Fréttablaðið - 08.11.2014, Page 56

Fréttablaðið - 08.11.2014, Page 56
FÓLK|HELGIN Heimir Einarsson smiður hefur sautján ára reynslu af líkamsrækt og einkaþjálfun. „Ég kenni fólki að æfa og breyta viðhorfi sínu gagnvart æfingum,“ segir Heimir sem hefur eigin stíl við æfingar. „Ég æfi eftir því hvernig mér líður hverju sinni. Ég vil taka tillit til þess sem hugurinn segir mér um hvernig best sé að beita líkamanum án þess að skaða hann. Ég er því ekki stífur á æfingapró- gramm heldur breyti eftir því hvernig mér líður. Ef mig langar ekki að æfa fætur einn daginn þá æfi ég bara eitthvað annað í staðinn. Með þessu móti hef ég komist í gegnum öll þessi ár án þess að skaða mig nokkurn tímann,“ upplýsir Heimir. Hann æfir sjálfur fjórum til fimm sinnum í viku og tekur fólk í einka- þjálfun samhliða. Mataræði skiptir Heimi miklu máli og þegar Quang Le hafði samband við hann í sumar um að gerast styrktaraðili hans varð Heimir mjög ánægður. „Ég hef borðað á veitingastaðnum Pho síðan í sumar og líkar mjög vel við matinn. Hann er léttur og gefur góða orku, er ferskur og maður finnur ekki fyrir neinum þyngslum. Maður getur hreinlega borðað og farið beint á æfingu,“ segir Heimir glaðlega. Ekki sakar að Pho er ekta víetnamskur staður. Heimir þekkti ekki til víetnamskrar matargerðar áður en hann fór að borða á Pho en maturinn kom honum skemmtileg á óvart. „Ég hélt að hann væri sterkari en það er einmitt gert ráð fyrir að maður ráði styrkleikanum dálítið sjálfur, því á öllum borð- um eru nokkrar tegundir af sósum sem má bæta út á matinn,“ lýsir Heimir og segir víetnamskan mat henta öllum. „Le leggur áherslu á að nota aðeins fersk hráefni enda finnur maður það í matnum. Hann flytur allt hráefni inn sjálfur sem er jákvætt og þá eru skammt- arnir vel útilátnir,“ segir Heimir og hrósar þjónust- unni í hástert. Heimir æfir í World Class og því er staðsetning Pho á Suðurlandsbraut 8 tilvalin. „Pho er á mjög fínum stað fyrir þá sem æfa í World Class.“ ORKURÍKUR, FERSKUR, LÉTTUR OG BRAGÐGÓÐUR MATUR ELSKAR VÍETNAMSKAN MAT Heimir Einarsson, einkaþjálfari og smiður, borðar reglulega á víetnamska veitingastaðnum Pho. Hann segir matinn léttan en orkuríkan og henta sérstaklega vel fyrir og eftir ræktina. ÁNÆGÐUR MEÐ MATINN Heimir Einarsson borðar reglulega á Pho og hefur heillast af víetnömskum mat sem hann segir henta sérlega vel fyrir þá sem huga að hollu mataræði. MYND/VALLI Pho var fyrsti víetnamski veitingastaðurinn sem opnaður var á Íslandi. Við opnuðum hann fyrst fyrir fjórum árum en seldum hann og opnuðum glænýjan stað hér á Suðurlandsbraut 8 fyrir hálfum mánuði. Það er frábært enda alveg við hliðina á hinu fyrirtækinu mínu, Vietnam Market,“ segir Quang Le. Hann segir Íslendinga smám saman vera að upp- götva kosti víetnamskrar matargerðar. „Þeir Íslend- ingar sem hafa komið til okkar eru afar ánægðir og koma aftur og aftur,“ segir hann glaðlega. Stór hluti af gestum Pho eru ferðamenn. „Þeir þekkja vel til matar- ins og vita að hann er bæði hollur og góður.“ ÓSVIKINN VÍETNAMSKUR MATUR Tveir lærðir kokkar frá Víetnam sjá um matreiðsluna á Pho. „Maturinn er mjög hollur líkt og almennt er með víetnamskan mat. Þá notum við aðeins ferskt hráefni í alla okkar rétti,“ segir Le og bendir á að víða í fjöl- miðlum, meðal annars á CNN, hafi verið fjallað um hollustu víetnamskrar matargerðar. Þótt stutt sé síðan Pho var opnaður á Suðurlandsbraut er fólk þegar búið að uppgötva staðinn. „Í gær var hér fullt út úr dyrum og fólk þurfti að bíða eftir borði,“ segir Le en bendir á að einnig sé vinsælt að kaupa mat til að taka með sér. Le hefur margra ára reynslu af matvælabransanum. „Fjölskylda mín hefur verið í matvælaiðnaðinum í marga áratugi í Víetnam og þar starfaði ég áður en ég flutti til Íslands.“ ALLT TIL ASÍSKRAR MATARGERÐAR Le flutti til Íslands fyrir rúmum tíu árum og á í dag þrjú fyrirtæki: veitingastaðinn Pho, þrifþjónustuna Vy þrif sem hann stofnaði fyrir sjö árum og síðan versl- unina Vietnam Market að Suðurlandsbraut 6. Hann segir marga Íslendinga versla í Vietnam Mar- ket. „Margir Íslendingar hafa ferðast til Kína og ann- arra Asíulanda og vilja elda slíkan mat heima hjá sér. Hér geta þeir fengið öll hráefni til að elda asískan mat, ekki aðeins víetnamskan mat,“ útskýrir Le og bendir á að í versluninni megi finna hráefni í rétti frá Taílandi, Indlandi, Singapúr, Malasíu, Filippseyjum og mörgum fleiri löndum. „Við erum til dæmis með mikið úrval af indversku kryddi en einnig með ferskt grænmeti á borð við chili sítrónugras og engifer.“ Nánari upplýsingar: www.pho.is, www.vy.is og á Facebook undir Vietnam Market HOLLIR RÉTTIR FRÁ VÍETNAM PHO VIETNAMESE RESTAURANT OG VIETNAM MARKET KYNNA Víetnamski veitingastaðurinn Pho Vietnamese Restaurant var opnaður nýlega að Suðurlandsbraut 8, við hliðina á Vietnam Market. Víetnamskur matur er afar ljúffengur en ekki síður mjög hollur. Ferðamenn eru duglegir að sækja veitingastaðinn en að sögn eigandans, Quang Le, eru Íslendingar smám sam- an að uppgötva kosti víetnamskrar matargerðar. EIGAND- INN Quang Le ásamt starfs- mönnum á veitinga- staðnum Pho Viet- namese Rest- aurant á Suður- lands- braut 8. VIETNAM MARKET Í versluninni má finna allt hráefni til asískrar matar- gerðar.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.