Fréttablaðið - 07.11.2014, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 07.11.2014, Blaðsíða 4
7. nóvember 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 4 AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kkolbeins@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SVONA ERUM VIÐ 50.000 tonn af þorskhausum eru þurrkuð af 10 til 12 fyrirtækjum á Íslandi. Útflutningsverðmætið var átta milljarðar króna í fyrra. UMHVEFRFISMÁL Bæjarstjórn Grindavíkur er afar ósátt við að fá ekki að vera með í ráðum við endur skoðun vatnsverndar á höf- uðborgarsvæðinu. Vinna ætti verk- ið í nánu samstarfi við Grindavík. „Samtök sveitarfélaga á höfuð- borgarsvæðinu hafa ekki svarað þeirri kröfu Grindavíkurbæjar og með því telur Grindavíkurbær að verið sé að sýna ákveðna vanvirð- ingu og yfirgang.“ - gar Endurskoðun vatnsverndar: Telja sig verða fyrir yfirgangi SKIPULAGSMÁL Eigendur í Þór- unnartúni 2 og Borgartúni 8 til 16 krefjast stöðvunar framkvæmda við Þórunnartún 4 og að ógilt verði ákvörðun borgaryfirvalda um að leyfa þar viðbyggingu og 93 her- bergja hótel. Kærendur segja forsendur ger- breyttar „enda var ekki gert ráð fyrir að annað stórt hótel yrði reist í Þórunnartúni“, segir í kæru til úrskurðarnefndar. - gar Ósamkomulag á Höfðatorgi: Framkvæmdir verði stöðvaðar UPPBYGGING Nóg um að vera við Höfðatorg. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA KALDÁRBOTNAR Vatnsvernd endur- skoðuð. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Aðventuferð til Vínarborgar 27. - 30. nóvember VITA Skógarhlíð 12 Sími 570 4444Flogið með Icelandair Verð frá 89.900 kr.* og 12.500 Vildarpunktar á mann m.v.í tvíbýli á Hotel Artis. Innifalið er flug og gisting með morgunverði. *Verð án Vildarpunkta 99.900 kr. HEILBRIGÐISMÁL „Við erum að búa til nýja insúlín sprautu,“ segir Sigur jón Lýðsson hjá nýsköpunar- fyrirtækinu Medilync. Fyrirtækið hefur að undanförnu þróað og hannað tæki sem er ætlað að halda og safna saman upplýsingum um lyfjagjöf sykursjúkra. Tækið sem gengur undir nafn- inu Insulync mælir blóðsyk- ur og gefur insúlín. Svo er hægt að geyma á tækinu upplýsingar um insúlíngjafir og blóðsykurs- mælingar sem síðan eru sendar í miðlæga gagnageymslu í skýinu Cloud lync. Notandinn getur svo nálgast sín gögn í gegnum vafra eða þar til gert app. Einnig getur notand- inn gefið öðrum aðgang að sínum gögnum svo sem aðstandanda eða lækni. Með þessu geta foreldrar til dæmis fylgst með insúlíninntöku barna sinna. „Insúlínpennarnir eins og þeir eru í dag eru mjög einfaldir,“ segir Sigurjón. Þessir pennar séu ekki hannaðir til þess að geyma upp- lýsingar. „Við viljum að notand- inn geti fengið þessar upplýsingar vistaðar á daginn.“ Tækið er einnig blóðsykurs- mælir. „Þú getur mælt blóðsykur á tækinu þannig að þú ert að fá eitt og sama tækið. Við erum að fækka hlutunum og einfalda fyrir sjúk- linginn,“ segir Sigurjón sem kveð- ur persónulega reynslu hafa orðið til þess að hann fór að þróa tækið. „Við erum að breyta því hvern- ig sykursjúkur getur meðhöndl- að sinn sjúkdóm,“ segir Sigurjón. Þarna verði til ákveðin gögn sem sjúklingur getur komist í. Sykur- sjúklingar hafi oft háan blóðþrýst- ing um langan tíma og það geti haft áhrif á skammtímaminni. „Ítrekað hef ég upplifað þetta með pabba minn,“ segir Sigurjón. Faðir hans hafi haft sykursýki í 35 ár og stundum þegar hann sprauti sig sé hann búinn að gleyma því fimm mínútum seinna. Eigendur Medilync fengu nýlega boð frá höfuðstöðvum Microsoft í Bandaríkjunum um að koma til Seattle og vinna með tölvunar- verkfræðingum Microsoft að hug- búnaðinum og skýinu sem tengist lausnum Medilync. „Það sem við erum að fara að gera með Microsoft er að við erum að fara að vinna að þeim hluta sem tengir tækið við skýið þeirra,“ segir Sigurjón, sem áður vann hjá Microsoft í níu ár. Forsvarsmenn Medilync munu svo hitta Scott Guthrie, aðstoðar- forstjóra Microsoft Cloud & Enterprise, í janúar í höfuðstöðv- um Microsoft í