Fréttablaðið - 13.12.2014, Blaðsíða 34
13. desember 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 34
hverju svetti kemur ný reynsla
– það eru engin tvö svett eins, en
hvert og eitt þeirra færir mann
einhvern veginn nær þekking-
unni um sjálfan sig. Aftur á móti
er hægt að líkja þekkingunni
um sig sjálfan við endamörk
alheimsins – sjálfskoðun lýkur í
rauninni aldrei – en í hvert skipti
kemst maður aðeins nær því að
vita hver maður er,“ útskýrir
hún og bætir við. „Ég hef heldur
aldrei farið í svitahof þar sem
ekki hefur myndast falleg orka
á milli þeirra sem taka þátt. Það
fallegasta við svettið er hversu
ólíkur hópur fólks getur tengst í
gegnum þessa athöfn, stjórnmála-
menn, meðlimir í mótorhjólasam-
tökum og grunnskólakennarar
hugleiða og syngja saman í svetti,
í algjörri einingu, þar sem allt
þetta sem skiptir máli fyrir utan
hofið á ekki við. Allir titlar og öll
völd eru skilin eftir fyrir utan
hofið,“ heldur Gunný áfram og
bætir við að það sé óhætt að segja
að svettið sé eitt mesta áhugamál
þeirra hjóna og vina þeirra.
En ertu þá trúuð í hefð-
bundnum skilningi eða ertu
andlega þenkjandi? Og hver er
munurinn þar á? „Í dag trúi ég,
já. En trú hefur oft verið tengd
við trúarbrögð og sumt fólk er
viðkvæmt fyrir því. Það vill þá
kannski frekar tala um sig sem
andlega þenkjandi. Ég skil það
því ég var þannig líka, en ekki
lengur. Mér er alveg sama núna.
En ég hef alveg pælt í þessu með
trúarbrögðin og andúðina gagn-
vart þeim. Ég held að fyrir suma
búi trúarbrögð og til að mynda
kirkjur eða aðrar trúarlegar
byggingar yfir svo miklu valdi.
Þegar þú hefur verið beittur
valdi þá hefur það áreiðanlega
fælingaráhrif. Það er allavega
ein hlið á málinu, en auðvitað
eru fleiri ástæður sem hægt er
að tíunda fyrir andúð gagnvart
trúarbrögðum. Í mínu tilfelli var
þetta ástæðan. Mér leið alltaf
illa í kirkjum, til dæmis. En það
var í þessari eilífu andlegu leit
minni sem ég fór að skoða sögu
mína í tengslum við ofbeldi og
neyslu með þerapista. Það var þá
sem ég komst einhvern veginn í
betri tengsl við sjálfa mig og fór
að trúa,“ útskýrir Gunný. „Á end-
anum get ég svo vonandi sagt: Ég
veit hver ég er, en það er klárlega
lokamarkmiðið.“
Útilokar ekki fleiri heimildarmyndir
Heimildarmyndin um svett er sú
fyrsta úr smiðju Gunnýjar sem
getur vel hugsað sér að búa til
fleiri heimildarmyndir. „Það var
mjög áhugavert fyrir mig, sem
hef fram að þessu verið þátt-
takandi í svitahofinu, að standa
utan við það og horfa á athöfnina
í gegnum linsuna. Þá helst að sjá
hvað fólkið, athöfnin, náttúran
og öll umgjörðin er falleg þegar
maður rammar það inn í mynd.
Svo hefur öll rannsóknarvinnan
í tengslum við svitahofið dýpkað
skilning minn og aukið virðingu
mína fyrir því hvað þetta stendur
fyrir. En ég hugsa að ég klári
að sýna þessa áður en ég fer að
vinna að þeirri næstu,” svarar
hún þegar blaðamaður spyr hvort
fleiri myndir séu í pípunum. „Ef
af henni verður væri áhugavert
að skoða betur ákveðin málefni
í tengslum við fíkn og ofbeldi,“
segir Gunný að lokum, sem vill
greinilega ekki gefa of mikið upp
að sinni.
Fólk sem fer óhefðbundn-ar leiðir í lífinu hefur alltaf vakið áhuga minn. Það er langskemmti-legasta fólkið,“ segir Gunný Ísis Magnús-
dóttir, masters nemi í þjóðfræði.
Gunný hefur lagt áherslu í námi
sínu á að rannsaka jaðarmenn-
ingu, með tilliti til valds og menn-
ingar í grasrótarmenningu. Hún
hefur samhliða náminu rekið gall-
erí ásamt eiginmanni sínum, Tolla
Morthens, að Hólmaslóð 2 og eytt
síðast liðnum þremur árum í að
útbúa heimildarmynd um svita-
hofsmenningu á Íslandi, oftar
kallað svett, ásamt tökumann-
inum Jóni Má Gunnarssyni. Nú í
mánuðinum stendur til að frum-
sýna myndina, sem er hluti af út-
skriftar verkefni Gunnýjar.
Andlegt anarkí sem heillar
„Það ríkir ákveðið andlegt anarkí
í svitahofinu sem ég finn að á svo
vel við mig,“ útskýrir Gunný og
heldur áfram. „Svitahofið hefur
verið stundað hér á landi í um
það bil þrjátíu ár og hópurinn
sem stundar svett, eins og það er
gjarnan kallað, fer vaxandi og
verður sífellt fjölbreyttari. Í upp-
hafi var þetta eingöngu fólk sem
tengdist nýaldarviðhorfum, en nú
velja sífellt fleiri sér þessa leið
til andlegrar iðkunar. Það er svo
miklu skemmtilegra að stútfylla
hausinn af boðefnum og samskipt-
um við fólk sem fer óhefðbundnar
leiðir í lífinu, en öðrum efnum,“
útskýrir Gunný og hlær.
