Fréttablaðið - 13.12.2014, Side 26
13. desember 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 26
Markaður hönnuða og vefverslana
verður haldinn í dag á Kexi hos-
teli. Sigríður Dagný Sigurbjörns-
dóttir, eigandi vefverslunar, segir
nauðsynlegt að komast í sam-
band við viðskiptavininn. „Ég og
Guðný Hrefna Sverrisdóttir erum
eigendur vefverslana og ákváðum
að fara af stað með markað fyrir
jólin. Svo fór boltinn að rúlla og
tengslanetið styrktist. Núna erum
við orðin þrettán.“
Sigríður segir vefverslanir vera
faldar að því leyti að þær starfa á
netinu og allt er afgreitt í gegnum
tölvuna. „Maður fær jólaandann
í æð með því að hitta viðskipta-
vininn sem er að skoða vöruna
manns. Í raun er tölvan búðin
þín allt árið um kring þannig að
þetta verður mikil hátíð – að hitta
viðskiptavininn. Svo er ekkert
jafn jólalegt og að starfa bak við
búðar borðið í jólaösinni.“
Sigríður byrjaði með verslun
sína, kolka.is, fyrir ári og þá voru
ekki margar vefverslanir sem
buðu upp á lífsstílsvörur. Á þessu
ári hafa aftur á móti sprottið upp
vefverslanir og einyrkjarnir í
hönnun eru gríðarlega margir.
„Fólk hefur líka aukinn áhuga
á að sækja markaði og styrkja
íslenska hönnun. Við erum svo lítið
litlu kaupmennirnir á horninu og
það er náttúrulega ekkert eins
fallegt og íslensk hönnun.“
Markaðurinn verður haldinn
í dag frá klukkan tíu til fimm á
Kexi hosteli.
Erla Björg
Gunnarsdóttir
erlabjorg@frettabladid.is
Á OPNUN JÓLABÆJARINS
á Ingólfstorgi klukkan 16 í
dag. Þar munu feðgarnir Gilja-
gaur og Leppalúði ásamt geithafri
hins síðarnefnda taka höndum og
fótum saman við Hornaflokk vætt-
anna, Jólakórinn Graduale Futurae og
fjölmarga góða gesti.
Á THE ULTIMATE CHRIST-
MAS COLLECTION með Elvis
Presley. Ekkert kemur manni
eins fljótt og vel í jólaskapið og Elvis.
Það er garanterað.
BÓKINA
SIGUR-
SVEINN
– Baráttuglaður
brautryðjandi,
eftir Árna Björns-
son. Ævisaga
Sigursveins D.
Kristinssonar
er merkileg
heimild um
stórmerka ævi
frumkvöðuls
sem lét ekkert stöðva sig.
Á THE HUNGER GAMES:
CATCHING FIRE á Stöð 2
klukkan 22.20 í kvöld. Mynd
sem enginn má missa af og jafnvel
þótt þú hafir séð hana áður þá er
þetta mynd sem er vel virði annars
áhorfs.
Sigurður Hlöðversson,
útvarpsmaður og plötusnúður
Stemning og gleði
Ég ætla að fara út með fjölskyldunni að
borða um helgina og stýra eins og
einum útvarpsþætti. Svo verð ég að
skemmta á Hótel Sögu jólahlað-
borðum, það verður sko stemm-
ari þar. Svo ætla ég mér að
springa úr gleði yfir Manchester
United-Liverpool leiknum á
sunnudag. Annars verður bara
rólegt.
Ingvar Smári Birgisson,
formaður Heimdallar
Lærir með hálfum hug
LÆRA. Ætli tíminn sem fer í
lærdóm fari ekki aðallega í að
hugsa um allt það skemmti-
lega sem ég muni gera um
næstu helgi AÐ LOKNU PRÓFI.
Þá verður próflokum svo
sannarlega fagnað!
Sigríður Arnardóttir,
fjölmiðlakona
Fjölskylda og vinna
Ég byrja alltaf helgina á því að
rífa í lóðin með Önnu Borg í
Heilsuborg. Í dag málum við
herbergi og á morgun tökum
við á móti syni okkar sem
kemur heim í jólafrí úr háskóla
í Bandaríkjunum. Svo sendi ég
út þátt á Rás 2 á morgun.
Helga Möller, söngkona
Jólatónleikar á Akureyri
Ég syng á þrennum jólatón-
leikum í Hofi á Akureyri um
helgina sem heita Norðurljós-
in. Svo þarf ég bara að koma
mér í bæinn áður en illviðrið
skellur á af því ég er með
fjórar framkomur í jólahlað-
borði á sunnudaginn.
Fá jólaandann beint í æð
Hönnuðir og eigendur vefverslana starfa allt árið um kring bak við tjöldin en stíga fram á markaði.
RAÐAÐ UPP Á MARKAÐ Guðný Hrefna Sverrisdóttir raðar upp vörum fyrir markaðinn en hún rekur vefverslunina Minimal decor. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Piparkökur
500 gr hveiti
250 gr sykur
250 gr smjörlíki
375 gr síróp
6 tsk. lyftiduft
2 tsk. matarsódi
1 tsk. negull
1 tsk. kanill
1 tsk. kakó
1 tsk. engifer
1 tsk. pipar (hvítur)
1 egg
Aðferð
Hnoðið í hrærivél eða
leyfið börnunum að
hnoða með höndunum og
setjið þá þurrefnin fyrst.
Myljið síðan smjörlíkið
saman við, bætið sírópinu
við og hnoðið við þurr-
efnin. Bætið við hveiti ef
deigið er of blautt.
Fletjið deigið þunnt út og
skerið út. Setjið á bök-
unarklædda ofnplötu og
bakið við 175 gráður
í 10 til 12 mínútur.
Þetta deig má baka
strax og þarf ekki að
láta standa í kæli í
marga tíma.
Glassúr
Hægt er að kaupa
tilbúna liti í túpum.
Annars hræra flórsykri
og vatni saman og skipta
í nokkrar skálar. Blanda
svo matarlit saman við.
Notaleg piparkökustund
Á aðventunni getur verið huggulegt að hnoða saman í deig, skera
út og skreyta piparkökur í faðmi fj ölskyldunnar. Hér er uppskrift
sem hentar vel fyrir óþolinmóða því deigið þarf ekki að kæla.
JÓLASKRAUT Sumir fá útrás fyrir listræna hæfileika og nota
piparkökurnar sem fallegt jólaskraut.
HELGIN
13. desember 2014 LAUGARDAGUR
FARÐU
HLUSTAÐU
LESTU
HORFÐU...