Fréttablaðið - 08.11.2014, Síða 66

Fréttablaðið - 08.11.2014, Síða 66
| ATVINNA | Starf rektors felur meðal annars í sér: • Rektor er formaður háskólaráðs sem fer með æðsta ákvörðunarvald innan háskólans. • Rektor fer með framkvæmd á stefnu háskólans og mótar lifandi kennslu- og rannsóknarstarf undir merkjum hans. • Rektor er yfirmaður stjórnsýslu skólans sem og talsmaður hans. • Rektor ber ábyrgð á rekstri og starfsemi háskólans, þ.m.t ráðningar- og fjármálum allra eininga skólans. • Rektor ber ábyrgð á gerð starfs- og rekstraráætlana og að þær séu samþykktar af háskólaráði. • Rektor ber ábyrgð á öflugri liðsheild skólans, faglegu samstarfi og samskiptum innan skólans og út á við. Menntunar- og hæfniskröfur: • Framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfni. • Reynsla á sviði fjármála og rekstrar og stjórnunar. • Reynsla af stefnumótunarvinnu og hæfileiki til að móta og miðla framtíðarsýn. • Doktorspróf eða sambærileg menntun. Umsóknarfrestur er til 5. desember n.k. Umsóknir berist Mennta- og menningarmálaráðuneytinu merktar: Umsókn um stöðu rektors við Landbúnaðarháskóla Íslands. Ekki er notað staðlað umsóknaeyðublað. Umsóknir og fylgigögn skal einnig senda á rafrænuformi eftir því sem unnt er á netfangið postur@mrn.is. Umsókn skal fylgja: • Greinargerð um náms- og starfsferil. • Staðfest eintök af öllum viðeigandi prófskírteinum. • Tilnefna skal þrjá meðmælendur, æskilegt er að einn þeirra sé næsti yfirmaður í núverandi starfi eða fyrra starfi umsækjanda. Gert er ráð fyrir að mennta- og menningarmálaráðherra skipi í embætti rektors til fimm ára frá og með 1. janúar 2015 samkvæmt tilnefningu háskólaráðs. Háskólaráð tilnefnir þrjá menn í valnefnd til að meta hæfni umsækjenda skv. 1. mgr. 18. gr. laga um háskóla, nr. 63/2006. Landbúnaðarháskóli Íslands hefur vítt starfssvið, framundan eru mörg spennandi verkefni og stefnumótunarvinna þar sem margvísleg reynsla og menntun kemur að notum. Hæfni umsækjenda um embætti rektors skal metin í ljósi heildarmats, m.a. með tilliti til rekstrar- og stjórnunarreynslu, vísindastarfa, ferils sem háskólakennari eða í öðrum störfum og með tilliti til þess hversu menntun og reynsla viðkomandi muni nýtast í starfi rektors. Um laun rektors fer eftir ákvörðun kjararáðs, sbr. lög um kjararáð, nr. 47/2006, með síðari breytingum. Nánari upplýsingar veitir Björn Þorsteinsson rektor. Embætti rektors við Landbúnaðarháskóla Íslands er laust til umsóknar. Landbúnaðarháskóli Íslands er leiðandi afl í rannsóknum, kennslu og nýsköpun á sviði náttúruvísinda, auðlinda- og umhverfisfræða og landnýtingar. Rannsóknir eru drifkraftur starfsins. Nemendur fá vandaða og gagnlega menntun, sem byggir á gagnrýnni hugsun, sjálfstæðum vinnubrögðum og færni. Skólinn býður fram kjöraðstæður til náms og starfa. Vísindamenn skólans vinna náið með öðrum háskólum og rannsóknastofnunum að kennslu og rannsóknum. Þjóðfélagið leitar til skólans í ríkum mæli við lausn á aðkallandi viðfangsefnum á fagsviðum hans. Höfuðstöðvar skólans eru á Hvanneyri í Borgarfirði. TRÉSMIÐIR J.E. Skjanni byggingaverktakar ehf. óska eftir að ráða góða trésmiði til starfa innanlands, bæði launþega og verktaka. Mikil vinna framundan. Nánari upplýsingar gefur Jens Sandholt, sími 896 6621 og netfang jens@skjanni.com Verkefnastjóri Kaupum til góðs vill ráða verkefnastjóra sem stýrir daglegum rekstri og uppbyggingu fyrirtækisins. Leitað er að starfsmanni sem hefur brennandi áhuga á verslunarrekstri, sölumennsku, netsölu og símasölur. Viðkomandi þarf að hafa verslunarreynslu og viðeigandi menntun, háskólamenntun er æskileg. Hann/hún þarf að vera tilbúinn til að leggja hart að sér við uppbyggingu á starfsemi Kaupum til góðs. Viðkomandi þarf að hefja störf sem fyrst. Áhugasamir eru beðnir um að senda upplýsingar á netfangið arni@midlun.is fyrir 15. nóvember 2014. Kaupum til góðs ehf – Nóatún 17 – 105 Reykjavík HeilindiHagsýni Liðsheild nordural.is VIÐ LEITUM AÐ GÓÐU FÓLKI FJÖLBREYTT STÖRF Á GRUNDARTANGA Við leitum að duglegu og metnaðarfullu fólki í margvísleg störf í álveri Norðuráls á Grundartanga. Í boði eru framleiðslustörf af ýmsu tagi. Við leggjum áherslu á jafna möguleika karla og kvenna, endurmenntun og starfsþróun, frábæran starfsanda og samstarfsfélaga. Starfinu fylgir góð starfsaðstaða í lifandi umhverfi þar sem metnaður og fagmennska eru í fyrirrúmi. Norðurál er eitt stærsta iðnfyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrir tækinu starfa um 600 manns með fjöl breytta menntun og bakgrunn. Árleg framleiðslugeta er um 300 þúsund tonn af hágæða áli. Sótt er um á www.nordural.is og er umsóknar- frestur til og með 17. nóvember nk. Upplýsingar veitir Helga Björg Hafþórsdóttir í síma 430 1000. Öllum umsóknum verður svarað og trúnaði heitið. • 18 ára lágmarksaldur • Mikil öryggisvitund og árvekni • Heiðarleiki og stundvísi • Góð samskiptahæfni • Dugnaður og sjálfstæði • Bílpróf er skilyrði og lyftararéttindi æskileg MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR: 8. nóvember 2014 LAUGARDAGUR10
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.