Fréttablaðið - 13.12.2014, Blaðsíða 104
13. desember 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 68
vísurV
Teikningar og texti: Bragi Halldórsson
126
„Jæja þá, sudoku gáta,“ sagði Kata glottandi. „Nú er ég orðin svo góð í að
leysa sudoku að við skulum koma í kapp um hver verður fyrstur til að leysa
hana,“ bætti hún við. Konráð horfði á gátuna. „Allt í lagi,“ sagði hann.
„Til er ég.“ Lísaloppa var líka góð í að leysa sudoku gátur svo hún var alveg
til í keppni. „Við glímum öll við hana og þá kemur í ljós hversu klár þú ert
orðin,“ sagði hún. „Allt í lagi,“ sagði Kata. „En ég vara ykkur við, ég er orðin
mjög klár,“ sagði hún montin.
Heldur þú að þú getir leyst þessa sudoku gátu hraðar en Kata?
Hún Sigrún Ylfa
Guðmundsdóttir 6 ára,
sem á heima í Silkeborg í Danmörku,
sendi okkur þessa skemmtilegu mynd
af bangsa að fljúga í blöðruloftbelg frá
Danmörku til Íslands.
Nokkur börn úr sjöunda bekk
í Grundaskóla á Akranesi voru
króuð af og spurð út í markað-
inn sem haldinn var í skólanum
á miðvikudaginn til styrktar
bágstöddum börnum í Malaví.
Krakkar, hvað var á þessum
markaði? „Við vorum með alls
konar hluti sem krakkar í skól-
anum hafa búið til.“
Hvað gerðuð þið sjálf? „Við
prjónuðum hitt og þetta, smíð-
uðum smáhluti, perluðum jóla-
skraut, bjuggum til jólakonfekt.
Aðrir árgangar bjuggu til jóla-
kort, spil, könglakörfur og margt
fleira.
Mættu margir í vonda veðrinu
til að kaupa af ykkur? „Já, ótrú-
lega margir, það var hreinlega
fullt hús. Við seldum allt sem við
bjuggum til.“
Hvað gerið þið við ágóðann?
„Allur ágóðinn rennur til söfn-
unar vegna Malaví. Nemenda-
félag Grundaskóla lagði fram til-
lögu árið 2000 eða 2001 um að
nemendur og starfsmenn stæðu
saman að söfnun fyrir jólin til
þeirra sem verst stæðu í heimin-
um. Í staðinn hætti skólinn með
stofujól og pakkagjafir innan
skólans.“
Finnst ykkur alveg sjálfsagt að
fá ekki pakka á litlu jólunum?
„Já. Okkar pakkar fara til þeirra
sem þurfa miklu meira á þeim
að halda en við. Við eigum allt
og því þurfum við ekkert.“
Fylgist þið eitthvað með börn-
unum í Malaví? „Nei, kannski
ekki börnunum sjálfum. Við
vitum samt fullt um Malaví og
skólana sem við styðjum. Fram-
lög Grundaskóla fram til þessa
hafa farið til að styrkja fátæk-
ustu börnin í Chiradzulu og
Mwanza sem mörg eru munað-
arlaus vegna alnæmis. Skóla-
gjöldin þeirra eru greidd, þau
fá skólabúninga og skólavörur.
Rauði kross Íslands hefur stað-
fest að framlög Grundaskóla
hafi skipt sköpum í lífi þúsunda
einstaklinga.“
Langar ykkur að fara einhvern
tíma til Afríku? „Já, flest okkar
langar þangað þegar við verðum
kannski örlítið eldri.“
Við eigum allt og því
þurfum við ekkert
Í Grundaskóla á Akranesi hefur skapast sá siður að nemendur og starfsmenn
gefa ekki hver öðrum jólagjafi r heldur sameinast um stóra jólagjöf til fátækra
barna í Malaví. Árlegur jólasöfnunarmarkaður var í vikunni.
ÖLL Í 7. BEKK Gylfi, Ísak, Selma, Niko, Matthildur og Kaja. MYND/SIGURÐUR ARNAR SIGURÐSSON
Giljagaur var annar
með gráa hausinn sinn.
Hann skreið ofan úr gili
og skaust í fjósið inn.
Hann faldi sig í básunum
og froðunni stal
meðan fjósakonan átti
við fjósamanninn tal.
Jóhannes úr Kötlu
Jólasveinn númer tvö
Ný og spennandi saga um kurteisa
bjarnarhúninn Paddington.
Prýdd myndum úr nýrri bíómynd um
þennan sívinsæla bangsa.
Paddington er
kominn á kreik
Tilvalin fyrir
jólasveinana
!