Fréttablaðið - 08.11.2014, Qupperneq 112
8. nóvember 2014 LAUGARDAGUR| MENNING | 68
LAUGARDAGUR
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
Tónleikar
17.00 Kammerkór Seltjarnarneskirkju
ásamt Judith Þorbergsson Tobin orgel-
leikara og félögum úr Sinfóníuhljóm-
sveit áhugamanna flytur kantötuna
Ein hoher Tag kömmt eftir Gottfried
August Homilius og Magnificat eftir
Carl Philipp Emanuel Bach. Aðgangs-
eyrir er 2000 kr. í forsölu og 2.500 kr.
við inngang.
22.00 Tribjúttónleikar Nirvana í
Háskólabíói fara fram í kvöld. Fram
koma Magni Ásgeirs, Ágústa Eva, Stefán
Jakobsson úr Dimmu, Bryndís Ásmunds,
Einar Vilberg og Þórunn Antonía.
22.00 Páll Rósinkranz og Margrét Eir
Hönnudóttir troða upp á Græna hatt-
inum í kvöld.
22.00 Hinir árlegu nóvembertónleikar
Magnúsar Eiríkssonar og KK verða í
kvöld á Café Rosenberg. Að þessu sinni
verða tónleikarnir haldnir til heiðurs
þýska eðlisfræðingnum Wilhelm Conrad
Röntgen, en það var þennan dag
8. nóvember 1895 sem hann uppgötvaði
sérstaka geisla sem gátu séð í gegnum
fast efni, sem við þekkjum í dag sem
röntgengeisla. 2.000 krónur inn.
15.00 DJ FreddiFriski spilar á Frederik-
sen Ale House í dag.
Opnanir
20.00 527hz tónleikar á Paloma Bar
í boði Weirdcore, Ufo Warehouse og
Robot Disco. Á efri hæðinni koma fram
Orang Volante, Ultra Orthodox, Agzilla,
HaZaR, Berndsen, Tanya & Marlon,
Kosmodod, Cosmic Channel, Oculus og
UFO Warehouse + Ewok. Í kjallaranum
verður KGB Soundsystem frá miðnætti.
Ópera
20.00 Óperan Don Carlo verður sungin
í Hörpu í kvöld. Fer fram á ítölsku en
með íslenskum texta. Miðaverð frá
2.500 krónum.
Síðustu Forvöð
20.00 Sökum velgengni leikverksins
Róðarí í Tjarnarbíói hefur aukasýningu
verið bætt við, sem verður síðasta
sýningin á verkinu.
Opið Hús
13.00 Í tilefni af norræna skjaladeg-
inum verður Þjóðskjalasafn Íslands með
opið hús á lestrarsal safnsins. Verður
tekið á móti gestum frá kl. 13-16 á
Laugavegi 162. Þar verður boðið upp á
sýningu á skjölum sem tengjast Vestur-
heimsferðum og gestum gefinn kostur
á að glugga í bækur um Vesturfara. Kl.
14.30 munu Svavar Gestsson og Katelin
Parsons kynna verkefnið Í fótspor Árna
Magnússonar í Vesturheimi, sem er
samstarfsverkefni Þjóðræknisfélags
Íslendinga og Árnastofnunar.
Bókmenntir
14.00 Hin sígilda ópera Töfraflautan
eftir Mozart er nú fáanleg í nýrri
útsetningu og myndskreyttri barnabók.
Því verður opnunarhóf í Pennanum
Eymundsson. Papagenó, Papagena,
prinsessan Pamína og prinsinn Tamínó
sýna sig og kynna. Antonía Hevesí
leikur á píanó.
18.00 Bjarni Klemenz fagna útgáfu
nýrrar bókar í bókabúð Iðu Zimsen.
Skáldsagan Já fjallar um listviðburð sem
fer úr böndunum og venjulegur dagur
breytist á einu augnablik í myrkasta
dag í sögu þjóðarinnar. Er þetta önnur
skáldsaga Bjarna en áður gaf hann út
hjá Nýhil. Tónlistarmaðurinn Oddur
Báruson, öðru nafni El Odderiño, mun
sjá um tónlistina og Bjarni segir frá
ævintýralegum tildrögum bókarinnar.
