Fréttablaðið - 08.11.2014, Page 126

Fréttablaðið - 08.11.2014, Page 126
8. nóvember 2014 LAUGARDAGUR| SPORT | 82 HANDBOLTI „Ég er búinn að hafa samband við IHF vegna þessa máls. Ég hringdi í þá og minnti á okkar kröfur í tilefni þessara tíð- inda,“ segir Guðmundur B. Ólafs- son, formaður HSÍ, en tíðindin sem hann talar um eru þau að Barein hefur hætt við að taka þátt á HM í Katar í janúar. Einnig eru taldar líkur á því að Sameinuðu arabísku furstadæmin hætti við þátttöku. Eins og þjóðinni ætti að vera í fersku minni varð allt brjálað er Alþjóða handknattleikssam bandið, IHF, ákvað að veita Þjóðverjum sæti á mótinu sem HSÍ taldi sig eiga að fá. Reglunum var breytt til þess að koma Þjóðverjum inn og það gæti allt eins orðið til þess að Ísland taki sæti Barein en ekki einhver Asíuþjóð. Nýju reglurnar bjóða upp á það. Ekki er lengur farið eftir fyrstu varaþjóð heldur er það nefnd sem ákveður hvaða þjóð tekur sæti sem losnar. Kærumálið enn í gangi Það var reyndar ekki alveg útséð um að Ísland fengi sætið sem Þjóð- verjum var úthlutað. HSÍ hafði nefnilega kært niðurstöðuna til dómstóls IHF og er enn beðið úrskurðar í því máli. Líkurnar á að Ísland vinni það mál eru reyndar ekki taldar vera miklar. „Kæra okkar snerist um að það væri ekki hægt að breyta reglum í miðri keppni. Samkvæmt gömlu reglunum ætti Asíuþjóð að taka sæti Barein en ef nýju regl urnar eru notaðar þá er það nefnd á vegum IHF sem ákveður hvaða þjóð tekur þetta sæti,“ segir Guð- mundur en sú nefnd fundar þann 21. nóvember næstkomandi. Þó að ekki sé komin niðurstaða í mál HSÍ gegn IHF þá gæti sú pressa sem Ísland hefur sett á IHF vegna málsins hjálpað HSÍ að fá sætið sem nú var að losna. „Okkar krafa er enn inni um að fá sæti á HM. Við vildum auð- vitað í upphafi fá sætið sem Þjóð- verjar fengu. Ég held að það geti skipt ansi miklu máli núna hvort Sameinuðu arabísku furstadæmin detta líka út. Ég held að IHF setji aldrei tvær Asíuþjóðir inn fyrir þessi tvö. Nefndin myndi örugg- lega taka ákvörðun sjálf um annað sætið sem myndi losna.“ Eins og málin eru að þróast þá virðist Ísland færast nær HM-sæti með hverjum deginum. Hversu vongóður er formaðurinn um að Ísland fái HM-sæti á endanum? „Það er erfitt að segja. Kost- urinn er að það er stutt í ákvarð- anatöku hjá IHF og við munum að sjálfsögðu halda áfram að berjast. Það á að koma niðurstaða í okkar máli gegn IHF fljótlega eða fyrir þennan fund sem verður hald- inn 21. nóvember. Við bíðum eftir dómsniðurstöðunni en ef það er hægt að leysa málið fyrir þann tíma þá er það að sjálfsögðu hið besta mál.“ Næstu tvær vikurnar verða afar áhugaverðar. Það er gríðarlegt hagsmunamál fyrir HSÍ að koma landsliðinu inn á HM til þess að auka möguleikana á að komast á ÓL í Ríó árið 2016. Leiðin til Ríó er mun greiðari ef Ísland fer eftir allt saman til Katar. henry@frettabladid.is SKÍÐI Helga María Vilhjálms- dóttir er fremsta skíðakona lands- ins þessa dagana eftir frábært ár í fyrra þar sem hún stóð sig vel á Ólympíuleikunum í Sotsjí. Helga María varð í febrúar fyrsta íslenska konan síðan á ÓL í Inns- bruck 1976 sem kemst inn á topp þrjátíu í sinni fyrstu grein á Vetrar ólympíuleikum en hún náði þá 29. sæti í risasvigi. „Það gekk mjög