Fréttablaðið - 08.11.2014, Side 2
8. nóvember 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 2
FRÉTTIR
GLEÐIFRÉTTIN FIMM Í FRÉTTUM SKÚRINGAKONUR OG LÆKNAVERKFALL
Giftingarhringurinn fannst í blóðmör Bjarkey Olsen Gunnars-
dóttir, þingmaður Vinstri
grænna, gagnrýndi á Alþingi
uppsagnir 18 ræstinga-
kvenna í Stjórnarráðinu á
Alþingi. Sagði hún litla reisn
yfi r aðgerðunum.
Agnes Anna Sigurðar-
dóttir, einn eigenda Brugg-
smiðjunnar Kalda, sagði
bruggsmiðjuna ætla að
opna bjórspa í Eyjafi rði úr
hreinsuðum sjó og Kalda.
Yngvi Pétursson, rektor
Menntaskólans í Reykjavík,
sagði að fækkun nemenda
við framhaldsskóla
gæti leitt til þess að
fækka þyrft i um
meira en 100 stöðugildi.
Þráinn Hafsteins-
son, yfi rþjálfari
frjálsíþróttadeildar
ÍR, sagði heimsklassa-
aðstöðu í Frjáls-
íþrótta-
höllinni lokaða í margar
klukkustundir á dag.
➜ Gylfi Arnbjörns-
son, forseti ASÍ, undr-
aðist umleitan
forsætisráðherra
um að fá að
heyra afstöðu
ASÍ til kröfu-
gerðar lækna
og sagði ekki
þýða að benda
á ASÍ í þeim
efnum.
Anna Guðný Egilsdóttir var að taka slátur fyrir ári
síðan ásamt vinkonu sinni og móður hennar þegar
hún lenti í því óhappi að tapa giftingarhringnum
sínum í blóðmörskepp. Akureyrarvefurinn greindi
fyrst frá. „Þetta var alveg ótrúlegt því það var verið
að segja mér sögu af konu sem hafði einmitt týnt
giftingarhringnum sínum þegar hún var að taka
slátur. Svo átta ég mig á því að ég er ekki með
hringinn minn lengur á fingrinum svo við byrjum
að leita að honum,“ segir Anna í samtali við Vísi.
Þrátt fyrir mikla leit fannst hringurinn ekki fyrr en
núna ári seinna að hann fannst djúpt inni í einum
blóðmörskeppnum. Ekki sést á hringnum þótt hann
hafi verið inn í blóðmörskepp í rúmt ár.
Aðventuferð til Vínarborgar
27. - 30. nóvember
VITA
Skógarhlíð 12
Sími 570 4444Flogið með Icelandair
Verð frá 89.900 kr.*
og 12.500 Vildarpunktar
á mann m.v.í tvíbýli á Hotel Artis.
Innifalið er flug og gisting með morgunverði.
*Verð án Vildarpunkta 99.900 kr.
STJÓRNSÝSLA Stjórn Strætó bs.
hefur ákveðið að selja Merce-
dez Benz-jeppann sem fyrirtæk-
ið keypti handa Reyni Jónssyni,
framkvæmdastjóra Strætó. Bif-
reiðin var keypt í sumar á 10,2
milljónir króna.
Ákvörðunin um að selja jeppann
var tekin á stjórnarfundi Strætó
á miðvikudag.
Í bókun stjórn-
arinnar segir
að kaupin hafi
ekki verið borin
undir stjórn
né stjór na r -
formann, eins
og komið hefur
fram í Frétta-
blaðinu. Kaupin samrýmist því
ekki þeim áherslum sem eigendur
Strætó hafi sammælst um í eig-
endastefnu fyrirtækisins.
„Rætt hefur verið við fram-
kvæmdastjóra og ákveðið hefur
verið að skila bílnum,“ segir í bók-
uninni.
Bryndís Haraldsdóttir, stjórnar-
formaður Strætó og bæjarfulltrúi
í Mosfellsbæ, segir enga ákvörðun
hafa verið tekna um hvenær bíll-
inn verður seldur.
„Framkvæmdastjórinn er
erlendis og ég geri ráð fyrir að
það verði farið í það
þegar hann kemur
heim. Við munum
þá fara yfir
hvernig þess-
um málum
verður hátt-
að. Í raun-
inni viljum
við einung-
is vísa í
þessa bókun okkar og teljum hana
segja allt sem segja þarf,“ segir
Bryndís.
Strætó keypti jeppann, sem er
af árgerðinni 2014, af bílaleig-
unni Hertz þann 30. júlí síðastlið-
inn. Reynir tók sjálfur ákvörðun
um að kaupa bílinn en jeppinn var
ekki skráður á fyrirtækið fyrr en
2. október.
„Af því að þetta
er bílaleigubíll
þurfti að gera
eitthvað hjá
Tollstjóra
sem ég veit
ekki alveg
hvað er. Það
er veg n a
þess sem
þetta tók
svona langan tíma,“ segir Reynir
og bætir við að ráðningarsamn-
ingur hans við Strætó geri ráð
fyrir að hann hafi afnot af bíl sem
sé í eigu fyrirtækisins.
„Mín persónulega afstaða er sú
að ég fékk áður bíl í hlunnindi, sem
var í sama verðflokki og þessi, og
hann hafði aldrei verið endurnýj-
aður á þessum níu árum sem liðin
eru. Á þeim grunni fór ég í endur-
nýjun á bílnum,“ segir Reynir.