Hefðbundið svett gengur þannig
fyrir sig að farnar eru fjórar
umferðir inn og út úr tjaldi, þar
sem er mikill hiti. Við hverja
umferð eru sungnir söngvar sem
leiða athöfnina áfram í tjaldinu,
en söngvarnir falla allir að hreins-
un anda og líkama. Athöfnin
getur tekið hátt í þrjá klukkutíma
hverju sinni.
Notaði efni til sjálfheilunar
Gunný segir fólk af öllum stig-
um samfélagsins sækja svett, en
vissulega sé mikið um að fyrrver-
andi fíklar sæki sér þessa leið til
heilunar.
„Ég held að það sé engin til-
viljun. Þetta er hópur fólks sem
leitar eftir leiðum til að bæta líf
sitt. Allflestir sem leiða svitahofin
hér á landi eru fyrrverandi fíklar
og það hefur auðvitað áhrif líka.
Þessi hópur kýs oft að fara óhefð-
bundnar leiðir og er heillaður
af þessari andlegu leið,“ útskýr-
ir hún og segist sjálf hafa tekið
ákvörðun um að lifa andlegu lífi
áður en hún fór að stunda svita-
hofið.
„Ég held líka almennt séð að
margir sem upplifa sársauka eða
ofbeldi á ævinni leiti í andleg
málefni og í sjálfsvinnu. Sú var
raunin með mig. Ég hef nefnilega
alltaf verið leitandi, síðan ég man
eftir mér. Leitandi eftir einhverju
sem gæti leyst úr flækjum í mér,
sem ég veit núna að eru tengdar
áföllum úr æsku minni. Þegar ég
var yngri fór ég að nota hugbreyt-
andi efni í tilraun til sjálfsheilun-
ar. Það virkaði reyndar ágætlega
til að byrja með, að fá tímabundna
útgönguleið út úr sjálfri mér, en
síðan fóru afleiðingarnar að verða
of miklar og kvölin varð alltaf
meiri og meiri,“ segir Gunný sem
sótti sér meðferð árið 1995 og
hefur verið edrú allar götur síðan.
„Eftir að ég varð edrú fór ég að
skoða ýmislegt sem tengist and-
legum málum og meðal annars
leitaði ég í svitahofið. En ég hef
aldrei getað tilheyrt neinum and-
legum söfnuði. Ætli ég sé ekki of
mikill anarkisti til þess,“ segir
Gunný og hlær. „Reyndar vil ég
tilheyra 12 spora söfnuði. Hann
er líka í eðli sínu anarkí þó svo að
fólk vilji oft setja einhvern trúar-
safnaðarstimpil á 12 spora sam-
tök. Þau hreinsa sig sjálf af því
jafnóðum.“
Aldrei dauð stund
Gunný er gift Þorláki Hilmari
Morthens, sem landsmenn þekkja
sem myndlistarmanninn Tolla
Morthens. „Við kynntumst 1996 og
giftum okkur árið eftir. Við höfum
allar götur síðan verið saman í
þessari andlegu leit – en ekki endi-
lega verið að gera það sama í þeim
efnum. Hann er mjög skemmti-
legur ferðafélagi í gegnum lífið.
Ætli fyrrverandi svilkona mín
hafi ekki hitt naglann á höfuðið
þegar hún sagði um Tolla að hann
væri bara þannig gerður að það
væri aldrei dauð stund þegar hann
væri annars vegar. Það reyndist
rétt hjá henni, meira að segja eftir
öll þessi ár. Það er alltaf stuð.“
Sjálfskoðuninni lýkur aldrei
En aftur að svettinu, þessari ótrú-
lega framandi athöfn sem blaða-
maður verður sífellt áhugasam-
ari um. Gunný lýsir því þannig
að svitahofið líki einna helst eftir
móðurkviði. „Þátttakendur þurfa
að beygja sig og skríða á fjórum
fótum inn í tjaldið. Inni í tjaldinu
er svo mikill raki og myrkur. Í
svett-athöfninni segja þátttakend-
ur skilið við fortíðina hverju sinni
og endurfæðast, þó ekki bókstaf-
lega og ekki til þess að verða eitt-
hvað annað eða nýtt, heldur frek-
ar til að tengjast upprunalegum
kjarna sínum. Á þann hátt kveðja
þátttakendur það „gamla“ og öðl-
ast nýtt upphaf á táknrænan hátt
í þökk og virðingu við forfeðurna
og móður jörð,“ útskýrir hún,
hæfilega alvarleg. „Svitahofið er
bara algjörlega einstakt andlegt
ferðalag. Það er staður ákveð-
innar manndómsraunar. Fólk fær
tækifæri til að finna hjá sér nýtt
úthald, hugrekki og styrk. Þetta
er ótrúlega öflugur vettvangur til
sjálfskoðunar.“
Gunný segir engar tvær upp-
lifanir úr svitahofinu eins. „Í
Ólöf
Skaftadóttir
olof@frettabladid.is
ALLTAF VERIÐ LEITANDI Gunný Ísis hefur aldrei getað tilheyrt andlegum söfnuði, en segir svett eiga mjög vel við sig.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VÖLD OG
TITLAR
VERÐA
EFTIR ÚTI
Gunný Ísis Magnúsdóttir ræðir um fíknina,
andlegt anarkí, trúarbrögð og tilraunir til sjálf-
heilunar. Hún leggur nú lokahönd á heimildar-
mynd um svitahof, oftar kallað svett, sem hún er
sérstök áhugamanneskja um og stundar af kappi.
Ég held líka almennt
séð að margir sem upplifa
sársauka eða ofbeldi á
ævinni leiti í andleg
málefni og í sjálfsvinnu.
Sú var raunin með mig.