Seattle. jonhakon@frettabladid.is Microsoft tekur þátt í þróun insúlínsprauta Íslenskir frumkvöðlar þróa nýjar og bættar insúlínsprautur. Þeir hyggja á samstarf við hugbúnaðarrisann Microsoft um að tengja vöru sína við hugbúnað Microsoft. Með nýju tækninni gætu foreldrar fylgst með insúlíninngjöf barna sinna á netinu. ORKUMÁL Samorka, samtök orku- og veitu- fyrirtækja, beinir því til Alþingis að þeir sex orkukostir sem Alþingi færði úr nýtingar- flokki í biðflokk í janúar 2013 fari til baka í nýtingarflokk. Um er að ræða Urriðafossvirkjun, Holta- virkjun og Hvammsvirkjun í Þjórsá, Skrokk- ölduvirkjun og Hágönguvirkjun I og II. Eins styður Samorka tillögu til þingsálykt- unar um færslu Hvammsvirkjunar í nýt- ingarflokk, og segir tilfærsluna alla hafa gengið þvert gegn faglegri niðurstöðu verk- efnisstjórnar Rammaáætlunar. Í ályktun Samorku er jafnframt farið fram á að „núverandi verkefnisstjórn ljúki því verkefni sem henni var falið í skipunarbréfi, að forgangsraða vinnu við þá tvo aðra kosti sem jafnframt var fjallað um sérstaklega í nefndar áliti þáverandi meirihluta umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis í janúar 2013 [Hólmsárvirkjun við Atley og Hagavatns- virkjun]. Loks gerir Samorka tillögu um að vinnu verkefnisstjórnar verði forgangsraðað þann- ig að fjallað verði um þá kosti sem best hafa verið rannsakaðir og lengst eru komnir í undir búningi, í ljósi þess tímahraks sem vinn- an er komin í. - shá Samorka vill að verkefnisstjórn Rammaáætlunar flýti vinnu og forgangsraði við mat orkukosta: Vilja sex orkukosti aftur í nýtingarflokk FRUMKVÖÐULL Sigurjón Lýðsson segir að það hafi haft mikil áhrif á sig að faðir hans hafi verið með sykursýki í yfir 35 ár. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SPRAUTAÐ Tæknin sem Medilync er að þróa gæfi foreldrum færi á að fylgjast með insúlíninntöku barna sinna. Þannig gætu þeir fylgst með því insúlíni sem barnið tekur þegar foreldrið er ekki við- statt. NORDICPHOTOS/GETTY URRIÐAFOSS Þrír orkukostir í Þjórsá meðal annars eru bitbein. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON DÓMSMÁL „Ég er búinn að biðja hana endalaust fyrirgefning- ar,“ sagði maður sem í gær var dæmdur í Hæstarétt í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir árás á sambýliskonu sína. Maðurinn sló konuna, tók um háls hennar og settist klofvega ofan á brjóstkassa hennar. Konan lýsti því fyrir dómi að henni hafi fund- ist sem hún væri að kafna en náð að slá manninn með grjóthnull- ungi í höfuðið svo hún losnaði úr greipum hans. Árásin var sögð tilefnislaus og hrottafengin. - sks Réðst á sambýliskonu sína: Barinn með grjóthnullingi HÆSTIRÉTTUR Dómur héraðsdóms var staðfestur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Elísabet Margeirsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá HELGARHORFUR Það dregur heldur úr vindi og úrkomu á landinu til morguns og kólnar talsvert í veðri. Á laugardag verður fremur ákveðin norðaustanátt með éljum norðaustantil en á sunnudag verður víðast úrkomulítið og heldur bjartara. -2° 15 m/s 2° 15 m/s 3° 16 m/s 7° 13 m/s 8-15 m/s. 5-10 m/s. Gildistími korta er um hádegi 12° 23° 2° 13° 18° 5° 11° 9° 9° 26° 14° 23° 23° 21° 16° 9° 9° 9° 6° 8 m/s 6° 10 m/s 4° 5 m/s 3° 16 m/s 0° 13 m/s 0° 15 m/s -4° 17 m/s 0° -1° -2° -3° -1° -1° -3° -3° -4° -5° Alicante Aþena Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur SUNNUDAGUR Á MORGUN DÓMSMÁL Hæstiréttur Íslands hefur staðfest úrskurð Héraðs- dóms Reykjavíkur um að vísa beri frá máli Haga, sem reka meðal annars Bónus og Hagkaup, gegn íslenska ríkinu. Málið var höfðað vegna kröfu Haga um að ógilt yrði með dómi ákvörðun Sigurðar Inga Jóhanns- sonar, sjávarútvegs- og landbún- aðarráðherra, að hafna beiðni Haga um innflutning á lífrænum kjúklingi. Héraðsdómur vísaði málinu frá þann 7. október. - jhh Geta ekki flutt inn kjúkling: Máli Haga var vísað frá dómi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.