Fréttablaðið - 13.12.2014, Blaðsíða 127
LAUGARDAGUR 13. desember 2014 | LÍFIÐ | 91
Jennifer Aniston vill endurinn-
rétta piparsveinaíbúð unnusta síns,
Justins Theroux, í New York vegna
þess að það er alltof langt síðan
hún gerði eitthvað slíkt.
Aniston og Theroux hafa verið
trúlofuð síðan í ágúst 2012. Þau
eiga hús í Bel Air í Kaliforníu og
búið er að taka það í gegn. Pipar-
sveinaíbúðin er næst á dagskrá.
„Ég elska þetta,“ sagði hún um
innanhússhönnun. „Þetta er fínt
áhugamál, þannig séð. Ég á erfitt
með að sitja kyrr og því er gaman
að gera eitthvað svona. Ég hef ekk-
ert gert síðan júní,“ bætti hún við í
léttum dúr.
Breytir íbúð
unnustans
TRÚLOFUÐ Aniston og Theroux
trúlofuðu sig í ágúst árið 2012.
Adam Levine, söngvari Maroon
5, vill eignast sautján börn með
eigin konu sinni Behati Prinsloo.
Hann vill eignast stóra fjölskyldu
með Prinsloo, fyrirsætu hjá Vict-
oria ś Secret, en gerir sér grein
fyrir að það verði ekki á næstunni.
„Ég vil örugglega sautján. Er
það ekki temmilegt? Ég elska börn
og hef gaman af krökkum sem
koma á tökustað,“ sagði hann en
Levine er dómari í sjónvarpsþætt-
inum The Voice. Hann bætti við í
samtali við E! News að barneignir
væru fyrirhugaðar í framtíðinni
en vissi ekki hvenær.
Vill eignast
sautján börn
ADAM LEVINE Söngvarinn vill eignast
helling af börnum með eiginkonu sinni
Behati Prinsloo.
Allt stefnir í að ilmvatn söngkon-
unnar Beyoncé, Rise, verði vinsælasta
stjörnuilmvatnið í Bretlandi á þessu
ári. Búist er við að það seljist yfir 750
þúsund flöskur þar í landi árið 2014.
Talið er að hún þéni tæpar 300 millj-
ónir króna á þeirri sölu.
Næstvinsælasta ilmvatnið er That
Moment frá strákabandinu One Direc-
tion en talið er að um 450 þúsund
flöskur seljist af því. Ilmvötn frá Che-
ryl Fernandez-Versini, Nicki Minaj og
Katy Perry komust einnig á topp-tíu
listann, ásamt ilmvötnum frá Rihönnu,
Victoriu Beckham, Taylor Swift og
Lady Gaga.
„Þetta hefur verið gott ár fyrir ilm-
vötn stjarnanna. Þetta snýst allt um
poppstjörnur,“ sagði Rakesh Aggarwal,
ilmvatnssérfræðingur hjá Escentual.
com. „Þessi góða sala þýðir að ilmvötn-
in þeirra eru álíka vinsæl og ilmvötn-
in frá stóru spilurunum á markaðnum,
hönnuðunum. Beyoncé er í níunda sæti
yfir mestu söluna yfir allt og það er stór-
merkilegt,“ sagði hún. „Flestar stjörn-
urnar fá í kringum 400 krónur af hverju
seldu ilmvatnsglasi.“
Beyoncé á vinsælasta stjörnuilmvatnið í Bretlandi
Búist er við að af ilmvatni söngkonunnar vinsælu, Rise, seljist 750 þúsund fl öskur, þegar árið 2014 verður á enda runnið.
NICKI MINAJ Bandaríska
söngkonan er í fjórða sæti
með ilminn Minajesty.
BEYONCÉ Söngkonan vin-
sæla hefur slegið í gegn með
ilmvatninu sínu Rise.
