Fréttablaðið - 13.12.2014, Side 52

Fréttablaðið - 13.12.2014, Side 52
13. desember 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 52 Salka Sól og Atli Fannar þekkjast frá því á hljóm-sveitarárum Atla Fannars á Selfossi. Atli: „Salka var þá í áhorfendaskaranum að horfa á mig spila, en í dag horfi ég á hana á tónleikum.“ Salka: „Já, ég var svakaleg grúppía.“ Atli: „Annars fékk ég sjokk þegar ég fékk að vita að Salka Sól yrði hinn viðmælandinn þar sem vaninn er að hafa einn ungan og einn eldri. Þetta þýðir að ég er þessi eldri!“ Hvað stendur upp úr í dægurmál- um þegar þið lítið yfir árið? Salka: „Reykjavíkurdætur byrj- uðu fyrir akkúrat ári og er óhætt að segja að þær séu búnar að vekja athygli á þessu ári.“ Atli: „Þetta er ár stelpurapps. Það var ekki óþekkt hugtak áður en maður gat talið stelpurappara á fingrum annarrar handar.“ Salka: „Þetta er líka klárlega ár rassanna. Hljómsveitt kom til dæmis með sterka rassaumræðu en kannski í öðrum tilgangi.“ Atli: „Já, vá. Amabadama sagði okkur að hrista bossa. Úti hristu Jennifer Lopez, Nicky Minaj og Beyoncé rassana. Myndin af Kard- ashian var rassahápunktur ársins – hún súmmeraði árið upp. Ef það er til rassasólkerfi þá er Kim Kard- ashian sólin, sú stærsta og svo eru aðeins minni rassar í kring. Hvað ætli verði næst? Kálfavöðvar? Hver ákveður þetta?“ Salka: „Femínismi hefur líka verið mikið í umræðunni og popp- stjörnur að tjá sig og svo stimplaði hugtakið „slut shaming“ sig ræki- lega inn.“ Atli: „Konurnar eru að gera kyn- þokkafull myndbönd en það er eins og það sé verið að færa þetta á for- sendur þeirra, að þær séu með völdin. Það segir mér enginn að einhver feitur kall sé að baki Jenni- fer Lopez, sem er 45 ára og hefur marga fjöruna sopið, og segi henni hvað hún eigi að gera.“ Hjálpar til við að afbæla okkur Salka: „Annars finnst mér þetta hafa verið ár samfélagsmiðla. Þótt þeir hafi verið lengi til þá náðu þeir einhverju hámarki á þessu ári. Fyrir tveimur árum setti ein- hver mynd af nýfæddu barni sínu og fékk kannski sjö læk. Nú fengi viðkomandi 700 læk og þarf ekki einu sinni að vera frægur.“ Atli: „Nákvæmlega. Fólk varð miklu virkara og miðlarnir eru orðnir svo stór hluti af lífi okkar. Þetta sást líka vel í febrúar þegar Vine-strákarnir komu í Smára- lind og krakkarnir fylltu húsnæð- ið. Allir eldri en 20 ára vissu ekk- ert hvað væri í gangi. Annaðhvort fussaði fólk og sveiaði eða bað bara um fræðslu. Hvað er Vine? Hver er Jerome Jarre? Og hvað var að gerast þarna? Unga fólkið var að nota samfélagsmiðla sem við eldri vissum ekki einu sinni af. Svo fóru krakkarnir yfir á Snapchat sem er að verða megadæmi.“ Salka: „Bjútítips og Sjomlatips- væðingin er eitthvað sem ég hef vandræðalega mikinn áhuga á. Svo er Twitter að sækja í sig veðrið.“ Atli: „Ég sagði í fyrra að þetta yrði ár Twitter. Það var það næst- um því en ég held að næsta ár verði málið. Ég finn bara á síðustu vikum hvað þetta hefur aukist, fleiri eru að nota miðilinn og nota á þann hátt sem hann á að vera notaður sem er hömlulaus samfélagsmiðlun þar sem maður tjáir sig allan daginn um allt. Ég held að þetta sé frábært. Allt að verða tengdara og skemmtilegra. Hlutir fréttast hraðar og þetta hjálp- ar okkur að afbæla samfélagið.“ Salka: „Eldri kynslóðin er hrædd- ari. Segir að enginn eigi lengur samskipti, bendir á Tinder og segir unga fólkið ekki þora að bjóða á stefnumót lengur. Mér finnst þetta jákvæð þróun en við þurfum að læra á þetta, þurfum að kunna okkur og þá er þetta gott.“ Atli: „Allt þarf alltaf að hlaupa af sér hornin. Fyrst var til dæmis talað um Tinder sem kynlífsapp. En fólk er að kynnast og fara á stefnu- mót. Það er búið að eyða erfiðasta skrefinu við að kynnast manneskju svo fólk hittir fleira fólk og það úti- lokar fleira fólk með hjálp upplýs- inga. Þetta mun bjarga fólki frá ömurlegum samböndum.“ Nýjar áskoranir í tónlist Við færum okkur úr samfélags- miðlunum yfir í fræga fólkið og fréttir af þeim. Salka: Þegar ég hugsa dægurmál þá hugsa ég bara um Beyoncé. Atli: Það var rosalega afhjúp- andi dæmi þegar Beyonce og Jay Z komu. Fréttir af þeim vöktu svo fyndin viðbrögð hjá hluta fólks á netinu. Það voru svo margir reið- ir, sem er svo skrýtið. Hvert sem þetta frægasta par í heimi fer þá sýna fjölmiðlar því áhuga. Salka: Markmið mitt í lífinu er að vera ekki virk í athugasemdum. Þetta með „er þetta frétt?