Fréttablaðið - 07.11.2014, Side 17
FÖSTUDAGUR 7. nóvember 2014 | SKOÐUN | 17
Ekki láta þér bregða, kæri les-
andi, þótt þessi skrif fari ein-
hvers staðar út af sporinu. Þótt
talið færist skyndilega að syngj-
andi regnbogum og dansandi
einhyrningunum – eða eru það
sebrahestar sem eru ekki til í
alvörunni? Allavega. Skiptir ekki
máli.
Þegar þetta er skrifað er mið
nótt. Regnblautar götur Lund-
únaborgar eru auðar. Ég er
með kvef og hita og þjáist af
90% heyrnarleysi og krömpum
í eyrum sem ég get aðeins lýst
sem sársauka sem er eins og að
fæða barn í gegnum hlustirnar.
Ég er ekki að misnota aðstöðu
mína og sækja mér meðaumk-
un lesenda allra 90.000 eintak-
anna sem prentuð eru af Frétta-
blaðinu – að minnsta kosti ekki
bara. Það er kjarni í þessum
skrifum mínum, það er ef ég
afvegaleiðist ekki yfir í sebra-
hestana þegar kokteillinn af
parasetamóli og íbúprófeni fer
loks að virka.
Smáskammtadropar
og blóðtökugræjur
Læknir sem ég þekki deildi eitt
sinn með mér fróðleiksmola um
læknastéttina sem setið hefur í
mér æ síðan. Hann sagði að það
besta sem læknir gæti gert fyrir
sjúkling væri oftar en ekki að
gera ekki neitt. Stundum væri
eina lækningin á boðstólum að
bíða. Bíða eftir að kvillinn gengi
yfir. Mér fannst þessi læknis-
fræðilega naumhyggja athyglis-
verð. Ég komst hins vegar að því
nýverið að þótt hún sé heillandi
á blaði er hún það ekki í praxís.
Kveftíminn er genginn í garð
eins og margir fá að kynnast
óþyrmilega um þessar mundir.
Ég fór til heimilislæknis fyrir
nokkrum dögum vegna lamandi
kvefs og eyrnaverkja. Læknir-
inn yppti öxlum. Það var ekk-
ert hægt að gera, þetta var
vírus sem gengi yfir á nokkrum
dögum, vikum eða mánuðum. Ég
fann hvernig örvæntingin byrj-
aði að krauma í iðrum mér eins
og sjóðandi kvika í eldfjalli. Það
dugði ekki að gera ekki neitt!
„Komdu með fokking fúkka-
lyfin eða þú hlýtur verra af,“
hrópaði ég á Dr. Patell af jafn-
einbeittum brotavilja og væri
ég bankaræningi sem stæði
frammi fyrir þreytulegum
gjaldkera. Oh, ekki enn annað
bankarán.
Þegar heilsan er í rugli er
maður til í að prófa hvað sem er,
bryðja hvað sem er, í veikri von
um að líða betur. Þegar læknir-
inn neitaði að láta mig fá sýkla-
lyf tók ég málin í eigin hendur.
Þrátt fyrir alræmda efahyggju
þegar kemur að óhefðbundnum
lækningum keypti ég í apótek-
inu sólhatta, C-vítamín, orku-
armbönd og lýsi. Ég veit, vand-
ræðalegt. En í örvæntingu minni
hefði ég keypt smáskammta-
dropa og blóðtökugræjur ef ég
vissi hvar þau fengjust. Síðast
en ekki síst fyllti ég út eyðublað
til að skipta um heimilislækni.
Stærsta ógnin við mannkynið
Vísindamenn vara nú við ógn sem
steðjar að heilsu mannkynsins.
Ógnin er stærri en flest það sem
við stöndum frammi fyrir. Þrátt
fyrir það gefum við henni lítinn
gaum.
Viðvörunin kæmi einum manni
ekki á óvart væri hann enn á lífi.
Stuttu eftir að Skotinn Alexander
Fleming uppgötvaði pensilín árið
1928 varaði hann við misnotkun
á sýklalyfinu. Hann sagði að ef
maður með óbreytta hálsbólgu
leyfði sér slíkt kæruleysi að taka
inn pensilín við krankleika sínum
yrði hann valdur að dauða annars
manns með lungnabólgu. Nú,
tæpri öld síðar, er spádómur hans
að rætast.
Ef ekkert er að gert mun fólk
deyja af smávægilegum sýk-
ingum í mjög náinni framtíð
því þau sýklalyf sem nú eru til
verða hætt að virka. Þetta sagði
Sally Davies, landlæknir Bret-
lands, í fyrirlestri síðasta sumar.
