Fréttablaðið - 08.11.2014, Síða 124
8. nóvember 2014 LAUGARDAGUR| SPORT | 80
Neikvæð úrslit gætu
hvatt menn til dáða og
fengið þá til að sanna sig
í næsta leik.
Lars Lagerbäck
landsliðsþjálfari.
FÓTBOLTI Gunnleifur Gunnleifs-
son er ekki lengur í hópi þriggja
bestu markvarða landsins því Lars
Lagerbäck og Heimir Hallgríms-
son völdu þennan 39 ára mark-
vörð Breiðabliks ekki í landsliðs-
hóp sinn fyrir leiki gegn Belgíu og
Tékklandi í næstu viku.
Heimir og Lars völdu frekar
Ingvar Jónsson, markvörð Stjörn-
unnar, og Ögmund Kristinsson,
markvörð Randers í Danmörku.
Ingvar hefur verið í hópnum í síð-
ustu leikjum en á enn eftir að spila
landsleik. Ögmundur kom inn á á
móti Eistlandi í júní en hafði ekki
verið í hópnum síðan.
Gunnleifur Gunnleifsson hefur
verið fastamaður í hópnum síðan
Lars Lagerbäck tók við liðinu í árs-
byrjun 2012 og alls verið í hópn-
um í 25 af 27 leikjum. Gunnleifur
hefur hins vegar ekki tekið þátt í
nema fimm þeirra og hann hefur
ekki spilað keppnisleik frá árinu
2010.
Gunnleifur er fimmti leikreynd-
asti markvörður karlalandsliðsins
frá upphafi með 26 leiki en Hannes
Þór Halldórsson, aðalmarkvörður
íslenska liðsins, er kominn með 24
landsleiki og er líklegur til að taka
fljótlega fimmta sætið af þeim
Gunnleifi og Friðriki Friðrikssyni.
„Við erum alls ekki ósáttir við
Gunnleif. Hann bankar á og held-
ur þeim við efnið. Við sjáum svo
hvað gerist í næsta verkefni,“
sagði Heimir Hallgrímsson, annar
þjálfara Íslands, í gær.
Gunnleifur lék þrjá fyrstu lands-
leiki sína á árunum 2000 og 2001
en síðan var hann ekki með í lands-
liðinu fyrr en árið 2008 þegar hann
var á 33. aldursári. Gunnleifur var
síðan aðalmarkvörður landsliðsins
frá 2009 til 2010. Nú er hins vegar
óvíst hvort hann verður aftur með
en það styttist í fertugsafmælið
hans þegar liðið mætir Kasökum
í lok mars. - óój
Í hópnum í öllum nema tveimur
Gunnleifur Gunnleifsson var ekki valinn í landsliðshóp Heimis og Lars í gær.
ENDASTÖÐ? Gunnleifur Gunnleifsson á
æfingu landsliðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHEM
FLESTIR LANDSLEIKIR
MARKVARÐA ÍSLANDS
BIRKIR KRISTINSSON (1988-2004) 74
ÁRNI GAUTUR ARASON (1998-2010) 71
BJARNI SIGURÐSSON (1980-1991) 41
ÞORSTEINN BJARNASON (1978-1986) 28
GUNNLEIFUR GUNNLEIFSS. (2000-2014) 26
FRIÐRIK FRIÐRIKSSON (1982-1995) 26
HELGI DANÍELSSON (1953-1965) 25
HANNES ÞÓR HALLDÓRSS. (2011-2014) 24
JÓHANNES ATLASON (1967-1972) 24
FÓTBOLTI Landsliðshópur Íslands
fyrir leikina gegn Belgíu og Tékk-
landi í næstu viku var tilkynntur
í gær. Fátt kom á óvart í liðsvali
þeirra Lars Lagerbäck og Heimis
Hallgrímssonar en einn nýliði er í
hópnum – Hörður Björgvin Magn-
ússon sem leikur með Cesena í
ítölsku úrvalsdeildinni.