SALA TÍU VINSÆLUSTU
ILMVATNA STJARNANNA
Beyonce - Rise - 750.000
One Direction - That Moment - 450.000
Cheryl Fernandez - Versini - Storm Flower -
320.000
Nicki Minaj - Minajesty - 310.000
One Direction - You & I - 240.000
Katy Perry - Killer Queen - 230.000
Rihanna - Rogue - 120.000
Victoria Beckham - Intimately Beckham - 80.000
Taylor Swift - Taylor - 50.000
Lady Gaga - Eau de Gaga - 23.000
Nurofen Apelsin
Íbúprófen mixtúra fyrir börn
á aldrinum 6 mánaða til 12 ára
Fæst í Lyfjum & heilsu
Nurofen Apelsin 40 mg/ml mixtúra, dreifa. Inniheldur Íbúprófen. Til skammtímameðferðar gegn vægum til miðlungi alvarlegum verkjum eða hita. Skammtar og lyfjagjöf: Til inntöku. Dagsskammtur af Nurofen er 20-30 mg/kg
líkamsþyngdar tekin inn í 3-4 aðskildum skömmtum á u.þ.b. 6 til 8 klst. fresti. Mælt er með því að sjúklingar sem eru viðkvæmir í maga taki Nurofen með mat. Ekki ráðlagt fyrir börn yngri en 6 mánaða eða undir 8 kg. Aðeins til
skammtímanotkunar. Leita skal til læknis ef einkenni versna. Ef lyfið er notað án lyfseðils og einkenni barnsins eru viðvarandi í meira en 3 daga skal leita til læknis. Lágmarka má aukaverkanir með því að nota lægsta virka skammt í eins
stuttan tíma og hægt er til að meðhöndla einkenni. Ekki má taka lyfið ef þú: Hefur ofnæmi fyrir íbúprófeni, bólgueyðandi gigtarlyfjum, hveiti eða einhverju innihaldsefnanna, sögu um berkjukrampa, astma, nefslímubólgu eða ofsakláða í
tengslum við inntöku acetýlsalicýlsýru eða annarra bólgueyðandi gigtarlyfja, sögu um blæðingar eða rof í meltingarvegi í tengslum við fyrri meðferð með bólgueyðandi gigtarlyfjum, virk sár, eða sögu um endurtekin sár/blæðingar í maga,
virka blæðingu í heila eða annars staðar, alvarlega lifrarbilun, alvarlega nýrnabilun, alvarlega hjartabilun, storkuvandamál, óútskýrðar truflanir á blóðmyndun svo sem blóðflagnafæð, ert á síðasta þriðjungi meðgöngu, tekur önnur bólgueyðandi
gigtarlyf eða meira en 75 mg af acetýlsalicýlsýru daglega, ert með hlaupabólu, hefur nýlega gengist undir stóra skurðaðgerð, hefur ofþornað. Gæta skal sérstakrar varúðar og ræða við lækni eða lyfjafræðing ef þú ert með, hefur
einhvern tíman fengið eða átt hættu á að fá: Bandvefssjúkdóm, þarmasjúkdóm, hjarta og/eða æðasjúkdóm, skerta nýrnastarfsemi, lifrarsjúkdóm, óþol fyrir sykrum eða ef þú tekur önnur lyf. Regluleg notkun verkjalyfja getur leitt til
varanlegra truflana á nýrnastarfsemi. Andþyngsli geta komið fyrir ef barnið hefur astma, langvinnt nefrennsli, sepa í nefi eða ofnæmissjúkdóma. Örsjaldan hefur verið greint frá alvarlegum viðbrögðum í húð í tengslum við notkun bólgueyðandi
gigtarlyfja. Hætta skal notkun Nurofen Apelsin strax við fyrstu merki um útbrot á húð, sár á slímhúðum eða önnur einkenni ofnæmisviðbragða. Lyf svo sem Nurofen Apelsin geta tengst aukinni hættu á hjartaáfalli eða heilaslagi. Ekki nota
meira en ráðlagðan skammt og ekki lengur en ráðlagt er. Ef blæðing eða sár koma fram í meltingarvegi ætti að hætta meðferð strax. Hættan á blæðingum, sáramyndun eða rofi í meltingarvegi eykst við notkun stærri skammta af bólgueyðandi
gigtarlyfjum, hjá sjúklingum með sögu um sár í meltingarvegi, einkum ef þeim hafa fylgt blæðingar eða rof og hjá öldruðum. Lyfið getur dulið einkenni sýkinga og hita. Sjúklingar með sögu um aukaverkanir í meltingarfærum, sérstaklega
aldraðir, ættu að hafa samband við lækni án tafar og greina frá öllum óvenjulegum einkennum frá meltingarvegi. Lesið leiðbeiningar á umbúðum og í fylgiseðli fyrir notkun. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Markaðsleyfishafi:
Reckitt Benckiser Healthcare A/S. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ.
• Hitalækkandi
• Verkjastillandi
• Bólgueyðandi
Sýnt hefur verið fram á að Nurofen apelsin slær
á hitann eftir aðeins 15 mínútur og áhrifanna
gætir í allt að 8 klukkustundir
www.lyfogheilsa.is