Fréttablaðið - 09.12.2014, Qupperneq 38
9. desember 2014 ÞRIÐJUDAGUR| LÍFIÐ | 30
BAKÞANKAR
Söru
McMahon
„Sabbatinn er hafinn þannig að allt
stöðvast hér í bili. Nú er ég að vinna
smá þar til teitið hefst svo í kvöld,“
segir Benjamín Þór Waldmann, sem
er staddur í bænum Lod fyrir utan
Tel Avív í Ísrael. Benjamín lærir
nú til mastersprófs í deilustjórnun
og málamiðlun við háskólann í Tel
Avív. Þá vinnur hann við að stuðla
að friðsamlegri sambúð á milli araba
og gyðinga í Lod.
„Samhliða náminu starfa ég með
samtökunum Ayalim, sem hafa það
að markmiði að byggja upp fram-
tíð Ísraels – að vinna með íbúum
fátækra bæja og stuðla að fræðslu,
endurbótum, friðsamlegri sambúð
araba og gyðinga og svo framvegis.“
Benjamín býr á háskólasvæði með
120 nemendum sem flestir eru Ísra-
elar. „Sumir eru að gera þetta sem
hluta af herþjónustu sinni á meðan
aðrir eru að hjálpa við að byggja upp
bæinn með beinni þátttöku og koma
honum í betra horf. Það er mikil saga
hér en bærinn hefur svolítið lent í
þeirri aðstöðu að vera skilinn útund-
an,“ segir Benjamín en mikil fátækt
ríkir í bænum. „Hann hefur fengið
á sig óorð fyrir eiturlyfjaneyslu í
gegnum árin og hér eru ekki margir
möguleikar fyrir íbúana.“
Lod er afar blandaður bær. „Það
er mjög stórt arabasamfélag hér
ásamt mismunandi týpum af gyðing-
um; rétttrúnaðargyðingum, íhalds-
sömum gyðingum, umbótasinnum og
fleirum. Þá er einnig mikið af eþíóp-
ískum innflytjendum svo að þetta er
algjör suðupottur hvað íbúana varð-
ar. Bærinn á hins vegar ansi langt í
land. Grunngerðir samfélagsins eru
ekki til staðar,“ segir hann og bætir
við að mikilvægt sé að endurnýja
bæinn til þess að íbúar hans geti
verið stoltir yfir heimabæ sínum.
Benjamín er mikill miðjumaður
þegar kemur að deilumálum Ísraels
og Palestínu en þess má geta að afi
hans, Paul Waldmann, var gyðing-
ur sem flúði frá Vín til Bretlands
undan nasistunum. „Margir segja
fjölmiðlana vera hlutdræga í garð
Palestínumanna en það nákvæmlega
sama gildir um Ísraelana auðvitað.
Augljóslega er mikið fjallað um átök-
in milli Ísraela og Palestínumanna,
með réttu, því það er mjög stórt mál
en það eru margir aðrir hlutir sem
eru gríðarlega mikilvægir og hafa
mikil áhrif á svæðið. Til dæmis eru
það málefni arabískra Ísraela, sem
eru fastir á milli þess að hafa teng-
ingu við Palestínumenn og að vera
hluti af ísraelsku þjóðinni.“
Benjamín segir bókstafstrúar-
menn á báðum hliðum fá mesta
athyglina og að það sé miður.
„Báðar hliðar þurfa virkilega að
leggja sig fram við að skilja sjón-
armið hinna. Það er ekki auðvelt
eftir átökin í sumar, fólki finnst
það ekki vera öruggt. Sama
hversu margir deyja þá spyr fólk
sig enn: „Hvernig getum við haft
frið þegar við erum ekki örugg,
hvernig getum við ekki verið á
verði, hvernig getum við leyft
öllum að ferðast eins og þeir vilja
og búist við því að ekkert gerist?“
Málið er aftur á móti það, að þú
þarft að hafa fleiri viðræður og
bera meira traust til hinnar hlið-
arinnar. Án þess verður enginn
friður og hlutirnir versna. Þú
getur ekki fengið fram öryggi á
þennan hátt því Palestínumenn-
irnir og hinir minnihlutahóparn-
ir eiga líka heima hér.“
Bókstafstrúarmennirnir fá
því miður mestu athyglina
Benjamín Þór Waldmann vinnur við að stuðla að friðsamlegri sambúð gyðinga og araba í bænum Lod í Ísrael.
HRESSIR Benjamín með tveimur bekkjarbræðrum sínum. Annar er frá Ísrael en hinn frá Palestínu. MYND/ÚR EINKASAFNI
● Lod er lítill bær 15 kílómetra fyrir
utan Tel Avív. Íbúafjöldi er í kringum
70.000 en bærinn er mjög bland-
aður aröbum og gyðingum.
● Þar til árið 1948 var Lod (Lydda)
arababær þar sem bjuggu í kringum
20.000 múslimar og 1.500 kristnir
menn. Árið 1947 ákváðu Samein-
uðu þjóðirnar að skipta Palestínu
í tvö ríki; eitt fyrir gyðinga og eitt
fyrir araba. Nokkur arabísk ríki
gerðu árásir á hið nýstofnaða ríki og
í stríðinu 1948 sigruðu Ísraelsmenn
arabíska bæi fyrir utan svæðið sem
SÞ hafði úthlutað þeim, meðal ann-
ars bæinn Lod. Sama árið fjölgaði
íbúum í bænum þar sem arabískir
flóttamenn frá öðrum svæðum
höfðu flutt sig þangað. Brátt voru
um 1.000 arabar gerðir útlægir
úr bænum af Ísraelsmönnum en
alls voru um 70.000 arabar gerðir
útlægir frá heimabæjum sínum við
stofnun Ísraelsríkis árið 1948.