Lagerbäck á sem kunnugt er
langan feril að baki sem lands-
liðsþjálfari en segir að þetta sé
í fyrsta sinn sem lið hans leiki
æfingaleik svo skömmu fyrir
mótsleik líkt og Ísland gerir nú.
Strákarnir mæta Belgum í vin-
áttulandsleik í Brussel á miðviku-
dag en Tékklandi í undankeppni
EM 2016 fjórum dögum síðar. Sá
leikur fer fram í Plzen og er topp-
leikur A-riðils í undankeppninni
þar sem bæði lið eru með fullt hús
stiga eftir þrjár umferðir.
„Við munum ekki ákveða fyrr
en eftir helgina hverjir spila gegn
Belgíu. Það ræðst af ástandi leik-
manna eftir leiki helgarinnar en
hugmyndin er að gefa leikmönnum
sem hafa lítið fengið að spila tæki-
færi í byrjunarliðinu og gera jafn-
vel 3-4 breytingar í hálfleik. En
það er erfitt að meta það nú hver
niðurstaðan verður,“ sagði Lager-
bäck við Fréttablaðið í gær.
Lærum mest að spila við góð lið
Strákarnir eru á mikilli sigl-
ingu eftir sigrana þrjá í undan-
keppninni í haust og ekki síst
glæstan 2-0 sigur á Hollandi á
Laugardalsvellinum. Ljóst er að
andstæðingurinn á miðvikudag-
inn verður ekki af lakari end-
anum en Belgía hefur á að skipa
gríðarlega öfl ugum leikmanna-
hópi en liðið er nú í fjórða sæti
styrkleikalista FIFA og er þar
næstefsta Evrópuþjóðin.
„Ég tel að við lærum mest af því
að spila við sterkar þjóðir,“ segir
hann og kveðst ekki óttast afleið-
ingarnar þótt úrslitin í leiknum
verði íslenska liðinu óhagstæð.
„Það fer ef til vill fremur eftir
frammistöðunni í leiknum heldur
en niðurstöðunni. Neikvæð úrslit
gætu þess vegna hvatt menn
til dáða og fengið þá til að vilja
sanna sig í næsta leik. Það er þó
aldrei gott að tapa og sérstaklega
ef það bitnar á einstökum leik-
mönnum. Það er heldur ekki gott
að tapa með miklum mun en ég hef
almennt ekki áhyggjur af því.“
Hann segir að þjálfararnir hafi
ekki íhugað að taka með sér fleiri
leikmenn til Belgíu til þess að gefa
fleiri leikmönnum tækifæri til að
sýna sig og sanna.
„Mér finnst þessi blanda af 20
útileikmönnum og þremur mark-
vörðum vera góð og henta æfing-
unum vel. Ef það eru fleiri leik-
menn þarf að taka einhverja á
séræfingar og annað slíkt. Ef allir
leikmenn eru heilir, líkt og tilfellið
er nú, er best að vera með 23 leik-
menn í hópnum.“
eirikur@frettabladid.is
Óttast ekki stórt tap
Lars Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson tilkynntu landsliðshóp Íslands fyrir
næstu tvo landsleiki í knattspyrnu. Ísland mætir fyrst Belgíu í vináttulandsleik á
miðvikudag og fer það eft ir ástandi leikmanna hverjir munu spila í honum.
ÞJÁLFARARNIR Lars Lagerbäck ræðir við fréttamenn í gær en með honum eru
Guðmundur Hreiðarsson og Heimir Hallgrímsson. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
GOLF Birgir Leifur Hafþórsson, Þórður Rafn Gissurarson og Ólafur Björn Lofts-
son eru allir á meðal keppenda á öðru stigi úrtökumóts-
ins fyrir Evrópumótaröðina í golfi en mótið fer fram
á Compo de Golf El Saler-vellinum við Valencia á
Spáni.
Birgir Leifur lék fyrsta hringinn á 73 höggum og
er í 17. til 26. sæti. Ólafur Björn Loftsson lék á 75
höggum sem kom honum upp í 36. til 42. sæti en
Þórður Rafn lék aftur á móti á 11 höggum yfir pari
(83 högg) og er í 73. og síðasta sæti.
