Fréttablaðið - 07.11.2014, Síða 6
7. nóvember 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 6
1. Hvert er útfl utningsverðmæti
makrílafl a frá 2007?
2. Undir stjórn hvaða fl okks verða
báðar deildir Bandaríkjaþings?
3. Um hversu mikið dróst hagnaður
álveranna þriggja saman milli 2012
og 2013?
SVÖR:
1. Nálægt 100 milljörðum. 2. Repúblikana-
fl okksins. 3. Um 90 prósent.
MENNTAMÁL Skóla- og frí-
stundaráð Reykjavíkur-
borgar hefur samþykkt
tillögu þar sem lýst er
yfir eindregnum vilja til
að veita börnum sem ekki
hafa kennitölu leikskóla-
pláss í borginni. Sam-
kvæmt núgildandi reglum
verða börnin að hafa lög-
heimili og fasta búsetu í
Reykjavík.
„Við vitum ekki nákvæmlega
hversu mörg börn þetta gætu verið
að jafnaði. Á undanförnum
árum hefur verið hringt og
óskað eftir leikskólaplássi
fyrir eitt til þrjú börn á ári
en ekki hefur verið hægt
að verða við því. Við getum
ekki fullyrt hvernig þetta
verður í framtíðinni,“ segir
Skúli Helgason, formaður
ráðsins.
Reiknað er með að kostn-
aður borgarinnar fyrir hvert barn
verði 600 þúsund eða það sama og
borgin ber vegna barna fæddra
hér, að því er Skúli greinir frá.
Hann tekur fram að það sé sann-
gjarnt og eðlilegt að veita börn-
um þessa þjónustu þótt foreldrar
þeirra séu tímabundið með óljósa
stöðu í kerfinu. „Þetta samrýmist
mannréttindastefnu borgarinnar,
jafnræðisreglu stjórnarskrárinn-
ar og Barnasáttmála Sameinuðu
þjóðanna ekki síst, sem við höfum
nýlega lögfest.“ Þegar samþykkt
hefur verið breytingartillaga á regl-
unum verður málinu vísað til borg-
arráðs. - ibs
Skóla- og frístundaráð Reykjavíkur samþykkir tillögu um vilja til að veita undanþágu frá reglum:
Börn án kennitölu fái leikskólapláss
ÁN PLÁSS Vegna reglna hefur leikskóla-
umsóknum vegna barna án kennitölu
verið hafnað.
SKÚLI
HELGASON
FJARÐABYGGÐ Íbúar Fjarðabyggð-
ar eru ósáttir við þær hugmynd-
ir meirihluta bæjarstjórnar að
keyra börn á milli þéttbýliskjarna
í sveitar félaginu til að mæta hag-
ræðingarkröfu.
Íbúasamtök hafa sent frá sér
ályktanir um málið. Meirihlut-
inn hefur fallið frá því að keyra
börn frá Stöðvarfirði á Fáskrúðs-
fjörð. Enn eru uppi hugmyndir
um að flytja börn frá Eskifirði og
Fáskrúðsfirði til Reyðarfjarðar.
„Opin umræða um samfélagið
okkar og að við verðum meðvituð
í þeirri tímabundnu stöðu sem við
erum í að fá alla til að koma að borð-
inu og velta því fyrir okkur saman
hvernig við nýtum fjármagnið sem
okkur er skammtað sem best hlýt-
ur að vera öllum til hagsbóta,“ segir
Jens Garðar Helgason, formaður
bæjarráðs Fjarðabyggðar.
Jens segir verkefnin framund-
an ærin og menn
þurfi að velta upp
ýmsum mögu-
leikum til að fjár-
hagsáætlun 2015
verði rét tum
megin við núllið.
„Laun opin-
berra starfs-
manna hækkuðu
á árinu um 8-10
prósent, mun meira en áætlanir
gerðu ráð fyrir. Einnig var loðnu-
vertíðin hvorki fugl né fiskur sem
hefur mikil áhrif á fjárhagsstöðu
okkar hér í Fjarðabyggð. Við erum
að reka sex grunnskóla með 13
stjórnendum og við þurfum að velta
fyrir okkur hvernig við nýtum fjár-
magnið sem best og höldum uppi
góðri þjónustu fyrir börnin okkar.“
Jens Garðar segir að öllum þess-
um hugmyndum hafi verið kastað
fram til að reyna að fá umræðu um
hlutina í bænum því fræðslumál
snerti allflesta íbúa sveitarfélags-
ins.