Málþing
10.30 Málþing og kynning á Taleboblen
verður haldin í fyrirlestrasal Þjóðarbók-
hlöðu í dag. Taleboblen er tæki til að
þjálfa danskt talmál, einkum framburð,
í tölvuumhverfi. Á málþinginu verður
fjallað um kennslu dansks talmáls, mál-
tækið kynnt og notkunarmöguleikar
þess ræddir. Þá skýra dönskukennarar
frá reynslu sinni af notkun Taleboblen.
11.00 Mannfræðifélag Íslands stendur
fyrir málþingi í sal 104 á Háskólatorgi
um brottflutning Íslendinga til Noregs
og afleiðingar þess fyrir íslenskt
samfélag. Frummælendur verða Gunnar
Smári Egilsson, stofnandi Fylkisflokks-
ins, og Guðbjört Guðjónsdóttir, doktors-
nemi í mannfræði sem rannsakað
hefur Íslendinga í Noregi. Í pallborði
verða Birna Jónsdóttir, fyrrverandi for-
maður Læknafélags Íslands, Þorbjörn
Guðmundsson, framkvæmdastjóri
Samiðnar, sambands iðnfélaga, og Þóra
Ágústsdóttir frá Vinnumálastofnun.
Myndlist
13.00 Hugsteypan er samstarfsverkefni
Ingunnar Fjólu Ingþórsdóttur og Þór-
dísar Jóhannesdóttur. Það verður sýnt í
ASÍ listagallerí á Freyjugötu í dag.
13.30 Sýningin Speglað landslag eftir
Hrafnkel Sigurðsson opnar í Arion
banka í Borgartúni í dag.
14.00 Jón Óskar opnar málverkasýn-
ingu sína í Tveim hröfnum gallerí á
Baldursgötu. Á sama tíma sýnir hann í
Listasafni Íslands.
14.00 Guðrún Pálína Guðmundsdóttir
sýnir í Populus Tremula í Listagilinu
á Akureyri. Titill sýningarinnar er
Nóvember.
15.00 Sýning Bryndísar Kondrup, Af
jörðu, De Terrae, verður opnuð í Ketil-
húsinu á Akureyri í dag.
17.00 Daníel Björnsson opnar
einkasýningu í Kling & Bang í dag
sem ber nafnið Bismút. Daníel
teiknar upp sýningarrýmið með
lituðu ljósi og stillir þar upp nýjum
skúlptúrum úr brunni sínum.
20.00 Samsýningin PHENOMENAL
í Kunstchlager gallerí. Til sýnis
verða gjörningar síðastliðinna þriggja
vikna sem framkvæmdir voru á
ýmsum stöðum borgarinnar. Þeir
eru sýndir í formi hliðarafurða,
sjálfstæðra eftirleifa og
skrásetningar. Auk
þess munu eiga sér
stað áframhaldandi
gjörningar og
sýningin verður í
stöðugri umbreyt-
ingu. Listamenn-
irnir eru Linda
Spjut (SE), Nikulás
Stefán Nikulásson,
Ragnheiður Maí-
sól Sturlu dóttir,
Sandra Mujinga (NO), Sigurður Þórir
Ámundason, Sindri Leifsson, Una Mar-
grét Árnadóttir, Unnur Mjöll S. Leifs-
dóttir og Örn Alexander Ámundason.
Markaðir
11.00 Trausti Júlíusson og Steinn
Skaptason blása til mikillar tónlistar-
sölu í Kolaportinu. Mörg hundruð titlar
af vínyl, hellingur af geisladiskum, kass-
ettur, tónlistarmyndir, bækur og fleira.
12.00 Flóamarkaður Hins Hússins fer
fram í dag.
12.00 Háskólaport, flóamarkaður
á Háskólatorgi fyrir nemendur við
Háskóla Íslands fer fram í dag.
13.00 Jólamarkaður á Þórshöfn. Mikið
vöruúrval frá fjölda verslana, einkaaðila
og framleiðenda í íþróttahúsinu. Kaffi-
hús, lifandi tónlist, barnagæsla, smá-
kökusamkeppni, happdrætti og margt
fleira til gleði og gamans.
14.00 Nokkrar dömur munu selja af sér
spjarirnar á fatamarkaði Bast í dag.
Samkoma
22.00 Pink Party verður
í Iðusölum í kvöld.
Frítt glitter og meik.
