Fréttablaðið - 07.11.2014, Blaðsíða 36
12 • LÍFIÐ 7. NÓVEMBER 2014
1. Þegar ég var 10 ára fékk
ég miða frá Binna bekkjarbróður
mínum þar sem hann spurði hvort
ég vildi byrja með sér. Ég krossaði
við já. Daginn eftir fékk ég miða um
að við værum búið spil og að hann
væri byrjaður með Önnu bestu vin-
konu minni!
2. En núna er ég næstum komin
yfir þetta.
3. Ég mun eflaust aldrei skilja
hvernig hann gat gert mér þetta.
4. Ég hef ekki sérstakan áhuga
á fíkniefnum. Kids, don’t do drugs!
5. Karlmenn eru flottir nema
Binni, hann er hálfviti!
6. Ég hef lært að maður á alls
ekki að vera í hvítum buxum þegar
maður er á túr.
7. Ég fæ samviskubit þegar
ég gleymi mikilvægum atburðum í
lífi ástvina minna, eins og þegar ég
gleymdi ellefu ára afmæli Brynjólfs,
litli bróður míns. Hann verður senni-
lega aldrei aftur ellefu ára :(
8. Ég slekk á sjónvarpinu
þegar ég má. Ég á ekki sjónvarp.
Horfi bara á Sarpinn. Þá get ég
líka horft aftur og aftur, spólað til
baka og hoppað yfir atriði. Hæpið
er snilld og Hraðfréttir maður! Og
Landinn.
9. Um þessar mundir er ég
mjög upptekin af Airwaves og því
að vera kynnir á Skrekk. Sem rapp-
etta í Reykjavíkurdætrum er ég að
rappa utandagskrár á laugardag
og á Húrra á sunnudag. Svo er ég
líka að hugsa mjög mikið um hvern-
ig ég get sigrað hjarta Binna aftur.
Binni, ef þú ert að lesa þetta, viltu
byrja með mér?
10. Ég vildi óska þess að
fleiri vissu af Facebook og væru
búnir að fara þar inn og like-a Þrjár
basískar sem eru hluti af Reykjavík-
urdætrum.
BIÐLAR TIL BINNA
BEKKJARBRÓÐUR
Stíllinn minn er frekar
einfaldur, ég fell oftast
fyrir dökkum fötum og
fallegum efnum og er
eiginlega alltaf í svörtu.
Ég reyni að kaupa
bara föt sem ég veit
að ég á eftir að nota
og munu endast vel. Á
Íslandi kaupi ég öll mín
föt í Aftur, Jör, Evu og
Urban í Kringlunni. Það
sem veitir mér mestan
innblástur þegar kemur
að fatavali og stíl er
tíðarandinn og tónlistin
sem ég hlusta á hverju
sinni.
FATASKÁPURINN
NATALIE G.
GUNNARSDÓTTIR
Tónlistarmaðurinn og plötusnúðurinn Natalie
G. Gunnarsdóttir segist alltaf vera í svörtu
10 SPURNINGAR
1
2
5
4
3
Ég er þó ekki mikið fyrir trend,
finnst þau áhugaverð en er mögulega
uppfull af mótþróa og fer yfirleitt í öfuga átt.
Skyrtan er úr Jör
og jafnframt úr
hör. Mæli með því
að fólk næli sér í
skyrtu úr hör, lífið
er ekki eins eftir
það.
Húfan er keypt í Berlin þegar
við Júlíana Einarsdóttir, vin-
kona mín, vorum þar á loð-
húfuveiðum.
Trefillinn er úr
versluninni Evu.
Hann er hreint út
sagt frábær fyrir
þennan komandi
íslenska vetur. Fer
ekki út án hans.
Sokkarnir eru glænýir og prjónað-
ir af elskulegri ömmu minni, Guð-
ríði Jensdóttur. Ég er í skýjunum
yfir þeim og hlakka til að ganga
inn í íslenska veturinn í þeim.
CP Shades-kápa sem ég var
að fá úr búðinni Aftur. Hún er
úr mjúku og afskaplega þægi-
legu efni. Hún er framleidd í
San Francisco og það fengu
allir sína VR-pásu við gerð
hennar. Hún er í miklu uppá-
haldi.
Steiney Skúladóttir, fréttamaður í Hraðfréttum
og Reykjavíkurdóttir