Fréttablaðið - 13.12.2014, Page 110

Fréttablaðið - 13.12.2014, Page 110
13. desember 2014 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 74 Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@365.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HALLDÓR BJARNI ÞÓRHALLSSON húsasmíðameistari, Grundargerði 4, Reykjavík, lést þriðjudaginn 9. desember. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 19. desember kl. 13.00. Guðbjörg Bergsveinsdóttir Bergsveinn Halldórsson Eygló Aðalsteinsdóttir Þórhallur Halldórsson Margrét Guðmundsdóttir Rúnar Halldórsson barnabörn og barnabarnabörn. Okkar ástkæri JÓHANNES S. PÁLSSON frá Furubrekku, Staðarsveit, Arnarheiði 13 A, Hveragerði, lést á hjúkrunarheimilinu Ási, Hveragerði, 26. nóvember sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Ástríður G. Jóhannesdóttir Gunnlaugur Björnsson Gísli J. Gíslason Hólmfríður Skaftadóttir Guðmundur Svavarsson Hrafnhildur Gunnarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, EYSTEINN LEÓ JÓNSSON Látraseli 11, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans fimmtudaginn 11. desember. Útförin verður auglýst síðar. Sigríður Guðmunda Jónsdóttir Jóhanna Eysteinsdóttir Pétur Steinn Sigurðsson Jón Björn Eysteinsson Margrét Káradóttir Sigrún Eysteinsdóttir Hlynur Geir Guðmundsson Sigríður Eysteinsdóttir Sigurður Gunnar Markússon barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, systir, mágkona og amma, GUÐLAUG BÁRA ÞRÁINSDÓTTIR Hátúni 12, Reykjavík, lést á Landspítala í Fossvogi sunnudaginn 7. desember. Hún verður jarðsett frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 17. desember kl. 13.00. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Sjálfsbjargarheimilið. Guðrún Árný Árnadóttir Jens Jóhannsson Óskar Þór Þráinsson Anna Guðmundsdóttir Ásthildur Bára Árni Björn Gunnar Alex Kær eiginmaður, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi, bróðir, mágur og frændi, JÓN SKÚLI SIGURÐSSON lést 3. desember sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sérstakar þakkir til alls starfsfólks á líknardeild LSH í Kópavogi fyrir góða umönnun. Með þakklæti fyrir veitta samúð og kærleik. Tatiana Trofimova Kristina Trofimova Júlía Trofimova Óskar Ingi Óskarsson Elísabet Olga og Katrín Lilja Óskarsdætur Bernt H. Sigurðsson Jónína K. Kristjánsdóttir Harald Sigurðsson Agnar Már Sigurðsson Guðbjörg Ágústsdóttir og fjölskyldur. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, PÁLÍNA MAGNÚSDÓTTIR frá Reykjum í Fnjóskadal, lést á dvalarheimilinu Hlíð 4. desember. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju 18. desember kl. 13.30. Guðmundur Hafsteinsson Karítas Erla Jóhannesdóttir Sólrún Hafsteinsdóttir Sigurður B. Jónsson Lára Hafsteinsdóttir Fjölnir Sigurjónsson Gunnar M. Guðmundsson Erna H. Gunnarsdóttir Þóra K. Guðmundsdóttir Magnús Hallur Sævarsson ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN AUÐUNN VIGGÓSSON málarameistari, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni þann 3. desember. Útför hans verður gerð frá Langholtskirkju þriðjudaginn 16. desember kl. 11.00. Steinn Auðunn Jónsson Ásgerður Sverrisdóttir Dagbjört Nanna Jónsdóttir Sigurberg Jónsson Þórunn Jónsdóttir Haraldur Helgason barnabörn og barnabarnabörn. Haldið verður upp á það á mánudaginn klukkan 11 að tíu þúsundasti nemand- inn tekur sæti á Skólaþingi. Skólaþingi var komið á fót í nóvem- ber 2007. Þar með var komið til móts við áhuga skólafólks á að koma með nemendur í vettvangsferðir á Alþingi. Hver heimsókn tekur um tvær og hálfa klukkustund með stuttu hléi. Nemendur úr efstu bekkjum 70 grunnskóla hafa nú heimsótt Skóla- þing. Þar fara þeir í hlutverkaleik og fylgja í stórum dráttum reglum um starfshætti Alþingis. Nemendurnir fá tækifæri til að setja sig í spor þingmanna með því að leiða til lykta fyrir fram ákveðin málefni sem fyrir þá eru lögð á þingflokks- fundum, nefndarfundum og þingfund- um. Jafnframt hlusta þeir á og meta rök sérfræðinga sem kallaðir eru til að veita þingmönnum ráðgjöf og meta rök þeirra. Þannig eiga þeir að fá innsýn í sambandið milli atburða í samfélaginu, skoðanamyndunar, pólitískra ákvarð- ana og starfa Alþingis. Síðan eiga þeir að komast að lýðræðislegri niðurstöðu með því að meta rök og álit annarra og taka afstöðu. - gun Fá innsýn í störf Alþingis Tíu þúsundasti grunnskólanemandinn tekur sæti á Skólaþingi Alþingis á mánudaginn og mun forseti Alþingis fagna þeim tímamótum sérstaklega. Á ÞINGI Nemendur Vatnsendaskóla á þingflokksfundi Hagsældarflokksins. „Við erum að fljúga til London Gat- wick flugvallar og erum á leiðinni til Brighton að versla inn jólagjafirnar og njóta þess að ganga um bæinn. Við erum búin að vera saman í sjö ár og höfum aldrei komist í frí saman áður, svo það má segja að þetta sé stór stund hjá okkur,“ sagði Gunn- hildur Blöndal sem var milljónasti farþegi flugfélagsins WOW air. Hún var á leið úr landi í gær ásamt manni sínum Björgvini Viktori Þórðarsyni. Hún fékk af þessu tilefni gjafabréf fyrir tvo úr hendi Skúla Mogensen, stofnanda og forstjóra WOW air, og kvaðst ætla að skella sér með Björg- vini til Dyflinnar næsta sumar. „Ég er mjög stoltur af því að í dag skulum við fljúga með millj- ónasta gestinn okkar og afar þakk- látur fyrir þær móttökur sem við höfum fengið bæði hér innanlands og erlendis frá fyrsta degi,“ sagði Skúli. „Það er magnað að hafa flogið með þrefaldan fjölda íslensku þjóð- arinnar frá fyrsta flugi okkar fyrir tveimur og hálfu ári. Fyrsta árið flugu um 110 þúsund farþegar með WOW air og árið 2013 um 415 þús- und.“ -gun Milljónasti farþeginn Gunnhildur Blöndal tók við gjafabréfi frá fl ugfélaginu WOW air í gær í tilefni þess að hún var milljónasti farþeginn sem fl aug með félaginu frá stofnun þess árið 2012. VIÐ AFHENDINGUNA Gunnhildur og Björgvin Viktor voru að stinga af til Brighton þegar þau fengu gjafabréfið.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.