Fréttablaðið - 07.11.2014, Page 34
10 • LÍFIÐ 7. NÓVEMBER 2014
G
unnar Már Sigfússon venti kvæði
sínu í kross og fór úr því að vera
einn vinsælasti einkaþjálfari
landsins í að vera einn vinsæl-
asti og söluhæsti matreiðslubóka-
höfundur hér á landi. Meðfram því að vera
að skrifa nýja bók er Gunnar með námskeið
á netinu sem kennir fólki að hætta að borða
sykur á sex vikum. Viðtökurnar hafa farið
fram úr öllum væntingum og er Gunnar með
íslenska þátttakendur um heim allan. „Sykur-
neysla er greinilega hafin yfir landamæri og
sykurvandamálið er ekki bundið við Ísland,
þetta er alheimsvandamál. Ég er með íslenska þátttak-
endur um allan heim; í Dubai, Noregi, Spáni og víðar,“
segir Gunnar.
Sykur helsta orsök lífsstílssjúkdóma
Árleg sykurneysla á hvern Íslending er talin vera um
sextíu kíló á ári og er það álit margra að neyslan sé
okkar helsta lýðheilsuvandamál og orsök algengustu
lífsstílssjúkdóma sem mannfólkið glímir við á vest-
rænum slóðum. „Fyrir mér er það alveg ljóst að sykur
er helsti sökudólgur algengustu lífsstílssjúkdómanna.
Heilbrigðiskerfið þolir engan veginn aukna tíðni þess-
ara sjúkdóma og nú er bara kominn sá tími sem við
verðum hvert og eitt okkar að taka ábyrgð á neyslu
okkar og minnka verulega sykurneysluna. Þetta er
kannski heldur mikil einföldun á málinu en ég held að
allir séu sammála um að þetta væri risaskref í rétta
átt og gæti verið góð byrjun á fleiri jákvæðum breyt-
ingum sem við getum öll gert,“ segir hann og bætir
við að með námskeiðunum vilji hann leggja sitt lóð á
vogarskálarnar. „Ég er búinn að vera í heilsubransan-
um í yfir tuttugu ár svo sykur er eitthvað sem ég hef
meirihluta ævinnar takmarkað neyslu á og mælt með
því að aðrir geri slíkt hið sama. Það er búin að vera
svo hröð þróun í sykurneyslunni á undanförnum ára-
tugum. Að mínu mati er þetta stærsta heilsuógn sem
við höfum staðið frammi fyrir nokkurn tímann. Með
þessum námskeiðum vil ég leggja mitt af mörkum
þótt margt fleira þurfi að koma til. Það þarf þjóðará-
tak gegn sykurneyslu,“ segir hann.
Þarf að taka á rót vandans
Námskeiðið Hættu að borða sykur er sem
fyrr segir einungis haldið á netinu en það
gerir nútímamanneskjunni auðveldara fyrir
að nálgast námskeiðin á sínum forsendum
og tíma. Daglega fá þátttakendur póst sem
fræðir þá um hvernig hægt sé að hætta eða
takmarka neyslu sykurs, sykurlausar upp-
skriftir, sem og fræðslu um skaðsemi syk-
ursins og í hvaða matvöru hann sé að finna.
„Ég er sannfærður um það að ef vel á að
takast þarftu að vita hvar sykur er að finna
í neysluvörunum og geta þannig valið vörur sem
innihalda minna af sykri. Ég held að fáir geti tekið
þetta á hnefanum og bara hætt að borða sykur til
frambúðar, það þarf meira að koma til, það þarf
að taka löngunina út úr þessu öllu saman og það
er gert með því að borða rétt samsetta fæðu sem
tekur á rót vandans, lönguninni í sykur,“ segir
Gunnar.
Sykurminna 2015
Námskeiðin hafa fengið góð viðbrögð og virð-
ist sem ekkert lát sé á eftirspurninni. „Það skín í
gegn að allir þeir sem hafa tekið þátt í námskeið-
inu eru meðvitaðri um hvar sykur er að finna og
hversu skaðlegur hann er í raun. Fólk er farið að
hugsa þetta öðruvísi og kaupa öðruvísi inn og það
er heila málið. Mörgum hefur tekist að hætta syk-
urneyslu og aðrir hafa stórminnkað hana og það er
frábært að heyra frá fólki að hugarfarið sé breytt
og hugsunarlaust sykurát sé á undanhaldi,“ segir
Gunnar og kveðst sannfærður um að það að hætta
í sykri muni auka lífsgæði allra sem það gera og
bæta heilsu þeirra. „Ég finn að þessi viðbrögð sem
ég er að upplifa frá fólki eftir þessar vikur tvíefla
mig í þessum málum og nú er bara að spýta í lófana
og gera enn betur,“ segir hann að lokum og vonast
til þess að árið 2015 verði árið sem Íslendingar taki
sig saman, minnki meðvitað sykurneyslu sína og
taki með því skref í átt á betri heilsu og lífsgæðum.
ÞAÐ ÞARF
ÞJÓÐARÁTAK GEGN
SYKURNEYSLU
GUNNAR MÁR SIGFÚSSON segir sykurinn vera helsta og erfiðasta
andstæðinginn sem mannkynið hefur þurft að kljást við. Hann sé ein
helsta orsök algengustu lífsstílssjúkdómanna og nú sé kominn sá tími þar
sem hver og einn þarf að taka ábyrgð á eigin neyslu.
Gunnar Már
Sigfússon
SYKURLAUSA SÚKKULAÐIKAKA
GUNNARS MÁS
Einföld og
bragðgóð
súkkulaði-
kaka sem
einfalt er að
leika eftir
200 g 85% dökkt
súkkulaði (því dekkra
súkkulaði því minna
um sykur)
200 g smjör
1 dl sukrin-sætuefni
1 tsk. vanilludropar
4 egg
Hitaðu ofninn í
200°C. Settu súkkul-
aðið og smjörið í pott
og bræddu á lágum
hita.
Gunnar vill að Íslendingar
leggi frá sér sykurinn.
NORDICPHOTOS/GETTY
1 2
3 4
5 6
7 8
9 10
Lækjargata 2a og Vesturgata 2a 101 Reykjavík
METSÖLULISTI IÐU
Koparakur
Gyrðir Elíasson
Náðarstund
Hannah Kent
Kata
Steinar Bragi
Lína langsokkur:
allar sögurnar
Astrid Lindgren
Knúsbókin
Jóna Valborg
& Elsa Nielsen
Ljómandi!
Þorbjörg
Hafsteinsdóttir
28.10.14 - 04.11.14
Ástríkur og
víkingarnir
Goscinny & Uderzo
Skrímslakisi
Áslaug Jónsdóttir o.fl.
Maðurinn sem
stal sjálfum sér
Gísli Pálsson
You Are Nothing
Hugleikur
Dagsson