Fréttablaðið - 07.11.2014, Page 16
7. nóvember 2014 FÖSTUDAGURSKOÐUN
HALLDÓR
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is AÐSTOÐARFRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is VIÐSKIPTI: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Erla Björg Gunnarsdóttir erla@frettabladid.is
MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason, kolbeinntumi@365.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI: Sævar Freyr
Þráinsson ÚTGEFANDI OG AÐALRITSTJÓRI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI:
Sigurjón M. Egilsson sme@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á
höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið
áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871
FRÁ DEGI
TIL DAGS
Hvað með Siggu á borði 22?
Fréttablaðið hefur sagt frá stór-
bættum hag íslensks sjávarútvegs.
Ekki er að efa að það fólk sem vinnur
að nýjum afurðum, nýjum tekjum, fái
umbun erfiðis síns. Skárra væri það
nú. Um árið söng Bubbi Morthens
um Siggu á borði númer 22, sem
hætti í gær, í texta Bubba. Sigga og
stallsystur hennar njóta seint góðrar
afkomu. Laun þeirra eru ákveðin á
fundi peningastefnunefndar Seðla-
bankans. Þrjú þúsund krónur
eru hámarkshækkun, segir
í frétt úr Svörtuloftum.
Allt bendir til að Sigga og
stallsystur hennar verði
áfram hálfdrættingar
í launum miðað við
stallsystur sínar í
Noregi.
Það hvessir, það lygnir
Að venju er þess beðið, eftir að pen-
ingastefnunefnd Seðlabankans hefur
talað og gefið út hverjar launabreyt-
ingar láglaunafólks megi mestar
verða, að umræðan hefjist. Vilhjálm-
ur Birgisson á Akranesi fer oftast þar
fremstur og hann mun tjá sig um
ákvörðun Seðlabankans, ákvörðun
sem mun trúlega halda, sama hvað
hver segir eða æpir. Allt er óbreytt og
þó einn og einn rífi kjaft í hánorður,
eins og sagt var á sjónum áður fyrr.
Eins og segir í laginu: „Það hvessir
/ það rignir / en það styttir alltaf
upp og lygnir.“ Einmitt, það lygnir.
Hvað sem orðhvössustu menn
segja má reikna með að ekkert
breytist og áfram ráði
Seðlabankinn
launaþróuninni.
Taka Reykjavík yfir
Alþingismaðurinn Höskuldur Þór
Þórhallsson, ásamt fleiri þingmönn-
um, undirbýr að nota afl Alþingis
til að taka yfir vald borgarstjórnar
Reykjavíkur, eða hluta þess, þar sem
þingmennirnir eru ekki sáttir með
stjórnun lýðræðiskjörinnar borgar-
stjórnar. Sem betur fer eru ekki
mörg fordæmi um ámóta inngrip af
hálfu þingsins. Eitt er að vera á móti
vilja borgarinnar, hitt er annað og
vafasamara mál að ímynda sér að
meirihluti alþingismanna sé
betur til þess fallinn að ráða
hvar eigi að byggja, hvar eigi
að lenda flugvélum og þess
háttar. Afstaðan sýnir hvað
misvægi atkvæða getur
verið mikið mál.
sme@frettabladid.is
Þetta er ekki fyrsta greinin sem við
undirrituð sendum frá okkur í tilefni af
alþjóðlegum degi gegn einelti, 8. nóvem-
ber. Upphaflega áttum við samræður um
einelti á árinu 2009 þegar annað okkar
var heilbrigðisráðherra og hitt aktívisti
sem beitti sér fyrir aðgerðum gegn ein-
elti, þar á meðal að komið yrði á raun-
verulegu samstarfi milli ráðuneyta um að
takast á við eineltisvandann í skólum, á
vinnustöðum og í þjóðfélaginu. Samráðs-
hópur varð til og síðar var fagráðið sett á
laggirnar, sem án efa hefur haft þýðingu
málefninu til framdráttar.
Úrræðaleysinu að bráð
Sama má segja um þá aðila aðra sem hafa
beitt sér í baráttunni gegn einelti og alla
þá einstaklinga sem stigið hafa fram og
sagt frá reynslu sinni svo draga megi af
henni lærdóma. Slík framganga krefst
mikils hugrekkis og er lofsverð.
Þrátt fyrir allt þetta þrífst eineltið og
verður oftar en ekki úrræðaleysinu að
bráð. Eða viljaleysinu. Staðreyndin er sú
að ráðuneyti, stofnanir, skólar og fyrir-
tæki ráða illa við einelti og kynferðis-
áreiti. Stundum er neitað að ræða vand-
ann, meðal annars á þeim forsendum að
það sé ekki í verkahring viðkomandi að
ræða eða takast á við „einstök mál“. Þann-
ig talar fólk á flótta.
Hringjum bjöllum!
Morgundagurinn, 8. nóvember, er hugs-
aður til að halda okkur við efnið. Þess
vegna eru allir sem vettlingi geta valdið
hvattir til að hringja bjöllum eða þeyta
flautur, um allt land, helst um allan heim,
á slaginu 13.00 í sjö mínútur, eina mínútu
fyrir hvern dag vikunnar.
