Fréttablaðið - 07.11.2014, Blaðsíða 8
7. nóvember 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 8
SAMGÖNGUR Isavia, sem annast
rekstur allra flugvalla hérlend-
is, gerir ráð fyrir að nýtingarhlut-
fall á Reykjavíkurflugvelli fari
niður í 95 prósent eftir fækkun
flugbrauta niður í tvær. Þetta kom
fram á opnum fundi um flugvöllinn
á sameiginlegum fundi atvinnu-
veganefndar og umhverfis- og sam-
göngunefndar Alþingis í gærmorg-
un. Nýtingarhlutfallið nú er rétt
undir 100 prósentum.
Þegar notkunarstuðull færist
niður fjölgar klukkustundum eða
dögum sem ekki er hægt að nota
völlinn við ýtrustu aðstæður. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Isavia
er notkunarstuðull flugvalla úti á
landi, þar sem yfirleitt er ekki nema
ein flugbraut, mun lægri.
Björn Óli Hauksson, forstjóri
Isavia, áréttaði á fundinum að
ákvörðun um lokun flugbrautar á
Reykjavíkurflugvelli væri á forræði
ráðherra og Alþingis. Færi hins
vegar svo að byggingarmagn við
enda flugbrautar færi yfir ákveðin
mörk gæti það takmarkað notkun
hennar.
Dagur B. Eggertsson, borgar-
stjóri í Reykjavík, hefur áður sagt
að breytingar á deiliskipulagi Hlíð-
arenda, sem samþykktar hafa verið
í umhverfis- og skipulagsráði borg-
arinnar hafi engin áhrif á framtíð
Reykjavíkurflugvallar.
„Málið snýst ekki um notkunar-
hlutfall eða öryggisstaðal, heldur
þjónustustig,“ segir Friðþór Eydal,
talsmaður Isavia. „Höfuðmálið er
hvað ríkisvaldið ákveður að bjóða
upp á miðað við kostnað sem fylgir
og hvaða fé er úr að spila. Þess
vegna eru til dæmis ekki tvær
brautir á Egilsstöðum eða einhvers
staðar annars staðar.“
Friðrik Pálsson, talsmaður sam-
takanna Hjartað í Vatnsmýri, fagn-
ar því að Alþingi taki flugvallar-
málið til sín. Fullreynt hafi virst að
fá borgina til að opna augun fyrir
sjónarmiðum samtakanna varð-
andi ókosti þess að loka flugbraut-
um Reykjavíkurflugvallar.
„Skerðing á Reykjavíkurflug-
velli er mál allra landsmanna. Hún
er stórmál,“ segir Friðrik og áréttar
að lokun flugbrautar sé á endanum
mál innanríkisráðherra og Alþingis.
Þegar hlutverk Landspítalans hafi
verið aukið varðandi þjónustu fyrir
alla landsmenn sé enn mikilvægara
að flugvöllurinn fái af öryggi gegnt
hlutverki sínu sem sjúkraflugvöllur.
„Þetta snýst bara um að völlurinn
sé opinn eins marga daga á ári og
mögulegt er.“ olikr@frettabladid.is
Höfuðmálið
er hvað ríkis-
valdið ákveð-
ur að bjóða
upp á miðað
við kostnað
sem fylgir og
hvaða fé er úr að spila.
Friðþór Eydal, talsmaður ISAVIA.
SVÍÞJÓÐ Sænska útlendingastofnunin telur að
gera megi ráð fyrir að 95 þúsund flóttamenn
sæki um hæli í Svíþjóð á næsta ári. Frá júní-
lokum í sumar og til loka september nú í haust
hafa að meðaltali 2.100 hælisleitendur komið til
Svíþjóðar í hverri viku. Það eru tvöfalt fleiri en
fyrstu mánuði ársins, að því er segir í frétt á vef
Dagens Nyheter.
Það er mat stofnunarinnar að stríðið í Sýr-
landi haldi áfram næstu tvö árin. Þess vegna
megi áfram búast við miklum fjölda flóttamanna
þaðan.