● Eftir útlegðina fluttu fjölmargir
gyðingar í bæinn en samkvæmt
tímaritinu The Economist
var þriggja metra hár veggur
reistur í bænum árið 2010 til
að aðskilja hverfi gyðinga og
araba auk þess sem hömlur
voru settar á byggingastarfsemi
araba, á meðan hvatt var til
byggingastarfsemi í hverfum
gyðinga.
STIKLAÐ Á STÓRUM UM SMÁBÆINN LOD (LYDDA)
Þórður Ingi Jónsson
thorduringi@frettabladid.is
Save the Children á Íslandi
Nicole Kidman segir að árið 2014
hafi verið það erfiðasta hjá fjöl-
skyldu sinni til þessa. Faðir henn-
ar, Dr. Antony Kidman, lést úr
hjartaáfalli í Singapúr í septem-
ber, 75 ára að aldri.
„Þetta ár verður eitt það
erfðasta sem fjölskyldan okkar
hefur nokkru sinni gengið í gegn-
um, ég meina það allra erfiðasta,“
sagði leikkonan við Sydney Daily
Telegraph. „Ég vil tala um þetta
því ég vil halda minningu hans á
lofti,“ sagði hún og bætti við. „Eins
og allar fjölskyldur vita, þá verða
þær nánari þegar þær verða fyrir
missi. Við verðum að vernda hvert
annað.“
Erfi ðasta árið
til þessa
NICOLE KIDMAN Árið 2014 reyndi
mjög á fjölskyldu hennar.
5, 7, 10(P)
5
5:30, 8, 10:20
8, 10:30
ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR
MOCKINGJAY– PART 1 KL. 6 – 9 – 10.30
DUMB AND DUMBER TO KL. 5.30 – 8 – 10.30
MÖRGÆSIR ÍSL TAL 2D KL. 5.30
MÖRGÆSIR ÍSL TAL 3D KL. 5.30
NIGHTCRAWLER KL. 8 – 10.30
ST. VINCENT KL. 8
MOCKINGJAY – PART 1 KL. 5 – 8 – 9 – 10.45
MOCKINGJAY – PART 1 LÚXUS KL. 5 – 8 – 10.45
MÖRGÆSIR ÍSL TAL 2D KL. 3.15 – 5.30
MÖRGÆSIR ÍSL TAL 3D KL. 3.15 – 5.30
MÖRGÆSIR ENSKT TAL 3D KL. 8
DUMB AND DUMBER TO KL. 3.30 – 6 – 8 – 10.30
GONE GIRL KL. 10.15
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÁLFABAKKA
AKUREYRI
EGILSHÖLL
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
EMPIRENEW YORK POST
TIME OUT LONDON VARIETY
EMPIRE ROLLING STONE
Nú fer senn að líða að jólum og mann-skapurinn kominn mislangt með allan
undirbúning; sumir eru búnir að ljúka
öllum verkefnum á meðan aðrir eru rétt
að byrja.
EITT sem ég hef komist að í gegnum tíðina
er að jólin snúast fyrst og fremst um gott
skipulag og minna um hinn fræga jóla-
anda (þetta er grín en samt ekki). Ég er
ekki ein um að halda þessu fram því
á internetinu rekst maður í æ meira
mæli á gátlista sem eiga að aðstoða
fólk við að skipuleggja jólin: 101
Days to Christmas – Day by Day to an
Organized Christmas, Get Ready for
Christmas Countdown, 10 Things to
Do to Get Ready for Christmas. Allt
góðir og gildir gátlistar sem geta
auðveldað jólaundirbúninginn.
ÉG hef ákveðið að taka saman
minn eigin gátlista fyrir ykkur
sem ekki nennið að finna slíka
á netinu. Skrefin að góðum og
skipulögðum jólum eru fjögur
talsins, einföld og léttunnin:
1. Undirbúningur hefst í ágústmánuði. Þá
skal kaupa vænan skammt af jólagjöf-
um. Seinni skammt á að kaupa í septem-
ber.
2. Hefjið bakstur í október og skellið
þessu í frysti.
3. Notið nóvember til að taka til í skápum
og þrífa hátt og lágt.
4. Pakkið inn gjöfum í desember og bjóðið
fólki heim í þíddar smákökur. Jólamat-
inn má svo elda í byrjun desember og
henda í frysti.
EF samlandar mínir taka sig til, allir sem
einn, og fylgja þessum stutta og hófsam-
lega gátlista mínum þá verða jólin 2015
hægðarleikur einn. Skipulaginu munu svo
fylgja aðrir óvæntir kostir. Til að mynda
mun verslunarfólk ekki þurfa að vinna
jafn langa vinnudaga í desember því jóla-
gjafainnkaupin skiptast niður á ágúst og
september. Þau fá því að njóta aðventunn-
ar með okkur hinum, aldrei þessu vant.
Svo mun fólk uppgötva að Sörur bragðast
betur hálffrosnar og þrif geta verið hin
besta fjölskylduskemmtun þegar þau fara
fram í góðu tómi.
4 skref að vel skipulögðu jólahaldi
Salóme 18.15
Whiplash 17.45, 20.00
Turist 17.45, 22.15
Clouds of Sils Maria 20.00
White God 22.15
20.000 days on Earth 22.30
HAPPY HOUR Á
BARNUM 17-20
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ 1000 KALL MIÐINN!