Æ fleiri bakteríur eru orðnar
ónæmar fyrir sýklalyfjum í kjöl-
far ofnotkunar á þeim. Alþjóða-
heilbrigðismálastofnunin (WHO)
hefur skilgreint sýklalyfjaónæmi
sem eina af stærstu heilbrigðis-
ógnum heimsins. En samt bryðj-
um við lyfin eins og Smarties.
Munum við Íslendingar í hópi
hinna stórtækustu í þeirri neyslu.
Í síðasta mánuði kynntu heil-
brigðisyfirvöld í Bretlandi nýja
skýrslu um þróun á sýklalyfja-
notkun þar í landi. Þrátt fyrir
ítrekaðar viðvaranir og fjölda
herferða sem brýnt hafa hætt-
una sem fylgir of mikilli sýkla-
lyfjaofnotkun fyrir læknum, heil-
brigðisstarfsfólki og almenningi
jókst sýklalyfjanotkun í Bret-
landi um 6% á árunum 2010-2013.
Talið er að í helmingi tilfella hafi
ekki verið rétt að skrifa upp á
sýklalyf.
Þegar pestin mín er liðin hjá
mun ég sjálfsagt gleyma öllum
háfleygum plönum um að njóta
tilverunnar og nýfenginnar
heilsu og vera þakklát. Ég mun
henda orkuarmbandinu og sól-
höttunum og halda áfram að gera
grín að óhefðbundnum lækning-
um. Einu ætla ég þó að reyna að
gleyma ekki. Ég ætla að fyrirgefa
Dr. Patell. Því með því að skrifa
ekki upp á pensillín fyrir konu
með hálsbólgu kann hann að hafa
bjargað lífi manns með lungna-
bólgu. Munum það í kvefinu.
Að fæða barn í gegnum eyrun
Í DAG
Sif
Sigmarsdóttir
rithöfundur
Kveftíminn er
genginn í garð eins
og margir fá að kynnast
óþyrmilega um þessar
mundir. Ég fór til heim-
ilislæknis fyrir nokkrum
dögum vegna lamandi kvefs
og eyrnaverkja. Læknirinn
yppti öxlum. Það var ekk-
ert hægt að gera, þetta
var vírus sem gengi yfir á
nokkrum dögum, vikum eða
mánuðum.
M
E
N
N
E
M
M
E
N
N
E
M
M
E
N
N
E
M
M
E
N
N
E
M
E
N
N
E
E
N
N
E
NN
/
S
ÍA
/
S
ÍA
/
S
ÍA
/
S
ÍA
S
ÍA
S
ÍAAAÍAÍ
/
N
M
6
/
N
M
6
/
N
M
66
N
M
/
N
M
N
M
/
NN
4
9
4
9
4
9
4
9
9
4
9
4
9
9
4
9
9
4
99
9
4
9
9
4
9
9
4
99
4
9
4
9
4
99
4
9
4
9
444444444
Sökudólgarnir: Skúr-
ingakerlingar
Ríkisstjórnin hefur
fundið, hvað var að í
kerfinu. Hvers vegna
var svo erfitt að fá
kassann til að stemma
um áramót. Þetta voru
margir áður búnir að fatta í sínum
fyrirtækjum. Í öllum tilvikum eru
hrun og kreppur skúringakerlingum
að kenna. Þær soga til sín þúsund-
kalla, sem betur ættu heima hjá
fjölþjóðlegum fyrirtækjum, sem
kunna að halda niðri launum. Í
hverju fyrirtækinu á fætur öðru
losa framsýnir stjórnendur sig við
helvítis kerlingarnar. Og nú hafa
Sigmundur og Bjarni fengið sömu
hugljómun. Ráku átján skúringa-
kerlingar úr ráðuneytunum. Því má
búast við betri tíð með blóm í haga
hjá hallalausum ríkissjóði næstu ár.
http://www.jonas.is/
Jónas Kristjánsson
Landspítali án lækna
Dugi verkfallsaðgerðir
lækna ekki til að
hreyfa við ríkis-
stjórninni er fátt sem
heldur í. Ástæðan er
samkeppni um lækna
í alþjóðlegu vinnuumhverfi. Fjár-
málaráðherra situr því frammi fyrir
tveimur valkostum, annarsvegar
nýr Landspítali með viðvarandi
læknaskorti eða að semja með það
fyrir augum að halda í mannskap-
inn. Þó læknar séu eins og þeir eru
bendir aðsóknin til þess að þjóðin
vilji síður vera án þeirra og mun
því áreiðanlega fylgja fjármálaráð-
herra sínum að málum.
http://www.dv.is
Lýður Árnason
AF NETINU