Haft er eftir starfandi framkvæmdastjóra
útlendingastofnunarinnar, Mikael Ribbenvik, að
stofnunin muni geta tekist á við vandann þótt bið
eftir afgreiðslu umsókna um hæli hafi tvöfald-
ast, úr rúmlega fimm mánuðum í rúmlega tíu
mánuði. Þetta muni þó reyna á sveitarfélögin.
Þau þurfi að sjá um alla sem fá dvalarleyfi.
Nú búi um 10 þúsund manns í flóttamannabúð-
um í Svíþjóð. Hætta sé á að íbúum í flóttamanna-
búðum fjölgi taki sveitarfélögin ekki við fleirum.
Ribbenvik segir að til lengri tíma litið sé þörf
á fleiri flóttamannabúðum. - ibs
Sænska útlendingastofnunin telur að straumur hælisleitenda haldi áfram:
Hátt í 100 þúsund hælisleitendur
Í SÝRLANDI Átökunum þar mun ekki linna næstu tvö árin, að
mati sænsku útlendingastofnunarinnar. NORDICPHOTOS/AFP
FLUGVÖLLUR Í BORGARLANDI Fram kom á opnum nefndarfundi á Alþingi í gær
að nýtingarhlutfall Reykjavíkurflugvallar gæti farið í 95 prósent verði einungis not-
ast við tvær flugbrautir. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Miðað við tvær flugbrautir
fer nýtingarhlutfallið í 95%
Fulltrúar Isavia og Hjartans í Vatnsmýri svöruðu spurningum þingmanna á opnum nefndarfundi á Alþingi í gær.
Þeir sem standa vilja vörð um völlinn áréttuðu áhyggjur sínar af öryggi sjúkraflugs verði flugbrautum lokað.
Dagur B. Eggertsson segir langt því frá að undanbrögð, hvað
þá hugleysi, hafi ráðið því að hann afboðaði sig á nefndarfund
Alþingis í gær þar sem Reykjavíkurflugvöllur var til umræðu.
Fundartíminn hafi rekist á reglulega fundi borgarráðs sem fari
fram klukkan níu á fimmtudagsmorgnum.
„Við eigum því satt best að segja ekki að venjast að það
sé verið reyna að setja niður fundi um veigamikið mál, þar
sem margir þurfa að koma saman með kannski 12 til 18 tíma
fyrirvara, eða að það sé ekki sveigjanleiki til að finna tíma þar
sem allir geta mætt,“ segir Dagur. Eðlilegra hefði verið að finna
annan tíma fyrir þennan sérstaka aukafund þingnefndanna.
Borgarstjóri vill hins vegar lítið tjá sig um hvort mögulega sé verið að efna til
átaka við borgaryfirvöld um skipulagsmál. Höskuldur Þórhallsson, þingmaður
Framsóknarflokks og formaður umhverfis- og skipulagsnefndar þingsins, hefur
boðað frumvarp með tillögu um að málefni og framtíðarskipulag flugvallarins
verði sett í þjóðaratkvæðagreiðslu.
„Ég hef nú ekki séð þetta frumvarp og eigum við ekki bara að láta það koma
fram áður en við förum að yrkja eitthvað í eyðurnar þar,“ segir Dagur. - jbg, óká
DAGUR B.
EGGERTSSON
Árekstur við fundartíma borgarráðs
FERÐAÞJÓNUSTA Upplýsingamið-
stöð Austurlands á Egilsstöðum
hefur verið lokað vegna rekstrar-
erfiðleika. Óvíst er í hvaða mynd
hún verður opnuð að nýju.
Upplýsingamiðstöðin er lands-
hlutamiðstöð sem rekin var af
Austurbrú og var opin allt árið.