Verðlaun fyrir flott-
ustu lúkkin. 1.500
krónur inn fyrir mið-
nætti en 2.500 krónur
eftir það. 1.000 krónu
fjölskylduafsláttur
fyrir miðnætti og 2.000
krónur eftir miðnætti
fyrir meðlimi Sam-
takanna 78.
SUNNUDAGUR
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
Tónleikar
11.00 Regína Ósk söngkona syngur
sálma af nýútkomnum diski sínum,
Leiddu mína litlu hendi, sem ætlaður
er börnum og verðandi mæðrum í
Árbæjarkirkju.
16.00 Saxófónleikarinn
Guido Bäumer og píanó-
leikarinn Aladár Rácz
halda tónleika í
Hannesarholti á
sunnudag.
16.00 BassBar
kynna nýja
söngbók fyrir
bassa-baritóna
í Salnum í
Kópavogi. Bass-
Bar eru Bergþór
Pálsson, Davíð
Ólafsson, Jóhann
Smári Sævarsson,
Kristinn Sigmunds-
son, Viðar Gunnarsson
og Kristinn Örn Kristins-
son. 3.900 krónur inn.
20.00 Kvennakórinn heldur árlega
góðgerðartónleika, Hönd í hönd „Ástin
og lífið“. Allur ágóði rennur til mæðra-
styrksnefndar Kópavogs og öldrunar-
deildar Landsspítalans. Fram koma
meðal annars Páll Óskar, Alma Rut
Kristjánsdóttir og Drengjakór íslenska
lýðveldisins. 3.500 krónur inn.
20.00 Fóstbræður halda árlega tónleika
sína Til ljóssins og lífsins í Langholts-
kirkju. Harpa Arnarsdóttir les ljóð milli
laga og Árni Stefánsson stjórnar. 2.500
krónur inn.
Síðustu forvöð
14.00 Í dag verður síðasta leiðsögnin
um sýninguna Silfur Íslands í Þjóð-
minjasafninu en sýningunni lýkur um
áramót. Við gerð sýningarinnar var
leitast við að beina sjónum að hinum
mismunandi aðferðum við silfursmíð
en um leið setja búningasilfur, borð-
búnað, silfurskildi og kaleika fram á
nýstárlegan hátt.
Dansleikir
20.00 Dansað verður á Félagsheimili
eldri borgara í Reykjavík í Stangarhyl 4
á sunnudagskvöld. Hljómsveitin Klassik
leikur fyrir dansi. Félagar taki með sér
gesti. Aðgangseyrir er kr. 1.800 en kr.
1.500 gegn framvísun félagsskírteinis.
Tónlist
21.00 Trúbadorinn Danni spilar á
English Pub á sunnudag.
Leiðsögn
14.00 Hafnarborg
býður upp á fjöl-
skylduleiðangur
um sýninguna
Vara-liti sem nú
stendur yfir. For-
eldrar og börn
eru leidd um
sýninguna og
undraheimar
málverksins eru
kannaðir. Sýn-
ingin á erindi við
fólk á öllum aldri,
ekki síst til barna og
unglinga og býður upp
á möguleika á fjölbreyttri
upplifun og umfjöllun.
Listamennirnir eru Gabríela Frið-
riksdóttir, Guðmundur Thoroddsen,
Helgi Þórsson, Hulda Vilhjálmsdóttir,
Ragnar Þórisson, Þórdís Aðalsteinsdóttir
og Þorvaldur Jónsson.
14.00 Halldór Björn Runólfsson, safn-
stjóri Listasafns Íslands, verður með
leiðsögn um afmælissýninguna LISTA-
SAFN ÍSLANDS 1884-2014 á sunnudag.
14.00 Harpa Þórsdóttir, forstöðumaður
Hönnunarsafns Íslands, mun í dag leiða
spjall með nokkrum af þeim gullsmið-
um sem eiga verk á afmælissýningu
Félags íslenskra gullsmiða, Prýði, sem
unnin er í samstarfi við safnið.
Myndlist
11.00 Sigtryggur Bjarni Baldvinsson
sýnir ný verk í Hverfisgallerí.
