Fréttablaðið - 08.11.2014, Síða 54

Fréttablaðið - 08.11.2014, Síða 54
FÓLK|HELGIN Eplaskífurnar draga nafn sitt af því að áður fyrr var um að ræða eplasneiðar sem dýft var í deig og þær síðan steiktar. Í tímans rás hafa eplin hins vegar horfið úr sumum uppskriftanna en nafnið haldið sér. Hér fylgir hefðbundin upp- skrift af matarblogginu gulur- raudurgraennogsalt.com með eplum og öllu. Það er um að gera að prófa en þess ber þó að geta að nauðsynlegt er að nota hólfaða steikarpönnu. Þær fást í mörgum búsáhaldaverslunum. DÁSAMLEGAR & DANSKAR EPLASKÍFUR 1 grænt epli, skorið í litla bita kanilsykur 250 g hveiti fínrifinn börkur af einni sítrónu 1 msk. sykur 1 tsk. lyftiduft 1/2 tsk. matarsódi 1/4 tsk. salt 3 egg 400 ml súrmjólk 50 g bráðið smjör til steikingar 1. Látið eplabitana í skál með kanil- sykri. Blandið vel saman og takið til hliðar. 2. Hrærið öllum hinum hráefn- unum, nema smjörinu, saman í skál. Hér er gott að leyfa deiginu að standa aðeins þannig að sítrónan nái að skila sínu ferska bragði. 3. Hitið pönnuna á meðalhita og penslið smjöri í holurnar. 4. Hellið deigi í um það bil 3/4 hluta af holunni. Stingið eplabita í miðjuna. 5. Þegar komin er skorpa að neðan er þeim snúið við með grill pinna eða gaffli. Gert nokkrum sinnum þar til skorpan er stökk og gullin og eplaskífan örugglega bökuð í gegn. 6. Látið feiti reglulega í holurnar á milli umganga þannig að epla- skífurnar festist ekki við pönnuna. 7. Setjið eplaskífurnar á fat eða í skál og stráið flórsykri yfir þær með sigti. 8. Berið fram með góðri sultu og jafnvel jólaglöggi. ÞJÓFSTARTAÐU AÐVENTUNNI Eplaskífur tilheyra aðventunni hjá Dönum en þær eru oft bornar fram með jólaglöggi. Deigið er bragðbætt með sítrónuberki og kanelhúðuðum eplabitum og skífurnar borðaðar með sultu. ÓRJÚFANLEGUR HLUTI AF AÐVENTU DANA Sumir geta ekki hugsað sér að- ventuna án þess að bragða eplaskífur. Sextánda Iceland Airwaves-tónlistarhátíðin hófst í Reykjavík á miðvikudag og stendur yfir fram á sunnudag. Hátíðin er fyrir löngu búin að festa sig í sessi sem einn stærsti tónleika- og menningarviðburður ársins í Reykjavík og laðar hann til sín sífellt fleiri erlenda ferðamenn. Gestir, starfsmenn og listamenn eru rúmlega 8.000 en uppselt var á hátíðina fyrir mörgum mánuðum að sögn Egils Tómassonar, sem starfað hefur við tónlistarhátíðina síðan árið 2000. Að hans sögn er tvennt sem helst einkennir Iceland Airwaves; frábær íslensk tón- listarsena og fjölbreyttur hópur innlendra og erlendra gesta sem í sameiningu eiga stærstan þátt í að búa til þá frábæru stemningu sem ríkir á tónlistarhátíðinni. „Án þessara frábæru íslensku hljómsveita væri Iceland Air waves vafalaust ekki til. Það er alveg ótrúlegt hvað þetta litla land á mikið af frjóum og spennandi tón- listarmönnum og stærstur hluti þeirra hefur spilað á hátíðinni undanfarin ár. Hinn þátturinn snýr að gestum hátíðarinnar en erlend- um gestum hefur fjölgað mikið undanfarin ár. Í ár eru um 60% há- tíðargesta erlendir og mynda þeir ásamt heimamönnum ótrúlega skemmtilegan hóp sem virðist sækja hátíðina af réttri ástæðu; til að njóta sín og upplifa nýja tónlist sem þeir hafa ekki heyrt áður. Það er alveg stórmerkilegt hvað stemningin og umgengnin er góð því margir tónleikastaðanna eru litlir og álagspunktarnir margir.“ Hlutverk Egils á hátíðum undan- farinna ára er fjölbreytt og engir tveir dagar eins. „Ég ber starfs- titilinn „production manager“ og starfið er fjölbreytt. Það snýr til dæmis að bókunum listamanna, samskiptum við þá og hinum ýmsu ólíku verkefnum. Það er lítill hópur fólks sem vinnur að hátíð- inni og þótt allt sé í föstum skorð- um þurfa allir að vera tilbúnir að stökkva í óvænt verkefni sem koma upp.“ Auk þess að starfa fyrir hátíðina hefur Egill sjálfur komið fram á henni með sveitum á borð við Singapore Sling, Dr. Mist- er & Mr. Handsome og Vínil. Þótt skipulag Iceland Airwaves gangi yfirleitt vel gengur á ýmsu bak við tjöldin eins og tíðkast um sambærilegar hátíðir. „Starfsmenn eru á fullu allan sólarhringinn á meðan hátíðin stendur yfir. Ég er ekki viss um að allir átti sig á um- fangi hennar og þeirri miklu vinnu sem þarf að inna af hendi. Þetta eru endalaus smáatriði sem þarf að huga að, bæði mánuðina fyrir hátíðina sjálfa og á meðan hún stendur yfir. En þetta eru bara verkefni sem þarf að vinna, það gerist ekkert af sjálfu sér.“ SÆKJA HÁTÍÐINA AF RÉTTRI ÁSTÆÐU ICELAND AIRWAVES Frábær íslensk tónlistarsena og góður hópur innlendra og erlendra gesta mynda frábæra stemningu í borginni þessa dagana. STUÐBOLTAR FM Belfast gerði allt vitlaust í Gamla bíói. MYND/SIGGI FRÁBÆR STEMNING Meirihluti hátíðargesta eru útlendingar sem setja skemmtilegan svip á Iceland Airwaves. MYND/SIGGI SKRAUTLEG dj. flugvél og geimskip spiluðu á Húrra á miðvikudaginn. MYND/RÚNAR SIGURÐUR SIGURJÓNSSON FERSKT PASTA TILBÚIÐ Á ÖRFÁUM MÍNÚTUM
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.