Helsta verkefnið var að veita
ferðamönnum þjónustu og þannig
auka öryggi þeirra. - glp
Upplýsingamiðstöð lokað:
Ógnar öryggi
ferðamanna
EINFALT
AÐ SKILA EÐA SKIPTA
Hagkaup býður upp á 50.000 vörutegundir
og því er auðvelt að finna gjöf við allra hæfi.
Munið að biðja um skilamiða.
ATVINNUMÁL Meðaltal mánaðarlauna starfs-
manna hjá Seðlabanka Íslands eru 692.143
krónur, ef miðað er við skilgreiningu Hagstofu
Íslands á reglulegum launum.
Þetta kemur fram í svari fjármála- og
efnahagsráðherra við fyrirspurn Þorsteins
Sæmundssonar, þingmanns Framsóknar-
flokksins. Svar ráðherra er byggt á svari frá
Seðlabankanum.
„Í þessu svari eru laun seðlabankastjóra
og aðstoðarseðlabankastjóra tekin með. Það
getur reyndar talist álitamál þar sem þeir eru
embættismenn og ákvarðast laun þeirra því
með öðrum hætti en annarra starfsmanna. Án
bankastjóra væri þessi tala 681.427 kr. Að mati
Seðlabankans virðist fyrirspurnin hins vegar
gefa tilefni til þess að taka laun þeirra með,“
segir í svarinu.
Regluleg laun samkvæmt skilgreiningu Hag-
stofu Íslands eru greidd laun fyrir umsaminn
vinnutíma, hvort sem um er að ræða dagvinnu
eða vaktavinnu. Í þessum launum eru hvers
konar álags-, bónus- og kostnaðargreiðslur,
svo sem föst yfirvinna og uppmælingar sem
gerðar eru upp á hverju útborgunartímabili.
Við útreikninga er ekki tekið tillit til ákvæðis-
greiðslna, hlunninda, akstursgreiðslna né ann-
arra óreglulegra greiðslna. - jhh
Ráðherra svarar fyrirspurn Þorsteins Sæmundssonar, þingmanns Framsóknarflokksins, um laun starfsmanna Seðlabankans:
Meðallaun starfsmanna Seðlabankans 690 þúsund
Breyting meðallauna starfs-
manna Seðlabanka Íslands og
meðallauna ríkisstarfsmanna á
árunum 2008–2013.
Hækkun reglulegra launa í %
SÍ 23,3% ASÍ 27,3%
BSRB 23,6% BHM 21,7%
Heimild: Seðlabanki Íslands,
Skýrsla heildarsamtaka vinnumarkaðarins
– október 2013
➜ Breyting meðallauna
MENNTUN Frumkvöðlasetrið
Djúpið var opnað á Djúpavogi í
byrjun vikunnar. Því er ætlað að
styðja frumkvöðla við að skapa ný
atvinnutækifæri á Djúpavogi og
víðar á Austurlandi.
Austurbrú ses., AFL Starfs-
greinafélag og Djúpavogshreppur
undirrituðu viljayfirlýsingu í vor
um stofnun frumkvöðlaseturs-
ins. Bárust 33 tillögur um nafn á
setrið og varð nafnið Djúpið fyrir
valinu. - shá
Djúpið opnað á Djúpavogi:
Frumkvöðlar fá
vettvang eystra
DJÚPIVOGUR Sköpunarkjarkur eystra.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
GRÍMSNES
Krakkar fá útsýnisskífu
Nemendur úr 5., 7. og 8. bekk Kerhóls-
skóla hafa fengið leyfi sveitarstjórnar
Grímsness- og Grafningshrepps til að
setja upp útsýnisskífu á Borgarhól. Þeir
fá rauðamöl og aðstoð frá sveitar-
stjórninni sem fagnar framtakinu.
Þetta
snýst bara um
að völlurinn
sé opinn eins
marga daga á
ári og mögu-
legt er.
Friðrik Pálsson,
talsmaður Hjartans í Vatnsmýri.
BANKASTJÓRAR Bæði seðlabankastjóri og aðstoðar-
seðlabankastjóri eru inni í tölunum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA