Fréttablaðið - 13.12.2014, Side 62
FÓLK|HELGIN
ATHYGLIS-
VERÐ
STAÐREYND
„Á milli 80 og
90 prósent verk-
efna sem klár-
ast hjá Karolina
Fund er stjórnað af
konum. Þær virð-
ast því betri í hóp-
fjármögnun en
karlmenn. Ástæðu
þess væri að mínu
mati áhugavert að
rannsaka frekar.“
Ingi Rafn Sigurðsson,
framkvæmdastjóri
Karolina Fund.
Melkorka Ólafsdóttir, flautuleik-ari og verkefnastjóri tónlistar í Hörpu, leggur nú lokahönd
á útgáfu sinnar fyrstu sólóplötu. Hún
hefur síðustu vikur safnað fyrir út-
gáfunni á Karolina Fund og í dag vantar
örfá prósentustig upp á að heildartak-
markinu verði náð. Samkvæmt reglum
Karolina Fund þarf að safna allri upp-
hæðinni sem lagt er upp með innan
tiltekins tíma. Annars er ekkert dregið
af þeim sem leggja söfnuninni lið og sá
sem safnar fær ekkert í sinn hlut. „Það
er hluti af spennunni og hvetur fólk til
að taka þátt,“ segir Melkorka.
TILBÚIN TIL DREIFINGAR
Platan var tekin upp í Langholtskirkju
í vor og er tilbúin til dreifingar. „Þetta
eru verk sem ég er búin að vera að
vinna að lengi. Ég lagði upp í ferða-
lag árið 2008 og spilaði fantasíurnar
í helstu kirkjum landsins. Það var
um það leyti sem verið var að byggja
Hörpu. Hugmyndin snerist um að spila
í kirkjum sem hafa þjónað sem tónlist-
arhús landsmanna í gegnum aldirnar,
áður en við fengjum okkar aðaltónlist-
arhús. Tónleikarnir fengu mjög góðar
viðtökur og verkin hafa fylgt mér síðan.
Þegar ég ákvað að snúa mér að verk-
efnastjórn í Hörpu vildi ég gera upp við
þessi verk. Þetta er kannski eins konar
kveðjusöngur fyrir ákveðið tímabil en
framtíðin er auðvitað óráðin,“ segir
Melkorka.
Á VEL VIÐ UM JÓLIN
Þó svo Telemann hafi verið uppi á 18.
öld segir Melkorka tónlistina eiga vel
við í dag. „Sumir halda að tónlist frá
þessum tíma sé mjög formföst og ein-
hliða en því fer fjarri hjá Telemann eins
og nafnið Fantasíur gefur til kynna.
Þær eru tólf talsins og eins fjölbreyttar
og hægt er að hugsa sér. Sumir kafl-
arnir eru mjög innilegir. Aðrir minna
á götudansa. Músíkin er tímalaus og
snertir marga fleti. Mér finnst hún
alveg sér á parti. Hún á líka sérlega
vel við um jólin.“ segir Melkorka sem
undir býr útgáfuhóf í Mengi þriðjudag-
inn 16. desember kl. 17. Þar mun hún
taka vel á móti áhugasömum, bjóða
upp á tóndæmi og annað óvænt.
Utan þess að leggja lokahönd á
plötuútgáfuna eyðir Melkorka helginni
í undirbúning fyrir komu London Phil-
harmonic Orchestra sem leikur í fyrsta
sinn í Hörpu 18. og 19. desember næst-
komandi. „Hún er ein besta hljómsveit
Bretlands og þó víðar væri leitað,“
segir Melkorka. Þar hefur verið leitað
að flautuleikara um nokkurt skeið og
var Melkorka ein fárra flautuleikara í
heiminum sem léku með hljómsveitinni
til reynslu fyrr á árinu. Enn hefur eng-
inn fyrsti flautuleikari verið fastráðinn.
VONGÓÐ UM AÐ TAKMARKIÐ NÁIST
„Annars mun ég auðvitað fylgjast
spennt með söfnuninni,“ segir Mel-
korka, sem er vongóð um að takmarkið
náist. En af hverju valdir þú hópfjár-
mögnun með Karolina Fund? „Hún er
ein af fáum raunhæfum leiðum til að
fjármagna plötuútgáfu, enda orðið
mjög erfitt að fá styrki, þeir fáir og
litlir. Þetta er líka sniðugt fyrirkomulag
því fólk er í raun að kaupa afurðina
fyrirfram og jafnframt að leggja sitt af
mörkum til að láta verkefni verða að
veruleika.“
KONUR BETRI Í HÓPFJÁRMÖGNUN
Karolina Fund var stofnað af þeim Inga
Rafni Sigurðssyni, Jónmundi Gíslasyni
og Arnari Sigurðssyni fyrir tveimur
árum og hefur orðið mikil sprenging
hjá þeim að undanförnu. Síðan er þeg-
ar orðin mikilvægur stólpi í styrkjaum-
hverfi landsins. Nú hafa
90 verkefni ver-
ið fjármögnuð
með hjálp yfir
níu þúsund ein-
staklinga en þeir
hafa heitið hátt
í hálfri milljón
evra, eða 70 millj-
ónum króna, til
þessara verkefna.
„Skilyrði sjóðsins
er að verkefnin sem
safnað er fyrir séu
skapandi og skili ein-
hverri lokaafurð,“ segir
framkvæmdastjórinn Ingi Rafn.
Hann bendir á að verkefnum sem fara
af stað í fjáröflun sé til jafns stjórnað
af körlum og konum. „Á milli 80 og 90
prósent verkefna sem klárast er hins
vegar stjórnað af konum. Þær virðast
því betri í hópfjármögnun. Ástæðu
þess væri að mínu mati áhugavert að
rannsaka frekar.“ ■ vera@365.is
FYLGIST SPENNT
MEÐ SÖFNUNINNI
FYRSTA SÓLÓPLATAN Flautuleikarinn Melkorka Ólafsdóttir leggur um þessar
mundir lokahönd á útgáfu geisladisks með einleiksfantasíum Georgs Philipps
Telemann. Hún hóf söfnun fyrir útgáfu disksins í gegnum hópfjármögnunarsíð-
una Karolina Fund fyrir nokkru og lýkur henni á morgun.
EINS KONAR
KVEÐJUSÖNGUR
Platan er tilbúin til dreif-
ingar. Verkin hafa fylgt
Melkorku lengi. Hún
spilaði þau í kirkjum
víðsvegar um landið árið
2008 og fékk hvarvetna
góðar viðtökur.
VANTAR ÖRFÁ PRÓSENTUSTIG Samkvæmt reglum Karolina Fund þarf að safna fyrir allri upphæðinni innan tiltekins tíma.
fonix.is Hátúni 6a 105 Reykjavík S. 552 4420
Heimilistæki
. . . . . . . . . .