Fréttablaðið - 08.11.2014, Síða 116
8. nóvember 2014 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 72
LÍFIÐ
FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER
★★★★ ★
Börn
Iceland Airwaves
GAMLI GAUKURINN
Börn stigu á svið og spiluðu sitt frábæra
dauðapönk. Hér er á ferðinni bræðingur af
því besta úr síðpönki og nýbylgjunni – knýj-
andi og skelfdur söngur sem minnir á Siouxsie
Sioux, ómstríðar melódíur og beittir textar um
einangrun og niðurrif.
Sveitin skipar sér sess með drungalegu
dauðapönki eins og Rudimentary Peni en Börn
er ein af fáum íslenskum hljómsveitum sem
ná að skapa sitt sérstæði í stefnu og textum.
Textarnir eru oft femíniskir og hápólitískir en
nefnilega án allrar umvöndunarsemi.
Að heyra ótrúlega beinskeytt lög eins og
Sviðin jörð ætti að skapa það sem kemst næst
tilfinningahreinsun í reiðu ungu fólki, með
textum eins og: „Kveikjum í Alþingi, kveikjum
í Hæstarétti, kveikjum í Ráðhúsinu, kveikj-
um í Hallgrímskirkju, kveikjum í Höfðatorgi,
kveikjum í Seðlabankanum, kveikjum í hótel-
um, kveikjum í Skuggahverfinu (…)“.
Þetta er pönk eins og það gerist best en þó
mætti kannski vera meiri kraftur og æði í
sviðsframkomunni. Svo var eitthvað grátbros-
legt og kaldhæðnislegt við að sjá ferðamenn
dillandi sér við texta um að brenna hótelin til
grunna. Þórður Ingi Jónsson
NIÐURSTAÐA: Pönk í allri sinni dýrð. Niðurrif,
einangrun og bálreiðir textar.
Pönk eins og það gerist best
BÖRN Feminískir og hápólitískir textar án
umvöndunarsemi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ
★★★★★
Nguzunguzu
Iceland Airwaves
HÚRRA
Nguzunguzu eru hluti af því ferskasta sem
er í gangi í klúbbatónlist í dag. Þetta tvíeyki
frá Los Angeles spilar fútúríska og fram-
sækna takta sem horfa frekar til framtíðar
en aftur. Þau eru af sama meiði og til dæmis
Fatima Al Qadiri sem spilaði á sama sviði á
Airwaves í fyrra og Arca sem býr til takt-
ana á nýju Bjarkar-plötunni.
Nguzunguzu eru plötusnúðar af guðs
náð en þau kanna svo sannarlega að halda
teitinu gangandi. Þau spiluðu blöndu af
rímixum, töktum og lögum sem tryllti
dansgólfið, og það á fimmtudegi. Hljóð-
heimur þeirra er mjög áhugaverð blanda
af trap, hraðari klúbbatónlist og abstrakt
raftónlist sem fær mann til að hreyfa
sig. Það var líka gaman að heyra rímix
af efni frá samstarfskonu þeirra, Kelelu,
sem kemur einnig fram á hátíðinni, ásamt
rímixum af rapplögum eins og No Type
með Rae Sremmurd. Eini gallinn við þetta
er að Nguzunguzu hefðu alveg örugg-
lega notið sín betur um helgi en á virkum
degi. Aðstandendur hátíðarinnar mættu
kannski hugsa betur um tempóið þegar
kemur að því að tímasetja tónleika þótt
það sé auðvitað heljarinnar verk.
Þórður Ingi Jónsson
NIÐURSTAÐA: Danstónlist fyrir framtíðina.
Framsækið, öðruvísi og fær mann til að dilla
sér.
Danstónlist framtíðarinnar
NGUZUNGUZU Fútúrísk klúbbatónlist með fram-
sækna takta. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
STUÐIÐ
HÉLT ÁFRAM
Á AIRWAVES
Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves hélt áfram
á fi mmtudagskvöld með fj ölda vel heppnaðra
tónleika víða um Reykjavíkurborg.
★★★★ ★
La Femme
Iceland Airwaves
HARPA SILFURBERG
Franska hljómsveitin La Femme
var fljót að hrífa áhorfendur
með sér þegar hún mætti á svið
í Silfurbergi.
Tónlistin var stórskemmtileg
en þar fyrir utan var sviðsfram-
koman afar hressileg. Einn með-
limanna sex mætti í bleikum
samfestingi með gæru yfir sér
en annar var með tvær mis-
munandi grímur yfir andlitinu
alla tónleikana. Sannkallaður
ærslabelgur þar á ferð. Sá þriðji
lét sér aftur á móti gömlu, góðu
lopapeysuna nægja.
La Femme hafði stillt upp
þremur hljómborðum fremst
á sviðinu og tónlistin var eins
konar hljóðgervlapopp, eða bara
ekta franskt stuðpopp. Sum
lögin byrjuðu rólega en voru svo
keyrð upp í ofurstuð í lokin. Oft
voru þau ansi löng en það kom
aldrei að sök því gæðin voru slík
að manni leiddist aldrei.
Ekki var hægt annað en að
hrífast með tónlistinni og til
marks um það hefur undirrit-
aður sjaldan séð jafnmarga
karlmenn dilla sér á einum og
sömu Airwaves-tónleikunum.
Sömuleiðis hikuðu sumir ekki
við að láta salinn halda sér á
floti, „crowdsörfa“.
La Femme var stofnuð árið
2010 af þeim Marlon Magnée og
Sacha Got. Sveitin hefur gefið út
eina stóra plötu, Psycho Tropi-
cal Berlin, og verður gaman að
fylgjast með henni í framtíð-
inni.
Eftir tónleikana kvaddi hljóm-
sveitin áhorfendur með orð-
unum Merci Reykjavík! Frekar
væri nær að segja Merci
beaucoup La Femme!
Freyr Bjarnason
NIÐURSTAÐA: Stórskemmtilegt
franskt stuðpopp.
Merci beaucoup La Femme!
LA FEMME Sviðsframkoma frönsku
hljómsveitarinnar var sérlega skemmti-
leg. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
★★★ ★★
Pins
Iceland Airwaves
HARPA SILFURBERG
Hljómsveitin Pins er frá Man-
chester á Englandi og er hrein-
ræktuð kvennasveit, skipuð þeim
Faith Holgate (söngur og gítar), Lois
McDonald (gítar), Anna Donigan
(bassi) og Lara Williams (trommur).
Holgate mætti á sviðið með gít-
arinn í hendi, berleggjuð í svörtu,
þröngu dressi, og tókst ágætlega
að vinna salinn á sitt band. Hljóm-
sveitin spilaði frekar hægt og ein-
falt pönkrokk og skilaði sínu mjög
vel. Stundum minnti Pins á The
Savages, svokallað póstpönk-band
einnig frá Englandi, sem spilaði á
Airwaves í fyrra við góðar undir-
tektir. Freyr Bjarnason
NIÐURSTAÐA: Prýðilegt pönkrokk frá
kvennasveitinni Pins.
Prýðilegt
pönkrokk
PINS Hljómsveitin er frá Manchester á
Englandi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
STEMNING Mikil stemning var á tónleikum La Femme í Silfurbergi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
LA FEMME
AMABADAMA
HORSE THIEF
PINS