Fréttablaðið - 07.11.2014, Side 10
7. nóvember 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 10
ÍSRAEL Avigdor Libermann, utan-
ríkisráðherra Ísraels, gagnrýn-
ir harðlínuþingmenn á ísraelska
þinginu fyrir að notfæra sér í
eigin þágu þá spennu, sem und-
anfarið hefur magnast upp í Jerú-
salem.
Þeir hafi orðið sér úti um
athygli „með ódýrum hætti“
þegar þeir héldu upp á Musteris-
hæðina til að fara þar með bænir.
Á Musterishæðinni er einnig Al
Aksa-moskan, ein helgasta bygg-
ing múslima og hafa svæði gyð-
inga og múslima á hæðinni og við
hana verið rammlega aðgreind.
Hæðinni var lokað fyrr í vik-
unni vegna vaxandi spennu og
hafa jafnt múslimar og gyðingar
verið afar ósáttir við þá ráðstöfun.
Á miðvikudagskvöldið ók Palest-
ínumaður bifreið inn í mannfjölda
á lestarstöð skammt frá hæðinni,
með þeim afleiðingum að ein kona
dó og margir slösuðust. Lögregla
skaut hann síðan til bana.
Svipuð árás var gerð á þriðju-
daginn á Vesturbakkanum þegar
Palestínumaður ók inn í hóp ísra-
elskra hermanna með þeim afleið-
ingum að þrír þeirra særðust.
Ökumanninum tókst að flýja af
vettvangi.
Benjamín Netanjahú, forsætis-
ráðherra Ísraels, kennir Mahmúd
Abbas, forseta Palestínu, um árás-
ina í Jerúsalem, segir bæði hann
og leiðtoga Hamas hafa verið með
hatursáróður og hvatt til ofbeldis:
„Við erum í langvarandi baráttu
í Jerúsalem,“ segir Netanjahú.
„Ég efast ekki um að við munum
sigra.“
Stóraukið landrán ísraelskra
harðlínumanna á herteknu svæð-
unum í Jerúsalem og víðar á samt
ekki hvað minnstan þátt í vaxandi
spennu undanfarið, ásamt eilífum
vonbrigðum með að hvorki gangi
né reki í friðarviðræðum.
Abdullah Jórdaníukonungur
kallaði á miðvikudag sendiherra
sinn heim frá Ísrael eftir að ísra-
elska lögreglan réðst inn á hin
helgu svæði múslima í austur-
hluta Jerúsalem, en þeir Netan-
jahú ræddust svo við í síma í gær
til að finna leiðir til að lægja öld-
urnar. gudsteinn@frettabladid.is
Spennan vex í Jerúsalem
Deilur Ísraela og Palestínumanna um helga staði í austurhluta Jerúsalem hafa magnast dag frá degi. Á mið-
vikudag ók Palestínumaður inn í mannfjölda á lestarstöð, drap þar einn og slasaði marga en var svo skotinn.STJÓRNMÁL Einar K. Guðfinnsson,
forseti Alþingis, hefur þegið boð
um að vera aðalræðumaður og
flytja setningarávarp fjölþjóðlegr-
ar ráðstefnu sem haldin verður
í Berlín dagana 7. til 10. nóvem-
ber í tilefni þess að 25 ár eru liðin
frá falli Berlínarmúrs-
ins. Ráðstefnan er
skipulögð af Insti-
tute for Cultural
Diplomacy. Auk
Einars munu Hall-
dór Ásgrímsson,
fyrrverandi forsæt-
isráðherra, og Árni
Svanur Daníelsson
prestur flytja
ávörp. - aí
Mun flytja setningarávarp:
Forseti Alþingis
til Þýskalands
VIÐSKIPTI Alþjóðabandalag rann-
sóknarblaðamanna (ICIJ) birti á
miðvikudag lista yfir 343 fyrir-
tæki sem eru sögð hafa notað Lúx-
emborg sem skattaskjól.
Á listanum má finna erlend
stórfyrirtæki á borð við Amazon,
Ikea, Heinz og FedEx. Fullyrt er
að fyrirtæki hafi komist hjá skatt-
greiðslum í þeim löndum þar sem
þau afla tekna.
Nafn Arion banka er á listan-
um. Haraldur Guðni Eiðsson, for-
stöðumaður samskiptasviðs bank-
ans, segir ICIJ misskilja tengingu
bankans við gamla Kaupþing.
Bankinn greiði alla sína skatta hér
á landi. - hg
Ruglast á Kaupþingi og Arion:
Birta lista yfir
félög í skjólum
ÍSRAELAR MÓTMÆLA Ísraelskir hægrimenn komu saman í Jerúsalem í fyrrakvöld
eftir að Palestínumaður hafði ekið þar á hóp fólks á lestarstöð. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
PALESTÍNUMENN MÓTMÆLA Stuðningsmenn Hamas komu saman í bænum Ramallah
á Vesturbakkanum í gær og hrópuðu: „Al Aksa-moskan okkar er ekki musterið þeirra.“
Við erum í langvar-
andi baráttu í Jerúsalem
Ég efast ekki um að við
munum sigra.
Benjamín Netanjahú,
forsætisráðherra Ísraels.
Nordic Playlist með
Símanum og Spotify
Upplifðu norræna tónlist á Laugavegi
eða í Sjónvarpi Símans
Nordic Playlist í samstarfi við Símann og Spotify
verða með Pop Up Radio Bar að Laugavegi 91,
dagana 7.–9. nóvember.
Komdu og fylgstu með því hvað erlent og íslenskt
útvarpsfólk hefur að segja um norræna tónlist.
Bein útsending verður í Sjónvarpi Símans á rás
230 og á siminn.is/nordic-playlist/
Föstudagur
12:15 - 13:00 Francine Gorman Nordic Playlist
13:00 - 14:00 Matthías Már Magnússon Rás 2
14:00 - 15:00 Þuríður Blær Reykjarvíkurdætur
15:00 - 15:30 Jaakko Eino Kalevi Tónleikar
15:30 - 16:30 Orri Freyr Rúnarsson X977
16:30 - 17:30 Jonas Verwijnen Kaiku Studios
17:30 - 18:30 Shell Zenner Amazing Radio
18:30 - 19:30 Kasper Bjørke
Laugardagur
12:00 - 13:00 Francine Gorman Nordic Playlist
13:00 - 14:00 Huw Stephens BBC Radio
14:00 - 15:00 Salka Sól Eyfield Rás 2
15:00 - 16:00 Juhani Kenttämaa YleX
16:00 - 17:00 Ametist Azordegan P3 - SR
17:00 - 18:00 Jan Sneum P6 - DR
18:00 - 18:30 Ásgeir Tónleikar
18:30 - 19:30 Christine Dancke P3 - NRK
Sunnudagur
12:00 - 13:00 Francine Gorman Nordic Playlist
13:00 - 14:00 Simone Raymonde Bella union
14:00 - 15:00 Melanie Gollin Flux FM
15:00 - 15:30 Byrta Tónleikar
15:30 - 16:30 Per Sinding Larsen SVT & PSL
17:00 - 18:00 Ólafur Páll Gunnarsson Rás 2