Fréttablaðið - 08.11.2014, Page 8
8. nóvember 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR |
FJARSKIPTI STEF hefur ekki beðið
fjarskiptafyrirtækin Snerpu,
Hringiðuna og Tölvun um að loka
fyrir aðgang að skráaskiptisíðunum
Deildu og Piratebay. Framkvæmda-
stjóri Snerpu ætlar ekki að loka á
síðurnar fyrr en lögbannsbeiðni
gagnvart fyrirtækinu liggur fyrir.
„Við höfum ekki heyrt orð frá
þessu fólki og þar af leiðandi erum
við ekkert í raun og veru að spá í
þessi mál. En við lokum ekki nema
okkur sé það fyrirskipað af dóm-
stólum og við höfum hvorki feng-
ið erindi frá héraðsdómi, STEF, né
neinum öðrum,“ segir Björn Davíðs-
son, framkvæmdastjóri Snerpu á
Ísafirði.
Sýslumaðurinn í Reykjavík hefur
lagt lögbann, að beiðni STEFs, á
Símann, Vodafone og Hringdu,
sem bannar fyrirtækjunum að veita
viðskiptavinum sínum aðgang að
Deildu.net, Piratebay.org og öðrum
tengdum síðum.
„Við erum á þeirri skoðun að
fjarskiptafyrirtækin eigi ekki að
skipta sér af þessum málum og svo
er auðvitað mjög auðvelt fyrir net-
notendur að komast fram hjá þess-
um lokunum eins og þær eru settar
fram,“ segir Björn.
Kristín Garðarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Tölvunar í Vest-
mannaeyjum, segir fyrirtækið ekki
hafa fengið neina beiðni um lokanir.
„Við erum á báðum áttum með
það hvort það eigi að loka á svona
síður en ef beiðnin berst verður
þetta tekið fyrir af stjórn fyrirtæk-
isins. Ég hef hins vegar stundum
sagt að það þurfi að loka póstinum
því það fara jú stundum eiturlyf í
gegnum póstinn,“ segir Kristín.
Guðmundur Kr. Unnsteins-
son, framkvæmdastjóri Hring-
iðunnar, staðfesti einnig í samtali
við Fréttablaðið að fyrirtækið hefði
ekki verið beðið um að loka á skráa-
skiptasíðurnar.
Guðrún Björk Bjarnadóttir, fram-
kvæmdastjóri Sambands tónskálda
og eigenda flutningsréttar (STEFs),
segir umfang málsins ástæðuna
fyrir því að STEF hafi ekki haft
samband við fyrirtækin.
„Þetta er svo umfangsmikið mál
að við höfum bara verið að vinna í
því að klára fyrst framkvæmdina
gagnvart stóru fyrirtækjunum en
þetta er á verkefnalistanum. Þetta
verður gert núna mjög fljótlega,“
segir Guðrún.
haraldur@frettabladid.is
8
ORKA NÁTTÚRUNNAR
Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík · Sími 591 2700 · www.on.is · on@on.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
4
4
4
9
Orka náttúrunnar framleiðir og selur rafmagn til allra landsmanna
á samkeppnishæfu verði. Við viljum nýta auðlindir af ábyrgð
og nærgætni og bæta lífsgæðin í nútíð og framtíð.
Fyrirtækið Biokraft hefur gangsett tvær vindmyllur í Þykkvabæ
sem munu skila allt að þremur gígavattstundum á ári, en það jafn-
gildir raforkuþörf um eittþúsund íslenskra heimila. Orkan frá vind-
myllunum er því hrein viðbót við það rafmagn sem ON framleiðir
í sátt og samvinnu við náttúruna.
Við hjá Orku náttúrunnar erum stolt af því að selja þessa vistvænu
orku til neytenda um allt land. Við óskum aðstandendum Biokraft
innilega til hamingju með þennan áfanga og hlökkum til áfram-
haldandi samstarfs og uppbyggingar í framtíðinni.
ORKA NÁTTÚRUNNAR ER NÚ
EINNIG FÁANLEG ÚR ÍSLENSKU ROKI
KJARAMÁL Bandalag háskólamanna
lýsir áhyggjum af horfum í starfs-
mannamálum Reykjanesbæjar.
Gerðar eru athugasemdir við
ákvörðun bæjaryfirvalda um að
grípa inn í ráðningarsamninga.
„Uppsögn fastra kjara, í formi
yfirvinnugreiðslna og aksturs-
samninga, snertir verulegan hluta
launa margra starfsmanna og
getur falið í sér að forsendur ráðn-
ingar bresti,“ segir BHM. - fbj
Áhyggjur af Reykjanesbæ:
BHM varar við
kjaraskerðingu
HÖNNUN Íslenska fyrirtækið Tuli-
pop sem hannar ævintýraheim
fyrir börn hlaut í gær þrenn verð-
laun frá Junior Design Awards,
einum virtustu verðlaunum á sviði
hönnunarvara fyrir börn í Bret-
landi. Tulipop fékk viðurkenn-
ingu fyrir bestu innanhúsvörulín-
una, bestu borðbúnaðarvöruna og
besta snjallforritið. Fyrirtækið var
stofnað 2010 af Signýju Kolbeins-
dóttur, vöruhönnuði og teiknara,
og Helgu Árnadóttur, tölvunar-
fræðingi og MBA. Þær selja vörur
sínar til átta landa utan Íslands. - fbj
Fengu þrenn bresk verðlaun:
Tulipop fær
viðurkenningar
Hafa ekki verið beðin um að
loka á Deildu og Piratebay
Framkvæmdastjórar þriggja fjarskiptafyrirtækja hafa ekki verið beðnir um að loka fyrir aðgang að skráaskipta-
síðunum Deildu og Piratebay. STEF segir umfang málsins ástæðuna og að haft verði samband við fyrirtækin.
LAUNAKOSTNAÐUR MINNKAÐUR
Bæjarráð Reykjanesbæjar ákvað í fyrra-
dag að takmarka yfirvinnu starfsmanna.
DEILDU.NET
Nokkur fjar-
skiptafyrirtæki
hafa nú lokað
á síðurnar en
lögbann Sýslu-
mannsins í
Reykjavík nær
eingöngu til
þriggja fyrirtækja.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Þetta er
svo umfangs-
mikið mál að
við höfum
bara verið að
vinna í því að
klára fyrst
framkvæmdina gagnvart
stóru fyrirtækjunum en
þetta er á verkefnalistanum.
Guðrún Björk Bjarnadóttir