vel á síðasta ári og Ólympíuleikarnir standa gjörsamlega upp úr,“ segir Helga María en hún var þá stödd á kynn- ingarfundi Skíðasambands Íslands og fram undan eru æfingar og keppnir í Noregi. „Þetta lítur mjög vel út hjá mér í vetur og ég verð mikið á skíðum. Ég stefni á HM en auðvitað líka á mörg önnur mót. HM er samt aðal- verkefnið,“ segir Helga María. Helga María keppti á HM ung- linga strax á eftir Ólympíuleik- unum og viðurkennir að það hafi kannski verið fullmikið af því góða. „Það var mikið prógramm og ég var orðin svolítið þreytt í lokin. Það kom niður á niðurstöðunni á HM unglinga sem og það var smá spennufall eftir Ólympíuleikana. Það er líka mjög erfitt að standa sig vel á mörgum mótum í röð. Það er alltaf mismunandi aðstaða og mismunandi brautir. Það fylgir því líka hellings pressa,“ segir Helga María. „Þetta fer allt í reynslubankann og ég lærði mest af því að fara á þessi stórmót og sjá hvernig ég réð við það. Maður getur undir- búið sig heilan helling andlega fyrir svona mót. Einbeitingin var góð hjá mér og taugarnar héldu,“ segir Helga María um lykilinn að góðum árangri á Ólympíuleik unum í fyrra. Hún er óhrædd við að láta vaða í brekkunni og sérhæfir sig í hraðari greinunum. „Ég verð að láta svolítið vaða því þú færð lítið út úr því að bara standa niður brautina. Maður er alltaf að reyna að komast hraðar og hraðar,“ segir Helga María. Nokkrar íslenskar skíðakonur í fremstu röð hafa meiðst illa á síð- ustu árum en Helga María hræðist ekki möguleg meiðsli. „Ég er ekk- ert smeyk enda hjálpar það aldrei að hugsa þannig. Maður verður bara að halda áfram og einbeita sér að sínu,“ segir Helga. Hún hefur háleit markmið fyrir heimsmeistaramótið sem fer fram í Colorado í febrúar næstkomandi. Hún ætlar að toppa þar. „Mig langar mjög mikið að kom- ast í aðra umferðina á HM. Það eru færri í ár sem komast heldur en síðast. Þú verður að vera á meðal 30 bestu í heiminum til þess að komast í aðra umferð,“ segir Helga María en er það raunhæft? „Já,“ segir hún hikandi og bætir við: „Maður á aldrei að segja aldrei. Ég þarf þá að undirbúa mig vel og sleppa við meiðsli,“ segir Helga María. - óój Þú færð lítið út úr því að bara standa niður brautina. Maður er alltaf að reyna að komast hraðar og hraðar. Helga María Vilhjálmsdóttir Þýðir ekkert að vera smeyk í brekkunni Helga María Vilhjálmsdóttir segist ekkert hræðast þegar hún rennir sér á fullu niður skíðabrekkurnar. UNGUR REYNSLUBOLTI Helga María Vilhjálmsdóttir er yngst allra í alpagreina- landsliðinu en samt með einna mestu reynsluna. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Íslenska handboltalandsliðið hefur tvisvar sinnum komist inn á stórmót með því að fara bakdyramegin inn en það gerðist bæði fyrir Ólympíuleikana í Los Angeles 1984 og fyrir Ólympíuleikana í Barselóna árið 1992. Íslenska landsliðinu náði „bara“ sjöunda sætinu í B-keppninni í Hollandi 1983 þar sem tvö efstu sætin gáfu þátttökurétt á leikunum í Bandaríkjunum árið eftir. Þetta sjöunda sæti átti þó eftir að skila liðinu inn á endanum því tveimur mánuðum fyrir ÓL 1984 var ljóst að Sovétríkin, Tékkóslóvakía, Austur-Þýskaland, Pólland og Ungverjaland myndu ekki senda keppendur á Ólympíuleikana. Íslenska