Fréttablaðið - 08.11.2014, Page 108

Fréttablaðið - 08.11.2014, Page 108
Steingrímur er úti á stétt þegar Fréttablaðsbíllinn rennur upp að götukanti við Freyjugötu 1, tilbúinn að leiða fávísan frétta- mann um sýninguna Frábært Tilboð. Þar eru öll verkin merkt ártalinu 2014 og túlka sitthvað sem listamanninum hefur legið á hjarta á þessu ári. Allt meira og minna djúpt en þó stutt í húm- orinn. Hann byrjar á að útskýra eitt, það er með þéttum svörtum og rauðum texta. Svarti textinn er eftir Christinu La garde, for- stjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. „Þetta er ræða sem Lagarde hélt um töluna sjö, ég var að skoða hana á netinu og sá að hún var túlkuð sem skilaboð til elítunnar í heiminum. Þá fannst mér textinn Krossgötur, um mann sem selur sál sína, renna inn í ræðuna og úr varð þetta verk.“ Önnur mynd heitir Trommu- þrællinn og vísar í texta um trommarann sem fær ekkert að borða – en hjúkk – á myndinni fær hann að borða. „Myndin gæti táknað hvern sem er. Launaþræl- inn til dæmis, hvenær fær hann að borða?“ spyr Steingrímur. Ekki er honum lagið að skyggn- ast inn í framtíðina ef marka má eitt verkanna, lista yfir það sem hann hélt að mundi gerast þann og þann daginn. Ekkert rættist nema það að Snorri Ásmundsson sendi Framsóknarflokknum bréf. Hitt virkaði ekki. Steingrímur hitti ekki Spessa, fékk ekkert svar, ekkert dularfullt símtal. „Þetta er bara eins og lífið er,“ segir hann æðrulaus. gun@frettabladid.is Bara eins og lífi ð er Steingrímur Eyfj örð myndlistarmaður kemur mörgum skondnum skilaboðum á framfæri á sýningunni Frábært Tilboð í Harbinger galleríi á Freyjugötu 1. STEINGRÍMUR EYFJÖRÐ Öll verkin eru merkt 2014 og túlka sitthvað sem listamanninum hefur legið á hjarta á þessu ári. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Bókin spratt upp úr vinsælu námskeiði sem haldið hefur verið innan Google- fyrirtækisins um árabil Þá fannst mér textinn Krossgötur, um mann sem selur sál sína, renna inn í ræðuna og úr varð þetta verk. BÆKUR ★★ ★★★ Litlu dauðarnir Stefán Máni SÖGUR Stefán Máni hóf feril sinn með óvenjulegum og áhrifamiklum skáldsögum sem gegnumlýstu sálar líf og tilvist karlmanna í kreppu, karla sem lifðu í dauðvona samfélögum undir lok 20. aldar. Í Ísrael og Hótel Kaliforníu tvinnaði hann saman einhvers konar ofur- raunsæi og goðsagnalegu og trúar- legu samhengi á forvitnilegan hátt. Það varð líka snemma ljóst að stíl- gáfa Stefáns er einstök, hann getur skrifað ótrúlega þéttan og hraðan stíl sem lyftir lýsingum á hvers- dagslegustu hlutum. Seinna sneri hann við blaðinu og hefur lengi ein- beitt sér að spennu- og glæpasög- um. Þegar honum hefur tekist best upp í þeirri grein, ekki síst í skáld- sögunni Svartur á leik, hefur hann náð að sameina spennu, hraða og þá goðsagnalegu vídd sem hefur fylgt honum frá fyrstu tíð. Nýjasta skáldsaga Stefáns, Litlu dauðarnir, er að einhverju leyti afturhvarf til viðfangsefna fyrstu skáldsagna hans. Hún byrjar eins og spennusaga úr efnahags- hruninu en smám saman þéttist hún um persónulýsingu aðalpers- ónunnar og þær klemmur sem hann er kominn í, bæði í einkalífi og atvinnulífi. Viðskiptafræðing- urinn Kristófer hefur ekki allt- af stefnt að því að vinna í banka. Hann lærði bókmenntafræði og lét sig dreyma um það, ásamt Mar- gréti konu sinni, að stofna bókafor- lag. Margrét er af öðru sauðahúsi en Kristófer. Hún er dóttir auð- ugra hjóna af Seltjarnarnesi, fað- irinn er miskunnarlaus hrotti sem fer sínu fram í krafti valds síns og auðæfa en móðirin eins og skuggi af manneskju. Af ástæðum sem ekki verða raktar hér er Kristófer á valdi þessarar tengdafjölskyldu sinnar og faðirinn virðist stefna að því að gera ungu hjónin að nákvæmri eftirmynd foreldranna, draumar um bókaútgáfu eru fyrir bí og þau reyna að byggja upp sálarlaust en áferðarfallegt borgaralegt líf. Þegar Kristófer missir vinnuna er þessi tilvera í hættu og hann gríp- ur til örþrifaráða. Litlu dauðarnir er eins og spennusaga framan af og hún er skrifuð eins og spennusaga sem virkar ekki fullkomlega þegar hún fer að snúast um aðra hluti. Stefán Máni er með marga bolta á lofti, það er eins og það séu tvær eða fleiri bækur sem takast á í sögunni og þetta á líka við um stílinn og samræðu bókarinnar við hefðina. Kristófer á óskrifaða BA-ritgerð um Gyrði Elíasson einhvers staðar í fórum sínum, og Gangandi íkorni eftir Gyrði er áberandi undirtexti í bókinni en hún kinkar líka kolli til fleiri höfunda, Heilagur andi og englar vítis eftir Ólaf Gunnars- son kemur t.d. upp í hugann þegar söguhetjurnar lenda í slagtogi við mótorhjólaglæpagengi á karníval- ískri útihátíð. Þessi blöndun bókmenntagreina virkar ekki alltaf sem skyldi og lokahluti bókarinnar veldur von- brigðum en það er vonlaust að útskýra hvers vegna nema að ljóstra því upp hvernig fer, hvað það er við sögulok sem undirrit- uðum finnst ekki ganga upp. Jón Yngvi Jóhannsson NIÐURSTAÐA: Blanda spennusögu og sögu um tilvistarglímu og fjölskyldu- vanda í hruninu sem gengur ekki full- komlega upp. Kreppa bankamannsins Kristófers FRÉTTABLAÐ IÐ /G VA MENNING 8. nóvember 2014 LAUGARDAGUR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.