Úr þjóðarbúskapnum - 01.12.1960, Qupperneq 28
ÚR ÞJÓÐARBÚSKAPNUM
kaupa á vörum í Vestur-Evrópu, en andvirði
lánsins í íslenzkum krónum skal notað til fram-
kvœmda innanlands á vegum ríkisstjórnarinnar,
þ. e. Raforkusjóðs, Ræktunarsjóðs og Fisk-
veiðasjóðs. Annað lánið var tekið hjá Export-
Import Bank of Washington að jafnvirði
$ 1.698.000 og er veitt af fé því er Bandaríkin
eignast hér á landi vegna sölu á landbúnaðar-
afurðum. Lánsfénu er varið til þess að standa
straum af innlendum kostnaði við virkjun Efra-
Sogs og lagningar línu þaðan til Keflavíkur.
Þriðja lán bankans 1958 var viðbótarlán, að
upphæð Sfr 500.000 við lán, sem Framkvæmda-
bankinn tók hjá Union Bank of Switzerland
1955. Lánið var notað til vörukaupa í Sviss,
en jafnvirði þess endurlánað innanlands til
ýmissa framkvæmda.
A árinu 1959 tók bankinn einnig þrjú lán.
Hið fyrsta hjá Export-Import Bank of Was-
hington, sams konar lán og tekið var 1958 hjá
sama banka, að jafnvirði $ 1.760.000 og er not-
að vegna innlends kostnaðar við Efra-Sog, svo
og annarra þeirra framkvæmda, er samkomu-
lag verður um milli lánveitanda og lántakanda.
Annað lánið var tekið hjá Habag G.m.b.H.,
Dússeldorf, að upphæð DM 1.500.000, sem
notast til kaupa á vélum frá V.-Þýzkalandi.
Þriðja lánið var tekið hjá Kooperativa För-
bundet, Stokkhólmi, að upphæð Skr 1.000.000.
Lánið er notað til vörukaupa í Svíþjóð, en
jafnvirði þess í íslenzkum krónum notað til
lúkningar byggingu hraðfrystihúss í Þorláks-
höfn.
Landsbanki íslands tók á árinu 1958 lán
hjá Rússneska Þjóðbankanum, að upphæð
50 mkr, miðað við þáverandi gengi, en sé
miðað við núverandi gengi samsvarar þessi
upphæð 116,5 mkr. Aðeins helmingur þeirr-
ar upphæðar hefur verið notaður og er ófyrir-
sjáanlegt, hvort meira verði notað af þessu
láni. Sú upphæð var notuð til kaupa á tólf
fiskiskipum, smíðuðum í A.-Þýzkalandi. Þetta
lán kemur í staðinn fyrir lán, sem tekið var í
A.-Þýzkalandi 33,1 mkr og lán í V.-Þýzka-
landi 16,3 mkr vegna áðurnefndra skipa-
kaupa.
Ríkissjóður tók á árinu 1959 lán hjá Export-
Import Bank of Washington að upphæð
$ 3.000.000. Er það hluti af $ 6.000.000 láni, en
seinni hluti þess var tekinn í janúar 1960 og
er reiknaður sem ónotaður útistandandi höfuð-
stóll 31. des. 1959. Lánið er notað til vöru-
kaupa og endurlánað til Raforkusjóðs, Rækt-
unarsjóðs og til hafnarframkvæmda.
A aðalskrá Framkvæmdabankans eru færð
þau lán, sem skráð eru á skýrslum bankans til
Alþjóðabankans í Washington. Tafla II sýnir
útistandandi höfuðstól þessara lána, notaðan
og ónotaðan í mkr um síðustu áramót.
TAFLA II.
Notað og ónotað lánsíé 31. des. 1959, miðað
við hið nýja gengi
Notað Ónotað Samtals
EPU-lán mkr 259 mkr mkr 259
Lán frá Alþjóðabankanum . . 00 00 l—H — 188
Lán frá Export-Import Bank 793 356 1149
Onnur löng dollar lán .... 89 — 89
Lán í Sterlingspundum .... 117 — 117
Lán í V.-þýzkum mörkum . 122 7 129
Lán í tékkneskum krónum . 41 — 41
Lán í svissneskum frönkum . 34 — 34
Lán í sænskum krónum . . . — 7 7
Lán í dönskum krónum . . . 1 — 1
Lán í íslenzkum krónum . . 53 - 53
Alls 1697 370 2067
Taflan sýnir að 370 mkr voru ónotaðar
um áramót. Af lánum frá Export-Import Bank
nemur ónotaður höfuðstóll 356 mkr. Af V.-
þýzkum mörkum er ónotað 7 mkr, en sviss-
neskir frankar nema 0,3 mkr. Lán, sem tekið
var í Svíþjóð 12. október 1959 að fjárhæð
7 mkr. er talið ónotað um áramót.
Eftirfarandi tafla sýnir greiðslur afborgana
og vaxta þeirra erlendu lána, sem samið hafði
verið um í árslok 1959, árin 1960—1965.
26