Fréttablaðið - 13.12.2014, Blaðsíða 102
13. desember 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 66
Djúpt djúpt inni í þéttustu skógum Nýja-Sjálands, í austurhlíðum Ruahine-fjallgarðsins sem liggur upp af og meðfram austur-strönd Norðureyjar, þar
djúpt inni í skóginum, svo djúpt að
menn þurfa nánast að klóra sig gegn-
um þétt gróðurþykknið og í fjarska
heyrist drynjandi harðtaktur hinna
hörkulega bardagamanna Maóría sem
æfa sig fyrir dans og stríð í senn, og
dimmt dularfullt væl vekur grun um
að kannski leynist enn í myrkviðunum
fáeinir hinna fjögurra metra háu en
ófleygu móa-fugla sem sumir halda
að éti jafnvel menn þegar þeir verða
soltnir, en þarna djúpt í skóginum, þar
hafa nokkrir fölleitir menn daprir á
svip nú rutt svolítið rjóður og eru að
reisa sér skýli og vísi að sögunarmyllu,
og einn hefur komið upp skilti og málað
á það nafn á þessum stað sem þeir ætla
að koma sér upp: Danavirki stendur
þar, og þeir tala dönsku …
Nei nei nei
Það er löngu búið að ryðja skógana
kringum Danavirki, eða Dannevirke
eins og staðurinn heitir á Nýja-Sjá-
landi. Maóríarnir búa allir í húsum
núorðið og fara ekki lengur í stríð, það
er löngu búið að sanna að móa-fugl-
inn sé útdauður fyrir hundruðum ára.
Ruahine-fjöll gnæfa enn í vestri en allt
í kringum staðinn þar sem þetta svo-
nefnda virki reis fyrst, þar er nú blóm-
legt en svolítið syfjulegt landbúnaðar-
hérað, akrar og búfénaður, þetta er sex
þúsund manna bær, einu sinni var hann
í þjóðbraut eftir að búið var að ryðja
mesta skóginn, þá unnu menn hér hörð-
um höndum við að koma upp járnbraut,
en nú er búið að loka brautarstöðinni
og lestin milli Wellington og Napier
kemur ekki lengur við í Dannevirke.
Fyrstu mannvirkin reist um árið 500
Dönsku sjónvarpsþættirnir 1864 vöktu
þó nokkra athygli hér á landi um dag-
inn. Og þeir rifjuðu upp tilvist Dana-
virkis fyrir þeim sem höfðu gleymt
því, það er að segja hins upprunalega
Danavirkis. Það var lengst af talið hafa
verið reist fyrst á víkingaöld, reyndar
ekki einn virkisstaður til að byrja með,
heldur nokkrir langir garðar, sums
staðar skurðir á milli, og lágu þessi
mannvirki nokkurn veginn alla leiðina
milli Eystrasalts og Norðursjávar, svo
menn drógu þá eðlilegu ályktun að um
hefði verið að ræða virkisgarða sem
danskir víkingar komu upp til að verj-
ast árásum germanskra ættbálka af
þýsku heiðunum.
Nú er reyndar talið að upprunalega
hafi þetta kannski frekar verið sam-
göngumannvirki, eins konar frumdrög
að Kílarskurði sem opnaður var 1895.
Og nýjustu rannsóknir gefa til kynna
að fyrstu mannvirkin hafi verið reist
löngu áður en hinn eiginlegi víkinga-
tími hófst, sum um árið 500, önnur
jafnvel eldri. En með tímanum var
orðið Danavirki þó fyrst og fremst
notað um einn tiltekinn virkisstað,
sem Danir fóru að lokum að líta á sem
útvörð ríkis síns gagnvart Germönum
eður Þjóðverjum.
Vaxandi þjóðernisstefna
Hvar Danmörk endaði og Þýskaland
tók við var lengi allmjög á reiki, það
átti einmitt eftir að verða ein aðal-
ástæða þess hörmulega stríðs sem
sjónvarpsþættirnir 1864 fjölluðu um.
Danska konungsættin kom laust fyrir
1500 frá þýska hertogadæminu Olden-
burg, skammt vestan Hamborgar, og
næstu aldirnar höfðu Danakóngar
margvísleg ítök í héruðunum Slés-
vík og Holstein sunnan hinnar eigin-
legu Danmerkur, þar sem þeir voru
hertogar. Stundum vildu þeir meiri
ítök; Kristján IV. fór í herferð suður í
lönd 1625 og ætlaði að verða stórkarl
í Þýskalandi en fór háðulegar hrak-
farir og Dönum varð ljóst að þeim var
líklega ekki ætlað að verða stórveldi í
Evrópupólitíkinni.
Er kom fram á 19. öld hafði vaxandi
þjóðernisstefna hins vegar hleypt nýju
blóði í Dani. Það voru ekki bara Íslend-
ingar sem gerðust uppteknir af þjóð-
erni sínu og sérstöðu og glæstri menn-
ingu bæði að fornu og nýju. Danir tóku
líka að tútna heilmikið út af nýrri trú á
eigin mátt og megin. Og það olli vand-
ræðum í hertogadæmunum Slésvík og
Holstein.