landsliðið sló síðan í gegn á ÓL í Los Angeles og náði þar sjötta sætinu sem var þá besti árangur íslensks handbolta- landsliðs á Ólympíuleikum. Átta árum síðar rétt missti íslenska landsliðið af Ólympíusæti þegar liðið endaði í þriðja sæti í B-keppninni í Austurríki. Ísland var hins vegar fyrsta varaþjóð á ÓL og fékk að lokum sæti Júgóslavíu aðeins þremur dögum fyrir leikana. Júgóslavíu var meinuð þátttaka í liðakeppni á leikunum vegna samskiptabanns Sameinuðu þjóðanna gegn Serbíu og Svartfjallalandi. Íslenska landsliðið sló heldur betur í gegn í Barselóna og spilaði í fyrsta sinn um verðlaun á stórmóti. Ísland tapaði hins vegar bæði undanúrslita- leiknum og leiknum um þriðja sætið og varð að sætta sig við að missa af verðlaunum. Þessi árangur í Barselóna var besti árangur Íslands á Ólympíuleikum þar til silfurliðið sló svo rækilega í gegn á ÓL í Peking 2008. Tvisvar bakdyramegin inn á stórmót Munum berjast fyrir sætinu Möguleikar Íslands á að taka þátt á HM í Katar í janúar jukust mikið í gær þegar Barein ákvað að draga lið sitt úr keppni. Nýju reglurnar hjá IHF, sem urðu þess valdandi að Þjóðverjar fóru á HM en ekki Ísland, gætu á endanum orðið þess valdandi að Ísland taki sæti Barein. HSÍ var fl jótt að minna á sig við IHF. RYÐJUM OKKUR LEIÐ TIL KATAR Bakdyrnar til Katar opnuðust óvænt í gær og HSÍ ætlar ekki að láta staðar numið fyrr en Ísland er búið að ryðja sér leið inn á mótið. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM BOX Hinn 49 ára gamli Bernard Hopkins berst við Rússann Sergey Kovalev í beinni á Stöð 2 Sport í nótt og mun hann þá reyna að verja heimsmeistaratitil sinn í léttþungavigt. Hopkins er magnaður íþróttamaður og er til að mynda kallaður „geimveran“. Einn er sá maður sem velkist ekki í vafa um mikilvægi við- burðarins og hann heitir Bubbi Morthens, tónlistarmaður og hnefaleikasérfræðingur, og spennan er að fara með Bubba. „Boxarinn heitir Bernard Hopkins. Það hefur enginn ein- stakur íþróttamaður í sögu íþróttanna náð þessum aldri og verið á þessum stað. Þetta er svona svipað og ef við værum að tala um hundrað metra sprett- hlaupara sem væri 49 ára.“ Bubbi segir þetta með hinum mestu ólíkindum. Og dregur ekki úr því. „Hann er að berjast á laugar- daginn í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport um titil á móti manni sem rotar andstæðinga sína í 90 pró- sentum tilfella.“ Bubbi segir að sérfræðingar erlendis tali um að Hopkins sé í raun geimvera. „Þeir skrifa um hann í Banda- ríkjunum sem geimveru. Það kæmi mér ekkert á óvart ef Bern- ard Hopkins myndi einfaldlega vinna þennan bardaga. Þetta er bara algjörlega með ólíkindum í íþrótt eins og þessari. Þetta er ein erfiðasta og harðasta íþrótta- grein veraldar. Að það skuli vera maður um fimmtugt að berjast um heimsmeistaratitil er ótrú- legt.“ Bubbi segir að allir miðlar erlendis séu að fjalla um málið þar sem það telst vera einstakt. - sáp Ver titilinn 49 ára gamall ÓTRÚLEGUR Það verður magnað að sjá Hopkins í nótt. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Ég held að það geti skipt ansi miklu máli núna hvort Sameinuðu arabísku furstadæmin detti líka út. Guðmundur B. Ólafsson
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.