Fréttablaðið - 13.12.2014, Page 34

Fréttablaðið - 13.12.2014, Page 34
13. desember 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 34 hverju svetti kemur ný reynsla – það eru engin tvö svett eins, en hvert og eitt þeirra færir mann einhvern veginn nær þekking- unni um sjálfan sig. Aftur á móti er hægt að líkja þekkingunni um sig sjálfan við endamörk alheimsins – sjálfskoðun lýkur í rauninni aldrei – en í hvert skipti kemst maður aðeins nær því að vita hver maður er,“ útskýrir hún og bætir við. „Ég hef heldur aldrei farið í svitahof þar sem ekki hefur myndast falleg orka á milli þeirra sem taka þátt. Það fallegasta við svettið er hversu ólíkur hópur fólks getur tengst í gegnum þessa athöfn, stjórnmála- menn, meðlimir í mótorhjólasam- tökum og grunnskólakennarar hugleiða og syngja saman í svetti, í algjörri einingu, þar sem allt þetta sem skiptir máli fyrir utan hofið á ekki við. Allir titlar og öll völd eru skilin eftir fyrir utan hofið,“ heldur Gunný áfram og bætir við að það sé óhætt að segja að svettið sé eitt mesta áhugamál þeirra hjóna og vina þeirra. En ertu þá trúuð í hefð- bundnum skilningi eða ertu andlega þenkjandi? Og hver er munurinn þar á? „Í dag trúi ég, já. En trú hefur oft verið tengd við trúarbrögð og sumt fólk er viðkvæmt fyrir því. Það vill þá kannski frekar tala um sig sem andlega þenkjandi. Ég skil það því ég var þannig líka, en ekki lengur. Mér er alveg sama núna. En ég hef alveg pælt í þessu með trúarbrögðin og andúðina gagn- vart þeim. Ég held að fyrir suma búi trúarbrögð og til að mynda kirkjur eða aðrar trúarlegar byggingar yfir svo miklu valdi. Þegar þú hefur verið beittur valdi þá hefur það áreiðanlega fælingaráhrif. Það er allavega ein hlið á málinu, en auðvitað eru fleiri ástæður sem hægt er að tíunda fyrir andúð gagnvart trúarbrögðum. Í mínu tilfelli var þetta ástæðan. Mér leið alltaf illa í kirkjum, til dæmis. En það var í þessari eilífu andlegu leit minni sem ég fór að skoða sögu mína í tengslum við ofbeldi og neyslu með þerapista. Það var þá sem ég komst einhvern veginn í betri tengsl við sjálfa mig og fór að trúa,“ útskýrir Gunný. „Á end- anum get ég svo vonandi sagt: Ég veit hver ég er, en það er klárlega lokamarkmiðið.“ Útilokar ekki fleiri heimildarmyndir Heimildarmyndin um svett er sú fyrsta úr smiðju Gunnýjar sem getur vel hugsað sér að búa til fleiri heimildarmyndir. „Það var mjög áhugavert fyrir mig, sem hef fram að þessu verið þátt- takandi í svitahofinu, að standa utan við það og horfa á athöfnina í gegnum linsuna. Þá helst að sjá hvað fólkið, athöfnin, náttúran og öll umgjörðin er falleg þegar maður rammar það inn í mynd. Svo hefur öll rannsóknarvinnan í tengslum við svitahofið dýpkað skilning minn og aukið virðingu mína fyrir því hvað þetta stendur fyrir. En ég hugsa að ég klári að sýna þessa áður en ég fer að vinna að þeirri næstu,” svarar hún þegar blaðamaður spyr hvort fleiri myndir séu í pípunum. „Ef af henni verður væri áhugavert að skoða betur ákveðin málefni í tengslum við fíkn og ofbeldi,“ segir Gunný að lokum, sem vill greinilega ekki gefa of mikið upp að sinni. Fólk sem fer óhefðbundn-ar leiðir í lífinu hefur alltaf vakið áhuga minn. Það er langskemmti-legasta fólkið,“ segir Gunný Ísis Magnús- dóttir, masters nemi í þjóðfræði. Gunný hefur lagt áherslu í námi sínu á að rannsaka jaðarmenn- ingu, með tilliti til valds og menn- ingar í grasrótarmenningu. Hún hefur samhliða náminu rekið gall- erí ásamt eiginmanni sínum, Tolla Morthens, að Hólmaslóð 2 og eytt síðast liðnum þremur árum í að útbúa heimildarmynd um svita- hofsmenningu á Íslandi, oftar kallað svett, ásamt tökumann- inum Jóni Má Gunnarssyni. Nú í mánuðinum stendur til að frum- sýna myndina, sem er hluti af út- skriftar verkefni Gunnýjar. Andlegt anarkí sem heillar „Það ríkir ákveðið andlegt anarkí í svitahofinu sem ég finn að á svo vel við mig,“ útskýrir Gunný og heldur áfram. „Svitahofið hefur verið stundað hér á landi í um það bil þrjátíu ár og hópurinn sem stundar svett, eins og það er gjarnan kallað, fer vaxandi og verður sífellt fjölbreyttari. Í upp- hafi var þetta eingöngu fólk sem tengdist nýaldarviðhorfum, en nú velja sífellt fleiri sér þessa leið til andlegrar iðkunar. Það er svo miklu skemmtilegra að stútfylla hausinn af boðefnum og samskipt- um við fólk sem fer óhefðbundnar leiðir í lífinu, en öðrum efnum,“ útskýrir