“ er orðið svo fyndið. Atli: „Í öðrum löndum er mun meiri aðgangsharka, svo sendir Vísir ljósmyndara sem tekur mynd af þyrlu fyrir utan bústaðinn og það verður allt brjálað. Öryggisvörður- inn biður hann um að fara og hann fer. Það myndi franski papparazz- inn aldrei gera. Ég er einmitt viss um að þau hafi bara hugsað: „Hvað? Veit enginn af okkur hérna?““ Salka: „Mér finnst það samt mjög fallegt.“ Árið 2014 var stórt kvikmynda- ár á Íslandi. Á tímabili voru sex íslenskar kvikmyndir í sýningu í bíóhúsunum á sama tíma sem er nýtt met. Er nýr tónn í íslenskum kvikmyndum? Atli: „Mér fannst Baldvin Z slá nýjan tón í Vonarstræti. Mér finnst hann fara skref upp á við á gæða- standard. Maður veit að það er rosalega erfitt að framleiða kvik- myndir fyrir fjármunina sem eru í boði og fólk fær ekki þann tíma sem þarf. Þetta er virðingarvert.“ Salka: „Já, svo fékk myndin verð- laun sem kvikmyndir frá allri Evr- ópu voru að keppa um.“ Atli: „Ég vil alls ekki vera þjóð- remba. Mér finnst að við eigum að slaka á innflutningshöftum varð- andi margt en ég hugsa líka hvað það er ótrúlega mikil gróska hérna. Eins og dæmið með Of Monsters and Men. Hversu margar hljóm- sveitir frá öðru litlu landi, til dæmis Lúxemborg, eru að meika það í Bandaríkjunum eða hve margar kvikmyndir þaðan ferðast um allan heim? Þetta er magnað.“ Salka: „Ég var spurð af erlend- um gestum á Airwaves af hverju væri svona mikið af íslenskri tón- list og allir í hljómsveitum. Ég held að málið sé að við ritskoðum okkur ekki. Við vitum að hluta til að við séum ekki að fara að vinna sem tónlistarmenn á svona litlum markaði, eða maður byrjar með þá hugsun. Þannig að við gerum það sem okkur langar til, þess vegna er svona mismunandi og til- raunakennd tónlist á Íslandi. Við erum einfaldlega að gera tónlist því okkur finnst það svo gaman en erum ekki að framleiða fyrir vin- sældir. Útlendingar eru hreinlega gapandi yfir flórunni hérna.“ Atli: „Þetta leiðir hugann að Spoti fy. Nú notar fólk löglegan vettvang til að ná sér í tónlist fyrir lítinn pening. Ég held að verkefni tónlistarbransans á næsta ári verði að finna leið til að snúa þessu sér í hag því það er fullt af peningum þarna úti í umferð og áhuginn er til staðar. Í stað þess að leggja árar í bát þarf að finna nýjar leiðir.“ Salka: „Mér finnst samt frábært að fólk sé að hlusta á plötuna okkar á Spotify því við erum með boðskap sem við viljum að berist. Svo höld- um við tónleika og þeir fyllast því fólk er að hlusta og vill koma og sjá okkur, þannig fáum við eitthvað til baka – bara á öðrum vettvangi.“ Atli: „Það sama á við um Net- flix. Framleiðendur sjónvarpsefn- is þurfa að hugsa í takt við tímann. Þeir sem reiða sig á áskriftartekjur sérstaklega.“ Salka: „Mig langar oft að sjá íslenskt sjónvarpsefni en vil kannski ekki borga áskrift. Ég myndi pottþétt kaupa þættina í lausasölu ef það væri í boði. Maður sækir í íslenskt efni.“ Kemst aftur í tísku að drekka Hvað með tískufyrirbæri ársins? Salka: „Skegg og hársnúðar karla.“ Atli: „Hvort tveggja sem ég get ekki. Mér vex ekki almennilegt skegg og er búinn með síðahárs- tímabilið.“ Salka: „Er það eitthvað sem maður gerir bara einu sinni?“ Atli: „Já, þegar maður á gamlar myndir af sér frá þeim tíma. Annað sem er í tísku er edrúmennska. Það er nýi kúrinn, sumir kalla þetta yfirlætislega kúrinn. Einhver hætt- ir að drekka og segir að sér hafi aldrei liðið betur og bendir fólki á að prófa þetta. Spurning hvort næsta ár verði árið sem allir hrynja í það. Einu sinni var nefnilega mjög kúl að vera rosa fullur.“ Salka: „Það gæti reyndar tengst hækkandi aldri, Atli minn.“ Atli: „Já, reyndar. En samt, Mínus og ólifnaður var einu sinni meira í tísku. Nú líður mér aftur sem þessum „eldri“ í viðtalinu.“ Salka: „Allt í lagi. Á næsta ári hættum við að drekka úr krukkum en hættum að hætta að drekka.“ Erla Björg Gunnarsdóttir erlabjorg@frettabladid.is Á RÖKSTÓLUM Ár rassa og samfélagsmiðla Söngkonan Salka Sól Eyfeld sem tengdist ófáum dægurmálafréttum á árinu og ritstjóri Nútímans Atli Fannar Bjarkason fara yfir það minnisstæðasta í dægurmálum á árinu. Stelpurapp, edrúmennska, Beyoncé og hársnúðar koma við sögu. FARIÐ YFIR ÁRIÐ Atli Fannar og Salka Sól fagna aukinni virkni landans á samfélagsmiðlum en eru sammála um að Virkir í athugasemdum sé hópur sem þau eigi erfitt með að skilja. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.