Fréttablaðið - 13.12.2014, Síða 71
| ATVINNA |
Umhyggja • Fagmennska • Öryggi • Framþróun
Laun samkvæmt samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Sótt er um starfið
rafrænt á; www.landspitali.is, undir „laus störf“. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um ráðningu hefur verið tekin. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.
Rekstrarsvið Landspítala auglýsir laust til umsóknar starf rafvirkja
á viðhaldsdeild. Starfshlutfall er 100%.
Húsnæði LSH er um 140 þúsund fermetrar á fjöldamörgum
stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Húsnæðið er mjög fjölbreytt,
allt frá skrifstofuhúsnæði yfir í mjög sérhæfð rými sem hvergi eru
nema á sjúkrastofnunum. Í húsnæðinu er fjöldi tæknikerfa, allt
frá almennum húskerfum yfir í sérhæfð kerfi fyrir sjúkrastofnanir.
Helstu verkefni og ábyrgð
Viðhaldsdeildin sér um viðhald alls húsnæðis Landspítala auk
þess að vinna að margs konar breytingum. Verkefnin eru því
fjölbreytt og krefjandi og oft unnin við aðstæður sem markast
af þeirri þjónustu sem spítalinn veitir.
Hæfnikröfur
» Sveinspróf í rafvirkjun
» Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
» Geta sinnt daglegri stjórn samstarfsmanna í
afmörkuðum verkefnum
» Góð tölvukunnátta æskileg
» Lipurð í mannlegum samskiptum
Nánari upplýsingar
» Umsóknarfrestur er til og með 15. janúar 2015.
» Starfshlutfall er 100%.
» Upplýsingar veitir Jens Hjaltalín Sverrisson, rekstrarstjóri,
jensh@landspitali.is, sími 543 1785.
VIÐHALDSDEILD
Rafvirki
Umhyggja • Fagmennska • Öryggi • Framþróun
Laun samkvæmt samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Sótt er um starfið
rafrænt á; www.landspitali.is, undir „laus störf“. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um ráðningu hefur verið tekin. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.
Laust eru til umsóknar starf skrifstofumanns á Öryggisdeild.
Starfshlutfall er 75%. Ráðið verður í starfið frá febrúar 2015.
Í starfinu felst útgáfa auðkenniskorta, veiting aðgangsheimilda
og umsjón/úthlutun fataskápa í búningsklefum spítalans.
Vinnutími 09:30 -15:30 virka daga.
Leitað er að jákvæðum einstaklingi sem er tilbúinn að takast
á við krefjandi verkefni. Markmiðið er að veita góða og skjóta
þjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
» Útgáfa auðkenniskorta
» Veiting aðgangsheimilda
» Myndatökur fyrir auðkenniskort
» Skráning, úthlutun og umsjón með fataskápum
í búningsklefum.
Hæfnikröfur
» Rík þjónustulund og jákvæðni
» Hæfni í mannlegum samskiptum
» Íslensku- og enskukunnátta
» Tölvukunnátta
Nánari upplýsingar
» Umsóknarfrestur er til og með 12. janúar 2015.
» Starfshlutfall er 75%.
» Upplýsingar veita Viktor Ellertsson, mannauðsráðgjafi,
netfang viktore@landspitali.is, sími 543 1517 og Pálmi
Þór Ævarsson, deildarstjóri, netfang pamiaev@landspitali.is,
sími 543 1806.
Skrifstofumaður í aðgangsstýringu
og úthlutun fataskápa
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.eimskip.is
Starfssvið
• Samskipti og þjónusta við viðskiptavini
• Mannaforráð
• Rekstur
• Önnur tilfallandi störf
Menntunar- og hæfniskröfur
• Lyftararéttindi
• Íslenskukunnátta
• Enskukunnátta nauðsynleg
• Færni í mannlegum samskiptum
• Almenn tölvukunnátta
• Góð þjónustulund og jákvæðni
• Skipulagsfærni og hæfni til að vinna undir álagi
• Nákvæm/sjálfstæð vinnubrögð
• Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
• Reynsla og þekking á sjávarútvegi og
vöruhúsarekstri er kostur
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ólafur
Guðmundsson rekstrarstjóri í síma 825-2166.
Umsjón með ráðningunni hefur Helga Björnsdóttir,
mannauðsdeild Eimskips, í síma 525 7364,
netfang hbjo@eimskip.is.
Við hvetjum áhugasama til að sækja um á heimasíðu félagsins, www.eimskip.is
Tekið er á móti umsóknum til og með 28. desember 2014.
Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál.
þjónustustjóri í frystigeymslu
eimskips í sundahöfn
Öflugur og ábyrgur einstaklingur óskast til framtíðarstarfa í frystigeymslu Eimskips í Sundahöfn.
Frystigeymslan er 3000 tonn og felst starfsemin aðallega í móttöku, geymslu og afgreiðslu á frystum afurðum
til inn- og útflutnings. Helsta ábyrgðarsvið þjónustustjóra er daglegur rekstur og stjórnun frystigeymslunnar.
Fyrir réttan aðila er því í boði fjölbreytt, áhugavert og krefjandi starf sem fylgja margvísleg tækifæri.
LAUGARDAGUR 13. desember 2014 7