Gunný og hlær. Hefðbundið svett gengur þannig fyrir sig að farnar eru fjórar umferðir inn og út úr tjaldi, þar sem er mikill hiti. Við hverja umferð eru sungnir söngvar sem leiða athöfnina áfram í tjaldinu, en söngvarnir falla allir að hreins- un anda og líkama. Athöfnin getur tekið hátt í þrjá klukkutíma hverju sinni. Notaði efni til sjálfheilunar Gunný segir fólk af öllum stig- um samfélagsins sækja svett, en vissulega sé mikið um að fyrrver- andi fíklar sæki sér þessa leið til heilunar. „Ég held að það sé engin til- viljun. Þetta er hópur fólks sem leitar eftir leiðum til að bæta líf sitt. Allflestir sem leiða svitahofin hér á landi eru fyrrverandi fíklar og það hefur auðvitað áhrif líka. Þessi hópur kýs oft að fara óhefð- bundnar leiðir og er heillaður af þessari andlegu leið,“ útskýr- ir hún og segist sjálf hafa tekið ákvörðun um að lifa andlegu lífi áður en hún fór að stunda svita- hofið. „Ég held líka almennt séð að margir sem upplifa sársauka eða ofbeldi á ævinni leiti í andleg málefni og í sjálfsvinnu. Sú var raunin með mig. Ég hef nefnilega alltaf verið leitandi, síðan ég man eftir mér. Leitandi eftir einhverju sem gæti leyst úr flækjum í mér, sem ég veit núna að eru tengdar áföllum úr æsku minni. Þegar ég var yngri fór ég að nota hugbreyt- andi efni í tilraun til sjálfsheilun- ar. Það virkaði reyndar ágætlega til að byrja með, að fá tímabundna útgönguleið út úr sjálfri mér, en síðan fóru afleiðingarnar að verða of miklar og kvölin varð alltaf meiri og meiri,“ segir Gunný sem sótti sér meðferð árið 1995 og hefur verið edrú allar götur síðan. „Eftir að ég varð edrú fór ég að skoða ýmislegt sem tengist and- legum málum og meðal annars leitaði ég í svitahofið. En ég hef aldrei getað tilheyrt neinum and- legum söfnuði. Ætli ég sé ekki of mikill anarkisti til þess,“ segir Gunný og hlær. „Reyndar vil ég tilheyra 12 spora söfnuði. Hann er líka í eðli sínu anarkí þó svo að fólk vilji oft setja einhvern trúar- safnaðarstimpil á 12 spora sam- tök. Þau hreinsa sig sjálf af því jafnóðum.“ Aldrei dauð stund Gunný er gift Þorláki Hilmari Morthens, sem landsmenn þekkja sem myndlistarmanninn Tolla Morthens. „Við kynntumst 1996 og giftum okkur árið eftir. Við höfum allar götur síðan verið saman í þessari andlegu leit – en ekki endi- lega verið að gera það sama í þeim efnum. Hann er mjög skemmti- legur ferðafélagi í gegnum lífið. Ætli fyrrverandi svilkona mín hafi ekki hitt naglann á höfuðið þegar hún sagði um Tolla að hann væri bara þannig gerður að það væri aldrei dauð stund þegar hann væri annars vegar. Það reyndist rétt hjá henni, meira að segja eftir öll þessi ár. Það er alltaf stuð.“ Sjálfskoðuninni lýkur aldrei En aftur að svettinu, þessari ótrú- lega framandi athöfn sem blaða- maður verður sífellt áhugasam- ari um. Gunný lýsir því þannig að svitahofið líki einna helst eftir móðurkviði. „Þátttakendur þurfa að beygja sig og skríða á fjórum fótum inn í tjaldið. Inni í tjaldinu er svo mikill raki og myrkur. Í svett-athöfninni segja þátttakend- ur skilið við fortíðina hverju sinni og endurfæðast, þó ekki bókstaf- lega og ekki til þess að verða eitt- hvað annað eða nýtt, heldur frek- ar til að tengjast upprunalegum kjarna sínum. Á þann hátt kveðja þátttakendur það „gamla“ og öðl- ast nýtt upphaf á táknrænan hátt í þökk og virðingu við forfeðurna og móður jörð,“ útskýrir hún, hæfilega alvarleg. „Svitahofið er bara algjörlega einstakt andlegt ferðalag. Það er staður ákveð- innar manndómsraunar. Fólk fær tækifæri til að finna hjá sér nýtt úthald, hugrekki og styrk. Þetta er ótrúlega öflugur vettvangur til sjálfskoðunar.“ Gunný segir engar tvær upp- lifanir úr svitahofinu eins. „Í Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is ALLTAF VERIÐ LEITANDI Gunný Ísis hefur aldrei getað tilheyrt andlegum söfnuði, en segir svett eiga mjög vel við sig. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA VÖLD OG TITLAR VERÐA EFTIR ÚTI Gunný Ísis Magnúsdóttir ræðir um fíknina, andlegt anarkí, trúarbrögð og tilraunir til sjálf- heilunar. Hún leggur nú lokahönd á heimildar- mynd um svitahof, oftar kallað svett, sem hún er sérstök áhugamanneskja um og stundar af kappi. Ég held líka almennt séð að margir sem upplifa sársauka eða ofbeldi á ævinni leiti í andleg málefni og í sjálfsvinnu. Sú var raunin með mig.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.