Hann segist nokkuð sann færður
um að fyrirtækið fái jafngildi
kaupverðsins til baka.
„Ég get alveg lagt skilning í það
að fyrirtækið vilji ekki láta mig
hafa bíl í sambærilegum flokki og
ég hafði. En réttindin eru samn-
ingsbundin og það á þá eftir að
leysa úr því.“ haraldur@frettabladid.is
Stjórnin fyrirskipar
sölu forstjórajeppans
Tíu milljóna króna Mercedes Benz-jeppi sem framkvæmdastjóri Strætó hefur til
umráða verður seldur. Þetta ákvað stjórn fyrirtækisins en kaupin voru ekki borin
undir hana. Framkvæmdastjórinn taldi sig í fullum rétti þegar hann keypti bílinn.
SKOTLAND, AP Mikið sjónarspil gaf að líta við bæinn Gretna í Skotlandi
á fimmtudag. Þá mætti á svæðið fríður flokkur starra sem leggur leið
sína til Gretna tvisvar á ári, fyrst í febrúarmánuði og síðan aftur í
nóvember.
Haustheimsóknin að þessu sinni tók á sig sérlega skemmtilega
lögun þegar engu líkara var en að starraflokkurinn myndaði risa-
vaxinn, svartan hatt á himni í ljósaskiptunum. - gar
Risahattur sást á himni í skoskum ljósaskiptum:
Starrar bregða á leik við Gretna
LISTFLUG Engu var líkara en höfuðfat svifi um loftin blá. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
REYNIR JÓNSSON
MJÓDDIN Strætó bs. er í eigu sex sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
MERCEDES BENZ ML
KJARAMÁL Starfsmannafélag Kópa-
vogsbæjar hafnar tilboði sem
samninganefnd Sambands sveitar-
félaga lagði fram
í gær.
Starfsmanna-
félagið segir
„óskiljanlegt
að næststærsta
bæjar félag lands-
ins þverskall-
ist við að skrifa
undir tilbúinn
kjarasamning
við starfsmannafélagið, samning
þar sem nær öll kjara atriði eru
klár og samþykkt, vegna algers
aukaatriðis. Bæjaryfirvöld hika
ekki við að stefna þjónustu bæj-
arins við börn og eldri borgara í
algert uppnám, allt út af þráhyggju
embættismanna bæjarins gagnvart
félagafrelsi tuttugu félaga í Starfs-
mannafélagi Kópavogs.“ - vh
Starfsmenn hafna tilboði:
Embættismenn
sagðir ábyrgir
VIÐSKIPTI Icelandair Group var
með langmestu veltuna á síðasta
ári samkvæmt tímariti Frjálsrar
verslunar, 300 stærstu.
„Fyrirtækið velti 125 milljörðum
króna og er nokkuð langt í fyrir-
tækið í öðru sæti, Marel, sem er
með veltu upp á 107 milljarða
króna,“ segir í tilkynningu.
Í ritinu eru, þrátt fyrir heitið,
upplýsingar um yfir 500 fyrir-
tæki; hver greiða hæstu launin,
hafa flesta starfsmenn, eru með
mesta eigið féð, mesta hagnaðinn
og mestu veltuaukninguna. - óká
300 stærstu komið út:
Veltan var mest
hjá Icelandair
Nafn Velta
1. Icelandair Group 125,0
2. Marel 107,4
3. Promens 96,6
4. Landsbankinn 96,3
5. Icelandic Group 95,8
Heimild: Frjáls verslun
STÆRSTU FYRIRTÆKIN
ÁRMANN KR.
ÓLAFSSSON
STJÓRNMÁL „Ég mun ekki greiða atkvæði með
þessu. Ég er ráðherra sveitarstjórnarmála, fyrir
mér er þetta mjög helgur réttur sem okkur ber
að virða,“ sagði Hanna Birna Kristjánsdóttir
innanríkisráðherra í þættinum Ísland í dag á
Stöð 2 í gær.
Umræðuefnið var um frumvarp þingmanna
Framsóknarflokksins um að skipulagsvald yfir
Reykjavíkurflugvelli færist frá Reykjavíkur-
borg til ríkisins.
Hanna Birna sagði jafnframt að um þessar
mundir væri engin yfirstandandi vinna við að
loka flugvellinum eða taka ákvörðun um þriðju
flugbrautina.
Um vopnakaup Landhelgisgæslunnar sagði
Hanna Birna að það væri enginn ágreiningur um
það í íslenskum stjórnmálum að Íslendingar vilji
viðhafa eins lítinn vopnaburð og hægt er. „Það
er mín persónulega skoðun og ég held að það sé
skoðun flestra Íslendinga. Við erum friðelskandi
og viljum ekki að lögreglan beri almennt vopn,“
sagði Hanna Birna.
Hanna Birna sagði að kæmi í ljós að Land-
helgis gæslan þurfi að greiða fyrir vopnin yrði
þeim skilað aftur til Norðmanna. „Ég hefði
aldrei samþykkt að greiða fjórtán milljónir fyrir
þetta. Ef það var einhver misskilningur á ferð-
inni og þetta er ekki gjöf þá verður vopnunum
skilað.“ - hmp, fbj
Innanríkisráðherra telur að skipulagsvald eigi að vera hjá sveitarfélögum:
Vill ekki að lögreglan vopnist
VALDIÐ HJÁ SVEITARFÉLÖGUM Innanríkisráðherra telur
sjálfstæði sveitarfélaga vera helgan rétt. MYND/SKJÁSKOT