Fréttablaðið - 13.12.2014, Blaðsíða 110
13. desember 2014 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 74
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
HALLDÓR BJARNI ÞÓRHALLSSON
húsasmíðameistari,
Grundargerði 4,
Reykjavík,
lést þriðjudaginn 9. desember.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju
föstudaginn 19. desember kl. 13.00.
Guðbjörg Bergsveinsdóttir
Bergsveinn Halldórsson Eygló Aðalsteinsdóttir
Þórhallur Halldórsson Margrét Guðmundsdóttir
Rúnar Halldórsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæri
JÓHANNES S. PÁLSSON
frá Furubrekku,
Staðarsveit,
Arnarheiði 13 A,
Hveragerði,
lést á hjúkrunarheimilinu Ási, Hveragerði,
26. nóvember sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Ástríður G. Jóhannesdóttir Gunnlaugur Björnsson
Gísli J. Gíslason
Hólmfríður Skaftadóttir
Guðmundur Svavarsson Hrafnhildur Gunnarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
EYSTEINN LEÓ JÓNSSON
Látraseli 11,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans
fimmtudaginn 11. desember.
Útförin verður auglýst síðar.
Sigríður Guðmunda Jónsdóttir
Jóhanna Eysteinsdóttir Pétur Steinn Sigurðsson
Jón Björn Eysteinsson Margrét Káradóttir
Sigrún Eysteinsdóttir Hlynur Geir Guðmundsson
Sigríður Eysteinsdóttir Sigurður Gunnar Markússon
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir,
systir, mágkona og amma,
GUÐLAUG BÁRA ÞRÁINSDÓTTIR
Hátúni 12, Reykjavík,
lést á Landspítala í Fossvogi sunnudaginn
7. desember. Hún verður jarðsett frá
Grafarvogskirkju miðvikudaginn
17. desember kl. 13.00. Þeim sem vildu
minnast hennar er bent á Sjálfsbjargarheimilið.
Guðrún Árný Árnadóttir Jens Jóhannsson
Óskar Þór Þráinsson Anna Guðmundsdóttir
Ásthildur Bára
Árni Björn
Gunnar Alex
Kær eiginmaður, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi,
bróðir, mágur og frændi,
JÓN SKÚLI SIGURÐSSON
lést 3. desember sl. Útförin hefur farið fram
í kyrrþey að ósk hins látna. Sérstakar þakkir
til alls starfsfólks á líknardeild LSH
í Kópavogi fyrir góða umönnun.
Með þakklæti fyrir veitta samúð og kærleik.
Tatiana Trofimova
Kristina Trofimova
Júlía Trofimova Óskar Ingi Óskarsson
Elísabet Olga og Katrín Lilja Óskarsdætur
Bernt H. Sigurðsson Jónína K. Kristjánsdóttir
Harald Sigurðsson
Agnar Már Sigurðsson Guðbjörg Ágústsdóttir
og fjölskyldur.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
PÁLÍNA MAGNÚSDÓTTIR
frá Reykjum í Fnjóskadal,
lést á dvalarheimilinu Hlíð 4. desember.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju
18. desember kl. 13.30.
Guðmundur Hafsteinsson Karítas Erla Jóhannesdóttir
Sólrún Hafsteinsdóttir Sigurður B. Jónsson
Lára Hafsteinsdóttir Fjölnir Sigurjónsson
Gunnar M. Guðmundsson Erna H. Gunnarsdóttir
Þóra K. Guðmundsdóttir Magnús Hallur Sævarsson
ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
JÓN AUÐUNN VIGGÓSSON
málarameistari,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni þann
3. desember. Útför hans verður gerð
frá Langholtskirkju þriðjudaginn
16. desember kl. 11.00.
Steinn Auðunn Jónsson Ásgerður Sverrisdóttir
Dagbjört Nanna Jónsdóttir Sigurberg Jónsson
Þórunn Jónsdóttir Haraldur Helgason
barnabörn og barnabarnabörn.
Haldið verður upp á það á mánudaginn
klukkan 11 að tíu þúsundasti nemand-
inn tekur sæti á Skólaþingi.
Skólaþingi var komið á fót í nóvem-
ber 2007. Þar með var komið til móts
við áhuga skólafólks á að koma með
nemendur í vettvangsferðir á Alþingi.
Hver heimsókn tekur um tvær og hálfa
klukkustund með stuttu hléi.
Nemendur úr efstu bekkjum 70
grunnskóla hafa nú heimsótt Skóla-
þing. Þar fara þeir í hlutverkaleik og
fylgja í stórum dráttum reglum um
starfshætti Alþingis.
Nemendurnir fá tækifæri til að setja
sig í spor þingmanna með því að leiða
til lykta fyrir fram ákveðin málefni
sem fyrir þá eru lögð á þingflokks-
fundum, nefndarfundum og þingfund-
um. Jafnframt hlusta þeir á og meta
rök sérfræðinga sem kallaðir eru til að
veita þingmönnum ráðgjöf og meta rök
þeirra. Þannig eiga þeir að fá innsýn í
sambandið milli atburða í samfélaginu,
skoðanamyndunar, pólitískra ákvarð-
ana og starfa Alþingis. Síðan eiga þeir
að komast að lýðræðislegri niðurstöðu
með því að meta rök og álit annarra og
taka afstöðu.
- gun
Fá innsýn í störf Alþingis
Tíu þúsundasti grunnskólanemandinn tekur sæti á Skólaþingi Alþingis á mánudaginn
og mun forseti Alþingis fagna þeim tímamótum sérstaklega.
Á ÞINGI Nemendur Vatnsendaskóla á þingflokksfundi Hagsældarflokksins.
„Við erum að fljúga til London Gat-
wick flugvallar og erum á leiðinni til
Brighton að versla inn jólagjafirnar
og njóta þess að ganga um bæinn.
Við erum búin að vera saman í sjö ár
og höfum aldrei komist í frí saman
áður, svo það má segja að þetta sé
stór stund hjá okkur,“ sagði Gunn-
hildur Blöndal sem var milljónasti
farþegi flugfélagsins WOW air. Hún
var á leið úr landi í gær ásamt manni
sínum Björgvini Viktori Þórðarsyni.
Hún fékk af þessu tilefni gjafabréf
fyrir tvo úr hendi Skúla Mogensen,
stofnanda og forstjóra WOW air, og
kvaðst ætla að skella sér með Björg-
vini til Dyflinnar næsta sumar.
„Ég er mjög stoltur af því að í
dag skulum við fljúga með millj-
ónasta gestinn okkar og afar þakk-
látur fyrir þær móttökur sem við
höfum fengið bæði hér innanlands
og erlendis frá fyrsta degi,“ sagði
Skúli. „Það er magnað að hafa flogið
með þrefaldan fjölda íslensku þjóð-
arinnar frá fyrsta flugi okkar fyrir
tveimur og hálfu ári. Fyrsta árið
flugu um 110 þúsund farþegar með
WOW air og árið 2013 um 415 þús-
und.“ -gun
Milljónasti farþeginn
Gunnhildur Blöndal tók við gjafabréfi frá fl ugfélaginu WOW air í gær í tilefni þess að hún
var milljónasti farþeginn sem fl aug með félaginu frá stofnun þess árið 2012.
VIÐ AFHENDINGUNA Gunnhildur og Björgvin Viktor voru að stinga af til Brighton þegar
þau fengu gjafabréfið.