Í þá daga var Þýskaland sundrað í
ótal ríki misjafnlega stór en samruna-
ferli var þó hafið og til var samband
þýsku ríkjanna. Slésvík og Holstein til-
heyrðu þýska sambandinu en voru þó í
raun hluti Danmerkur líka vegna þess
að dönsku kóngarnir voru þar æðstu
pótintátar. Með aukinni þjóðernis-
hreyfingu 19. aldar tóku íbúar her-
togadæmanna að skilgreina sig ýmist
sem Dani eða Þjóðverja og fór ekki á
milli mála að meirihluti þeirra taldi
sig Þjóðverja, nema íbúar nyrðri hluta
Slésvíkur sem flestir voru Danir.
Árið 1848 kom til stríðs um yfirráð
yfir hertogadæmunum milli Danmerk-
ur og Prússlands sem var þá í óða önn
að verða langöflugast þýsku ríkjanna
og hafði reyndar lengi verið svo, en nú
voru Prússar farnir að stefna mark-
visst að því að sameina öll þýsku
ríkin undir sínum fræga járnhæl. Af
ýmsum ástæðum fóru Danir með sigur
af hólmi í þessu stríði, þeir börðust
vissulega knálega en Þjóðverjar gengu
á hinn bóginn vart til leiks af heilum
hug og flest stórveldi Evrópu vildu líka
halda aftur af þeim. Árið 1851 var því
samið um frið og Danir héldu yfirráð-
um sínum yfir hertogadæmunum.
Monrad líklega með geðhvarfasýki
Árið sem stríð sjónvarpsþáttanna
var háð, þá voru aðstæður hins vegar
breyttar. Danir höfðu fyllst ofsatrú
á sjálfa sig eftir sigurinn í stríðinu
fimmtán árum fyrr og vildu nú setja í
stjórnarskrá ákvæði sem gera myndu
Slésvík og Holstein að ævarandi hlut-
um danska ríkisins, þótt þau væru enn
sem fyrr í þýska ríkjasambandinu. Í
raun mátti hver maður segja sér að
þetta gætu Þjóðverjar aldrei látið bjóða
sér, enda kvöddu þeir út her og nú voru
Prússar ekki einir á ferð, heldur höfðu
Austurríkismenn með sér. Danir höfðu
sem sé komið upp á móti sér tveimur af
fimm helstu stórveldum meginlands-
ins, en hin þrjú voru Bretland, Frakk-
land og Rússland.
Í sjónvarpsþáttunum 1864 vakti
athygli að forsætisráðherra Dana og
sá sem hratt þeim að endingu út í þetta
stríð var sýndur nánast sem geggjaður
fáráðlingur, Ditlev Monrad að nafni,
biskup var hann að tign. Sannleikurinn
mun vera sá að sú mynd var ekki nema
örlítið ýkt, Monrad var í raun og veru
afar vanstilltur maður og hefur líklega
þjáðst af geðhvarfasýki, hann sveiflaðist
ofsalega milli oflætis og þunglyndis og
í einu oflætiskastinu lét hann hjá líða að
semja um frið við Þjóðverja og Austur-
ríkismenn meðan hann hafði enn mögu-
leika á. Auðvitað var stríðið samt alls
ekki honum einum að kenna, Danir voru
almennt uppfullir af eldmóði og ráðnir
í að helga sér hertogadæmin að eilífu,
meira að segja Holstein, þar sem allir
vissu að íbúarnir gátu ekki beðið eftir
að sameinast Þýskalandi.
Það flækti málið að nýr kóngur hafði
aðeins fáeinum mánuðum fyrir upphaf
FLÆKJUSAGA
Illugi Jökulsson Fór að
kynna sér þann hluta
sögu Danmerkur sem
fjallað var um í sjón-
varpsþáttunum
1864 og komst
að því sér til
undrunar að
einn þráður
sögunnar
endaði í
þéttum
skógum
Nýja-
Sjálands.
VÍGVÖLLURINN 1864 SLÉSVÍK OG HOLSTEIN
Kaupmannahöfn
Hamborg
Lübeck
Kiel
Dannevirke x
xDybböl
Málmey
Óðinsvé
Flensborg
Slésvík
Jótland
Fjónn
Sjáland
Holstein
Þýskaland
EYSTRASALT
NORÐUR-
SJÓR
Svíþjóð
Danmörk
Borg
x Orrusta
Núverandi
landamæri
Danmerkur og
Þýskalands
DRAUMURINN UM DANAVIRKI
stríðsins sest í hásæti Danmerkur, Krist-
ján IX., en hann hafði verið kallaður til
kóngs af því Friðrik VII. var barnlaus.
Kristján gat að langfeðgatali fundið
danska kónga meðal forfeðra sinna, en
var þó í raun miklu frekar þýskur her-
togasonur. Af þessum ástæðum hafði
Kristján ekki mikið að segja um ríkis-
stjórnina þegar stríðið hófst en æsinga-
menn eins og Monrad gátu farið sínu
fram.