Markaðir
14.00 Hin árlega kaffisala Kristniboðs-
félags karla verður haldin í Kristniboðs-
salnum að Háaleitisbraut 58-60
á sunnudag og hefst með stuttri
helgistund. Þar verða að vanda ljúfar
kræsingar á boðstólum sem gott er að
renna niður með kaffisopanum. Ágóði
kaffisölunnar mun renna til kristniboðs-
og þróunarstarfs Kristniboðssam-
bandsins, sem hefur m.a. tekið þátt í að
byggja 85 grunn- og framhaldsskóla í
Pókothéraði í Keníu. Allir eru velkomnir
í kaffið hjá körlunum og styðja um leið
gott málefni.
Samkoma
10.45 Breska sendiráðið boðar til
minningarstundar (Remembrance Day
Service) við hermannagrafreitinn í
Fossvogskirkjugarði á sunnudag. Eftir
athöfnina verður haldin önnur minn-
ingarstund við þýska hermannagraf-
reitinn.
13.30 Söguhringur kvenna og Tanya
Dimitrova bjóða konum upp á zumba
í Gerðubergssafni. Tanya starfrækir
Heilsuskóla Tanyu en þar kennir hún
dans og ýmis konar heilsurækt. Gott
er að mæta í góðum skóm og léttum
fötum. Söguhringur kvenna er sam-
starfsverkefni Borgarbókasafns og Sam-
taka kvenna af erlendum uppruna og
er markmið hans að skapa vettvang þar
sem konur skiptast á sögum, persónu-
legum eða bókmenntalegum. Enginn
aðgangseyrir og börnin eru velkomin
með.
15.00 Rekstrasjón með gamla laginu
verður í Edinborgarhúsinu á sunnudag-
inn. Nú er um að gera að nota þetta
einstaka tækifæri og fá sér snúning á
dansgólfinu. Við lofum að taka bara
gömlu og góðu stuðlögin sem allri geta
dansað við. Boðið verður upp á kaffi og
kökur. Stefán Jónsson leikur fyrir dansi.
Rauði krossinn og Menningarmiðstöðin
Edinborg standa fyrir þessum viðburði
og það er frítt inn.
Dans
20.00 Dansararnir og danshöfundarnir
Snædís Lilja Ingadóttir og Steinunn
Ketilsdóttir munu deila kvöldi í Tjarnar-
bíói á sunnudaginn. Steinunn sýnir
verkið this is it sem hún frumsýndi á
Reykjavík Dance Festival fyrr í haust
en Snædís sýnir verkið GOOD/BYE sem
hún frumsýndi í Tjarnarbíó í september.
Upplýsingar um viðburði sendist
á hvar@frettabladid.is
9. NÓVEMBER 2014
8. NÓVEMBER 2014
Æskulýðsráð veitir í ár viðurkenningar fyrir æskulýðsstarf.
Viðurkenningarnar eru ætlaðar til að vekja athygli á því sem er til
fyrirmyndar í æskulýðsstarfi á Íslandi og vera hvatning til þróunar,
nýsköpunar og þátttöku. Viðurkenningarnar verða veittar á ráðstefnunni
,,Stefnum saman til framtíðar - Íslenskar æskulýðsrannsóknir 2014"
sem haldin verður í Félagsheimilinu á Seltjarnarnesi 24. nóvember 2014.
Óskað er eftir tilnefningum í eftirfarandi flokkum:
1. Ungt fólk sem lagt hefur alúð við þátttöku sína í æskulýðsstarfi
eða nýtt reynslu sína úr æskulýðsstarfi á öðrum sviðum þjóðlífsins.
2. Aðilar sem sinnt hafa nýsköpun eða þróun í æskulýðsstarfi.
Hægt að tilnefna einstaklinga, félög, hópa eða stofnanir.
3. Starfsmenn eða sjálfboðaliðar í æskulýðsstarfi sem skilað hafa
merku ævistarfi eða á annan hátt hafa skarað fram úr.
Æskulýðsráð skipar dómnefnd sem velur úr tilnefningum og
ábendingum. Tilnefningar ásamt rökstuðningi skal senda til
Valgerðar Þórunnar Bjarnadóttur sérfræðings hjá mennta- og
menningarmálaráðuneytinu í netfangið
valgerdur.thorunn.bjarnadottir@mrn.is
Frestur til að skila inn tillögum er
til og með 17. nóvember 2014.
Viðurkenningar
fyrir æskulýðsstarf
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is