Alls er keppt á fjórum völlum á öðru stigi úr-
tökumótsins á Spáni en það kemur ekki í ljós
fyrr en á laugardaginn hversu margir kylfingar
komast áfram af hverjum velli. Það eru alls
293 kylfingar sem keppa um að komast inn á
lokaúrtökumótið. - óój
Birgir Leifur í bestri stöðu á Spáni
FÓTBOLTI Lars Lagerbäck, annar
þjálfara íslenska landsliðsins, er
mjög ánægður með að leikmenn
íslenska liðsins hafa ekki fengið
mörg spjöld í fyrstu þremur leikj-
um íslenska liðsins í undankeppni
Evrópumótsins.
Íslenska liðið er á toppi síns rið-
ils en liðið hefur náð í 9 stig af 9
mögulegum og er auk þess með
markatöluna 8-0. Íslensku strák-
arnir hafa verið skynsamir í sínum
leik því þrátt fyrir mikla grimmd
og harða baráttu eru gulu spjöldin
bara tvö á fyrstu 270 mínútunum.
Þetta er mikil framför frá síð-
ustu undankeppni þegar íslensku
leikmennirnir fengu átta gul
spjöld og eitt rautt spjald í fyrstu
þremur leikjunum.
„Það er virkilega gott líka
hversu fá gul spjöld við höfum
fengið,“ sagði Lars Lagerbäck
á blaðamannafundinum í gær.
Gylfi Þór Sigurðsson og Ari Freyr
Skúlason eru þeir einu sem hafa
náð sér í gult spjald í sigurleikj-
unum á móti Tyrklandi, Lettlandi
og Hollandi. Þeir Gylfi og Ari fara
í leikbann fái þeir annað spjald en
enginn annar leikmaður íslenska
liðsins er á hættusvæði. - óój
Sáttur með fá gul spjöld
Sjö færri spjöld en í síðustu undankeppni liðsins.
FÁ GUL Ari Freyr Skúlason var ekki
sátt ur við sitt spjald. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
LIVERPOOL-CHELSEA
Lau. 8. nóv. kl. 12:45
Sun. 9. nóv. kl. 16:00
SWANSEA-ARSENAL
Í opinni dagskrá á dominoshelgin.is
Stór pizza af matseðli, 2 L Coke og
Súkkulaði-, Kanil- eða Ostagott.
Ef þú sækir, 6.–9. nóv.
FÓTBOLTI Stórleikur helgarinnar í
enska boltanum er í hádeginu í dag
þegar Liverpool tekur á móti Chelsea.
Chelsea situr í toppsæti deildar-
innar með 26 stig og hefur ekki enn
tapað í fyrstu tíu leikjum sínum í
deildinni.
Liverpool er ekki alveg á sömu
siglingu og situr í sjöunda sæti
deildarinnar með 14 stig. Ekki sá
árangur sem stefnt var að. Það myndi
aftur á móti gefa liðinu mikið ef því
tækist að skella Chelsea í dag.
Það eru aftur á móti ekki góð
tíðindi fyrir Liverpool að framherj-
inn Diego Costa er klár í slaginn
á nýjan leik fyrir Chelsea og mun
líklega byrja leikinn.
Jose Mourinho, stjóri Chelsea, var
spurður út í gengi Liverpool á blaða-
mannafundi í gær.
„Staða liðsins kemur mér ekki á
óvart. Það er ekkert í þessari deild
sem kemur mér á óvart. Allir leikir
eru erfiðir og aldrei hægt að vita
hvenær lið tapa stigum. Ég lít svo á
að Liverpool sé að berjast um titilinn
rétt eins og við,“ sagði Mourinho og
bætir við að það sé alltaf erfitt að
spila á Anfield.
„Áhorfendur hérna geta alltaf haft
áhrif á gang mála. Mér finnst gaman
að spila hérna en sumir upplifa
andrúmsloftið á neikvæðan hátt.“
- hbg
Gengi Liverpool kemur mér ekki á óvart
LÆTI Mourinho rífst hér við leikmenn
Liverpool. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
SPORT