Nú. Eins og skýrt kom fram
í sjónvarpsþáttunum marg-
nefndu trúðu Danir því
statt og stöðugt að hið
gamla Danavirki, sem
nú taldist til Holstein,
yrði sá brimbrjót-
ur sem allar sókn-
ir Þjóðverja myndu
brotna á. Í þjóðernis-
æði sínu sáu þeir fyrir
sér hetjulega vörn her-
sveita sinna í Danavirki
og að lokum yrði sóknar-
þungi Þjóðverja þorrinn,
og þeir myndu neyðast til að
semja um áframhaldandi yfirráð
Dana yfir hertogadæmunum.
En það fór allt á annan veg.
Dönsku herforingjarnir
vissu vel að það væri óðs
manns æði að reyna að
verja Danavirki, hið
„óvinnandi vígi“ yrði
einfaldlega líkkista
danska hersins ef það
yrði reynt. Og í byrj-
un febrúar 1864 flúði
danski herinn því frá
Danavirki, og var það
ægilegt áfall fyrir Mon-
rad og Dani almennt.
Bismarck vildi ekkert með
Dani hafa
Í staðinn reyndi danski herinn að verjast
þar sem heitir Dybböl en í orrustu í apríl
beið hann algjöran ósigur. Hrakfarir
Dana voru algjörar og landið varnar -
laust. Prússneski herinn brunaði mót-
spyrnulaust yfir Jótland og bjó sig undir
að gera innrás á Fjón og Sjáland. Hinn
nýi kóngur Kristján IX. gerði Þjóðverj-
um í leyni það fáheyrða tilboð að Danir
skyldu ganga í þýska ríkjasambandið ef
þeir fengju að halda hertogadæmunum.
Slíkt tilboð var auðvitað bara landráð
og ekkert annað, en Bismarck kanslari
Prússa hafnaði boðinu. Hann kvaðst ekk-
ert vilja með Dani hafa, þó hertogadæm-
in ætlaði hann að eignast. Monrad var
hins vegar genginn af göflunum, æpti og
öskraði og krafðist þess að öllum friðar-
umleitunum yrði hafnað og Kaupmanna-
höfn varin til síðasta manns. Kóngurinn
varð að lokum að setja Monrad af og var
hann þá gjörsamlega úrvinda af æsingi
og vonbrigðum.
Hann bölvaði Dönum í sand og ösku og
fannst þeir hafa svikið sig, lýsingarnar á
reiðilestrum hans í garð Dana sem ekki
vildu berjast til síðasta blóðdropa minna
skelfilega mikið á lýsingar af Adolf Hitl-
er sem heimtaði 1945 að þýska þjóðin
fórnaði lífinu fyrir sig.
En nú var saminn friður og urðu
Danir að láta hertogadæmin af
hendi. Í atkvæðagreiðslu eftir
fyrri heimsstyrjöld lýstu
íbúar í norðurhluta Slés-
víkur hins vegar þeim
vilja sínum að sam-
einast Danmörku að
nýju og varð það úr.
Og hefur síðan verið
kyrrt á þessum slóð-
um og ekki framar
barist um Danavirki.
En það er af Monrad
að segja að niðurbrot-
inn maður ákvað hann að
flytjast yfir hálfa jörðina og
settist að á Nýja-Sjálandi, þar
sem hann ætlaði að boða kristindóm
og kærleika trú Maóríum. En þá
kom tvennt á daginn. Í fyrsta
lagi uppgötvaði hinn við-
kvæmi Monrad að
hafi herprúðir Prúss-
ar verið ógnvekj-
andi, þá voru stríðs-
menn Maóría hálfu
verri í hans augum,
tattúeraðir á allan
skrokkinn, söngl-
andi sína hörkulega
stríðssöngva. Einmitt
um þær mundir sem
Monrad mætti til leiks á
Norðureyju voru Maóríar á
stríðsbuxunum gegn ásælni Evr-
ópubúa og uppgjafapólitíkus og biskup
úr Danmörku hafði ekki andlegt þrek til
að standa þar í móti. Og í öðru lagi hafa
Maóríar kannski komist að raun um að
kristindómur vanstillts stríðsæsinga-
manns frá því hinum megin á hnettin-
um hafði lítið að segja þeim.
Monrad sneri heim aftur og náði
reyndar seint og um síðir að stilla sitt
stríða geð, hann settist meira að segja
á þing aftur. En arfleifð hans í heim-
inum felst kannski í tvennu: hinu yfir-
gefna Danavirki í Holstein í Þýskalandi,
og svo Dannevirke á Norðureyju en sá
bær var stofnaður af dönskum útlögum
sem fluttust að tilvísan hans til Nýja-
Sjálands og fóru að ryðja skóg. Og lítill
vafi er á að nafnið var valið af honum.
Hvernig ber svo að líta á það? Sem hinn
síðasta virðingarvott við drauminn
sem dó við Danavirki, eða kaldrifjaðan
brandara?
Hafi
herprúðir
Prússar verið
ógnvekjandi,
þá voru
stríðsmenn
Maóría hálfu
verri í augum
Monrads,
tattúeraðir á
allan skrokk-
inn, söngl-
andi sína
hörkulega
stríðssöngva. MONRAD
BISMARCK