„Þessu er öllu kastað fram sem
hugmyndum til að fá upp umræðu.
Þetta er markmið, að vera með
opna og gagnsæja stjórnsýslu og
fá upp umræðu í sveitarfélaginu,“
segir Jens Garðar.
Í umræðu um fjárhagsáætlun
2015 í bæjarstjórn Fjarðabyggðar
voru viðraðar hugmyndir til að ná
sparnaði í fræðslumálum.
Bæjarstjórn stendur frammi
fyrir því að þurfa að stoppa í um 70
milljóna króna gat í fjárhagsáætlun
næsta árs. Til stóð að aka börnum á
morgnana frá Stöðvarfjarðarskóla á
Fáskrúðsfjörð. Sú hugmynd fór illa í
íbúa svæðisins. Jens Garðar og Jón
Björn Hákonarson, forseti bæjar-
stjórnar, lögðu til að það yrði ekki
að veruleika.
sveinn@frettabladid.is
Börn verði ekki send
á Reyðarfjörð í skóla
Íbúasamtök Eskifjarðar hafa ályktað gegn því að elstu grunnskólabörnin verði
send til Reyðarfjarðar í skóla. Bæjarstjórn hefur fallið frá því að börn á Stöðvarfirði
verði send til Fáskrúðsfjarðar. Stoppa þarf í um 70 milljóna króna gat á næsta ári.
STÖÐVAR-
FJÖRÐUR Í
sveitarfélaginu
Fjarðabyggð
eru sex grunn-
skólar með
þrettán stjórn-
endum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALI
JENS GARÐAR
HELGASON
VIÐSKIPTI Landsbankinn hagnaðist um 5,1 milljarð króna
á þriðja ársfjórðungi. Fyrirtækið var rekið með 6,7 millj-
arða hagnaði á sama tíma í fyrra og er samdrátturinn
milli ára því 24 prósent.
Afkoma bankans á fyrstu níu mánuðum ársins var því
jákvæð um 20 milljarða króna miðað við 22 milljarða
hagnað á sama tímabili 2013.
Í uppgjörstilkynningu bankans segir að lækkunin
skýrist aðallega af hærri sköttum, sem hækki um tvo
milljarða króna milli ára. Bankinn hafi greitt 8,7 millj-
arða í tekjuskatt og sérstaka skatta á fjármálafyrirtæki
á fyrstu níu mánuðum ársins. „Lækkun á vaxtamun og á
verðbréfamörkuðum hefur áhrif til lækkunar á tekjum
en á móti kemur virðisaukning útlána, meðal annars
vegna hratt lækkandi vanskila.
Bæði inn- og útlán hafa vaxið töluvert sem er til marks
um vaxandi umsvif í hagkerfinu,“ segir Steinþór Páls-
son, bankastjóri Landsbankans, í tilkynningunni. - hg
Afkoma Landsbankans á þriðja ársfjórðungi jákvæð en hagnaður minnkar:
Hagnaður 5,1 milljarður króna
BANKASTJÓRINN Steinþór Pálsson segir rekstur
Landsbankans hafa gengið vel fyrstu níu mánuði
ársins. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
HEILBRIGÐISMÁL Ávísunum á sterk verkjalyf fjölgaði um fimm prósent
milli áranna 2012 og 2013, að því er segir á vef Landlæknisembættisins.
Ávísunum lyfja sem innihalda Oxycodon fjölgaði. Árið 2013 kom á mark-
að samheitalyf verkjalyfsins OxiContin sem bæst hefur í flokk sterkra
ávanabindandi lyfja á ólöglega vímuefnamarkaðnum hér á landi.
Ólafur Einarsson, verkefnisstjóri lyfjagagnagrunns hjá Landlækni,
segir ávísunum á OxiContin hafa fækkað á tímabilinu eða úr 60.073 dags-
kömmtum í 45.756. Dagskammar samheitalyfsins hafi verið 32.115 árið
2013 þannig að samtals hafi dagskammtar lyfja sem innihalda Oxycodon
verið nær 78 þúsund árið 2013. Langmest er ávísað af Parkodin forte af
sterkum verkjalyfjum. Árið 2012 var ávísað 978 þúsund dagskömmtum
en rúmlega milljón í fyrra. - ibs
Samantekt Landlæknis á umfangi ávísana lyfjategunda:
Ávísað oftar á sterku verkjalyfin
LYF Langmest er ávísað af Parkodin forte í flokki sterkra verkjalyfja.
VEISTU SVARIÐ?