Með þessu móti sýnum við táknræn-
an stuðning við fórnarlömb eineltis og
heitstrengingu um að rjúfa þögnina sem
hefur lengi umleikið einelti. Við neitum
að standa þögul hjá og reynum heldur að
hafa góð áhrif á okkar eigið umhverfi.
Við leitumst við að bera virðingu fyrir
fjölbreytileikanum og beita ekki valdi í
samskiptum. Það á við um einelti eins og
mörg þjóðfélagsmein að það krefst stöð-
ugrar árvekni að ná árangri í glímunni
við þau.
Hringjum bjöllum og þeytum horn
klukkan eitt á morgun. Vekjum samfé-
lagið, vöknum sjálf.
Þeytum fl autur gegn einelti
og kynferðisofbeldi
SAMFÉLAG
Helga Björk
Magnúsd.
Grétudóttir
tónlistarkennari og
aktívisti
Ögmundur
Jónasson
alþingismaður
N
ú stendur yfir Iceland Airwaves í Reykjavík. Um
er að ræða sannkallaða tónlistarveislu sem vaxið
hefur ár frá ári allt frá árinu 1999 þegar fyrsta
hátíðin var haldin.
Hátíðin hófst á miðvikudag og stendur alla
helgina. Eitthvað um 220 listamenn eru sagðir koma fram á
hátíðinni, þar af um 70 erlendar sveitir. Er þá ótalinn fjöldi
uppákoma sem fram fer utan dagskrár. Og líkt og undanfarin
ár er uppselt á hátíðina. Ekki
þarf að fjölyrða um hvað þessi
innspýting er mikilvæg fyrir
bæði efnahags- og menningarlíf
landsins.
Raunar er allangt síðan rann
upp fyrir ráðamönnum þjóðar-
innar að eftir einhverju kynni
að vera að slægjast í tónlistar-
geiranum, kannski svo langt að það hafi gleymst aftur.
Árið 1997 var nefnilega unnin fyrir iðnaðar- og viðskipta-
ráðuneytið skýrslan „Íslenskur tónlistariðnaður – aukin
sóknarfæri“. Með dæmið um velgengni tónlistarkonunnar
Bjarkar Guðmundsdóttur og hylli á alþjóðavettvangi áttuðu
menn sig á að tónlistargeiranum væru engin vaxtartakmörk
sett og að útflutningur á tónlist gæti aflað landinu tekna.
„Það er ljóst að jafnvel þótt einhver aukning verði á sölu
hljómplatna hér á landi breytir það ekki þeirri staðreynd að
Ísland er og verður „dvergmarkaður“,“ segir í skýrslunni og
bent á að þá þegar hafi salan á fyrstu tveimur plötum Bjarkar
numið liðlega nífaldri árlegri heildarveltu íslenska hljómplötu-
markaðarins.
Og margir íslenskir tónlistarmenn hafa líka gert það gott í
útlöndum. Nærtæk nýleg dæmi eru sveitir á borð við Of Monst-
ers and Men og Skálmöld. Svo má líka rifja upp gengi sveita á
borð við Sigur Rós, LHOOQ, GusGus, Leaves, Sykurmolanna og
Mezzoforte (sem kannski ruddi brautina).
Í skýrslu starfshópsins sem skilaði niðurstöðu sinni 1997
kemur fram að höfundarnir áttuðu sig á því að forsenda fyrir
útflutningi á tónlist væri gróskumikið tónlistarlíf hér á landi.
Og grunnurinn að öflugu tónlistarlífi er lagður í tónlistar-
skólum landsins. Meira að segja Björk þurfti eitthvað að læra,
en hún hóf tónlistarferilinn með píanónámi ellefu ára gömul.
Þótt dæmi séu um einstaka undrabörn á tónlistarsviðinu þá
eru hæfileikar alls fjöldans ekki úr lausu lofti gripnir.
Með þetta í huga er heldur önugt til þess að hugsa að tón-
listarkennarar hafa nú verið í verkfalli í tvær vikur.
Er von til þess að fulltrúar sveitarfélaganna sem semja eiga
við tónlistarkennara um kaup og kjör horfi á heildarmyndina,
sem liggur einhver staðar utan Excel-skjalsins?
Ekki er nokkur leið til að rökstyðja að tónlistarkennarar eigi
að þola lakari kjör en aðrir kennarar. Tími er kominn til að
rétta þeirra hlut og hætta þessari vitleysu.
Í dag á að setjast aftur að samningaborðinu eftir hlé. Von-
andi er ekki of mikil bjartsýni að saman náist áður en Iceland
Airwaves-hátíðin er á enda runnin. Það færi vel á því.
Verkfallsskuggi yfir hátíð Iceland Airwaves:
Tónlistin auðgar
sem aldrei fyrr
Óli Kristján
Ármannsson
olikr@frettabladid.is
ht.is
Næsta bylgja
sjónvarpa er
komin
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT
AKRANES • AKUREYRI • HÚSAVÍK • EGILSSTAÐIR • SELFOSS • REYKJANESBÆR • REYKJAVÍK
Philips Ambilight
sjónvarp með
Android stýrirkerfinu