónustu, en ekki laun til fjármunamynd- unar og viðhalds. Skipting milli launa — þ. e. a. s. beinna greiðslna til heimilanna — og vöru og þjón- ustu — þ. e. a. s. greiðslna til atvinnufyrirtækja er oft ógreinileg, jafnvel í IV. flokki, og varð að skipta nokkrum upphæðum ár hvert til helminga milli „launa“ og „kaupa vöru og þjónustu". Kaup vöru og þjónustu frá útlönd- um á við útgjöld íslenzku sendiráðanna og annað þess háttar. V. Vextir. Hér er eingöngu um kaup á fjár- magnsþjónustu að ræða, þ. e. vaxtagreiðslur. Flokkar VI—IX. Reikningsliðir þeir, sem falla hér undir, eru að ýmsu leyti erfiðir í flokkun. Oft er vafamál, hvort ýmis starf- semi á að teljast til atvinnureksturs eða óarð- bærrar félagastarfsemi og þar með hvort til- færslurnar eru til fyrirtækja eða til heimila (að meðtalinni óarðbærri félagastarfsemi). Eins eru óglögg mörk milli hinna ýmsu opin- beru geira annars vegar og bæði atvinnurekst- urs og umræddrar félagastarfsemi hins vegar. Sundurliðunin er oft byggð á mati. Eins og taflan ber með sér, hefur þótt rétt að flokka sérstaklega og sundurliða niður- greiðslur verðlags innanlands. Hér eru þó ekki teknar með niðurgreiðslur á skömmtunar- vörum, heldur undir lið 2 „til heimila". Framlög til nýbýla og jarðræktar eru tekin samkvæmt 16. gr. A á ríkisreikningi og eru þar innifalin framlög Landnámssjóðs. Framlög til fiskvinnslufyrirtækja eru tekin samkvæmt ríkisreikningi og þá einkum 16. gr. B, en við það bætast verulegar upphæðir ann- ars staðar frá, svo sem framlög til hlutatrygg- ingasjóðs, sem sumpart eru ekki á rekstrar- reikningi ríkisins. „Til ýmissa samtaka" er blandaður liður. Hér er bæði um að ræða framlög til fyrirtækja og til óarðbærrar félagastarfsemi, sbr. það sem áður er sagt um hin óglöggu mörk milli þess- ara flokka. A liðinn „til heimila“ eru færðar beinar til- færslur, er tilheyra framfærslumálum og eins og áður er sagt, sú fjárupphæð, sem hefur far- ið til niðurgr. vöru samkv. skömmtunarmiðum. VII. Tilfærslur til annarra opinberra aðila. Flokkur þessi er mikið sundurliðaður, og er fátt sem gefur tilefni til frekari athugana. Framlög til Tryggingarstofnunarinnar o. fl. eru talin samkvæmt 17. gr. og 18. gr. ríkisreikn- ings. Þar sem gert er ráð fyrir að taka lífeyris- sjóðina með undir almannatryggingar, eru öll framlög samkvæmt 18. gr. færð undir þennan lið. Hér eru færð einnig framlög ríkisins til heilbrigðismála, eins og rekstrarhalli sjúkra- húsa o. fl., samanber það, sem sagt er um inn- hlið. Undir lið 2 e. „Annað“ er fært það, sem sveitarfélögin hafa fengið af innheimtum stríðsgróðaskatti, en allur skatturinn er talinn með í tekjum ríkisins. VIII. Tilfærslur til útlanda. Hér eru færð framlög til ýmissar alþjóðastarfsemi. X. Fjármagnshreyfingar. Flokkur þessi sýn- ir kröfubreytingar og þarf lítilla skýringa við. Veitt lán er erfitt að sundurliða og hafa þau því verið tekin hér í einu lagi. „Til lánastofnana“. Þessar upphæðir eru að nokkru leyti taldar samkvæmt ríkisreikningi, en að öðru leyti er þeim ráðstafað beint til lánastofnana af sérstökum tekjum, svo sem útflutningsgjaldi af sjávarafurðum til Fisk- veiðasjóðs og Fiskimálasjóðs. Framlög til Framkvæmdabanka Islands eru eingöngu af mótvirðisfé Marshallaðstoðarinnar. Hinar til- færðu lánastofnanir verða gerðar upp með bankakerfinu. Hér eru því aðeins talin bein framlög til þeirra. Breytingar á sjóðum og bankainnstæðum eru færðar hér, og þá já- kvæðar eða neikvæðar eftir því hvort um er að ræða hækkun eða lækkun. 12

x

Úr þjóðarbúskapnum

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úr þjóðarbúskapnum
https://timarit.is/publication/1134

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.