Fréttablaðið - 07.11.2014, Page 52
7. nóvember 2014 FÖSTUDAGUR| LÍFIÐ | 32
Iceland Airwaves hafi n í borginni
Tónlistarhátíðin vinsæla Iceland Airwaves hófst með pompi og prakt í fyrradag með tónleikum víða um Reykjavíkurborg. Búist er við
um 50 þúsund gestum á hátíðina, bæði á utandagskrárviðburði og þá tónleika sem eru á aðaldagskránni. Alls voru rúmir 9.000 miðar í
boði og þar af voru í kringum 5.000 keyptir af útlendingum. Ljósmyndari Fréttablaðsins tók púlsinn á stemningunni þetta kvöld.
SIN FANG Sindri Már Sigfússon, forsprakki Sin Fang, uppi á
sviði í Silfurbergi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
ÁHORFENDUR Fjöldi áhorfenda mætti í Hörpu og þessir
fylgdust grannt með uppi við sviðið.
MEÐ HNÉHLÍFAR Hnéhlífar eru mikilvægur hluti af góðri
sviðsframkomu eins og sannaðist í fyrrakvöld.
SKOÐAR SÍMANN Síminn er aldrei langt undan á tónleikum Iceland Airwaves frekar en á
öðrum tónlistarhátíðum.
LEAVES Arnar Guðjónsson, forsprakki
hljómsveitarinnar Leaves, uppi á sviði.
INNLIFUN Sungið var af mikilli einlægni og
innlifun í Hörpu.
FM BELFAST Hljómsveitin FM Belfast var í miklu stuði í
Gamla Bíói eins og sjá má.
MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER
TÓNLIST ★★★★ ★
Ásgeir
Iceland Airwaves
HARPA SILFURBERG
Fjölmennt var í Silfurbergi í Hörpu
þegar Ásgeir, áður þekktur sem
Ásgeir Trausti, steig á svið ásamt
fríðu föruneyti. Auk hefðbundinna
hljóðfæraleikara í poppgeiranum
var kallaður til strengjakvartett
auk blástursþríeykis sem gerði
tónleikana þeim mun þéttari og
skemmtilegri.
Tónlist Ásgeirs er ekki beint
til þess fallin að kalla fram dans-
hvatir hjá fólki og var stemning-
in róleg eftir því. Greinilegt var
að margir vildu heyra í söngvar-
anum 22 ára frá Laugarbakka,
sem skaust upp á stjörnuhimininn
fyrir tveimur árum með útgáfu
plötu sinnar Dýrð í dauðaþögn.
Þurftu sumir að bíða lengi fyrir
utan salinn og á göngum Hörpu,
svo löng var röðin.
Margir hverjir fengu eflaust
valkvíðahnút í magann að þurfa að
velja á milli Ásgeirs og Leaves sem
spiluðu samtímis í Norðurljósasaln-
um. Lítil ferð var á gestum sem
voru greinilega sáttir við val sitt.
Tveir háværir Danir kepptu um
tíma við Ásgeir um athygli mína
en smá færsla innan skarans kom
mér nær söngvaranum einlæga.
Sem betur fer.
Ásgeir byrjaði á nýrri og minna
þekktum lögum sem fengu fínar
viðtökur hjá tónleikagestum. Fólk-
ið sötraði sitt öl, sumir lygndu aftur
augum, einn og einn sveiflaði hönd-
um en aðrir hreyfðu hausinn. Eftir
því sem á tónleikana leið fóru kunn-
uglegri lög að heyrast og fögnuðu
tónleikagestir þegar lagið Leynd-
armál fór í gang. Hápunkturinn
fyrir flesta var vafalítið þegar fal-
legu píanóhljómarnir í lokalaginu,
Nýfallið regn, heyrðust. Stórbrotið
lag og ljóst að Ásgeir hefði fengið
langt uppklapp ef ekki hefði verið
vegna óskrifaðra reglna um engin
aukalög á Airwaves.
Þegar ég sá Ásgeir á Airwaves
í fyrra stuðaði mig aðeins hve lítil
samskipti hans voru við áhorfend-
urna. Nú veit ég nákvæmlega hvar
ég hef hann. „Takk, thank you og
þetta er lokalagið okkar,“ voru
skilaboðin til tónleikagesta í gær.
Skilaboðin sem mestu skipta er tón-
listin sem var virkilega vel flutt,
bæði af Ásgeiri sjálfum og frábær-
um hljóðfæraleikurum á sviðinu.
Kolbeinn Tumi Daðason
NIÐURSTAÐA: Ásgeir klikkar ekki.
Falleg tónlist, flutt af einlægni og án
allrar tilgerðar.
Ásgeir hinn trausti, einlægur og án tilgerðar
ÁSGEIR Tónlistarmaðurinn Ásgeir Trausti stóð fyrir sínu í fyrrakvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
TÓNLIST ★★★★ ★
Svartidauði
Iceland Airwaves
GAMLA GAUKNUM
Svartidauði steig á svið og var
einstaklega þétt, en sveitin
spilar níðþungan, níhílískan og
öfgakenndan metal.
Kapparnir voru vígalegir
ásýndum með svarta máln-
ingu framan í sér að sönnum
svartmálmssið. Andrúmsloft-
ið á tónleikum með Svarta-
dauða er alltaf þrungið ein-
hverri illsku og orku. Þó að
enginn almennilegur „pittur“
hafi byrjað á dansgólfinu þá
var það frekar vegna hóflátra
áhorfenda heldur en frammi-
stöðu sveitarinnar, sem bomb-
aði út þessu þrumandi sándi
sem hún er þekkt fyrir. Hér
er nefnilega um að ræða bestu
íslensku metalsveitina síðan
HAM var upp á sitt besta.
A-klassa málmur og tónlist sem
hæfir kirkjubrennu frekar en
barnaafmæli. Þórður Ingi Jónsson
NIÐURSTAÐA: Þrumandi
og öfgakenndur metall í heims-
klassa.
Besti
metallinn
eft ir HAM