Fréttablaðið - 13.12.2014, Side 85

Fréttablaðið - 13.12.2014, Side 85
 | FÓLK | 15 FEMARELLE ER FRÁBÆR LAUSN Loksins er komin á markaðinn náttúruleg lausn fyrir konur á breytingaaldri. Femarelle er gert úr jurtaefnum og rannsóknir sýna að það slær á einkenni tíðahvarfa. Konur finna mikinn mun á sér þegar þær taka inn Femarelle. Bryndís Guðmundsdóttir segist hafa byrjað á breytingaskeiðinu fyrir sjö árum. „Ég hef verið á þremur tegundum af hormónalyfjum, þurfti oft að skipta um tegundir. Ástæðan fyrir því var sú að lyfin hentuðu mér ekki, ég fékk meiri vanlíðan af þeim en ég hafði áður. Ég átti erfitt með svefn, svitnaði mjög mikið og var með mikla skapbresti,“ segir hún. „Ég ákvað að hætta að taka inn horm- ónalyfin þar sem þau voru ekki að virka á mig. Leitaði að upplýsingum og fróðleik á netinu og rakst þá á grein um Femarelle. Ég ákvað að prófa einn pakka því það sakaði ekki að reyna eitthvað annað. Það er gaman frá því að segja að ég fann mjög fljótt mun á mér, ég fór að sofa betur, nú er ég hætt að svitna um nætur, skapið er miklu léttara og ég hef mun meiri orku en áður. Ég get mælt 100 prósent með Femarelle ef konur vilja ná betri líðan á breytingaskeiðinu.“ DÁSAMLEGT UNDRAEFNI „Ég ákvað að prófa Femarelle síðasta vetur eftir að hafa lesið frásögn konu í blaði þar sem hún lýsti ánægju sinni með vöruna,“ segir Soffía Káradóttir sem á þeim tíma var að byrja á breytingaskeið- inu en vildi ekki nota hormóna. „Ég fann fyrir hitakófum, fótaóeirð, skapsveiflum, líkamlegri vanlíðan og vaknaði oft upp á nóttunni.“ Eftir að Soffía hafði tekið Femarelle inn í aðeins tíu daga hurfu öll einkenni breyt- ingaskeiðsins. „Nú fæ ég samfelldan svefn, finn ekki lengur fyrir hitakófum eða fóta- óeirð og líður mun betur á allan hátt og er í góðu jafnvægi.“ Soffía mælir hiklaust með Femarelle við vinkonur sínar. „Ein þeirra hætti á horm- ónum og notar Femarelle í dag. Ég mæli með því að allar konur á breytingaaldr- inum prófi Femarelle og get ekki ímyndað mér hvernig mér liði í dag ef ég hefði ekki kynnst þessu dásamlega undraefni.“ Virkni Femarelle hefur verið staðfest með fjölda rannsókna á undanförnum 13 árum. MJÖG ÁNÆGÐ MEÐ FEMARELLE „Ég frétti af Femarelle hjá systur minni sem hefur notað vöruna með góðum árangri. Ég ákvað að prófa þar sem ég var byrjuð að finna fyrir nokkrum einkennum sem voru lýsandi fyrir breytingaskeiðið en samt er ég bara 42 ára,“ segir Selma Björk Grétarsdóttir. „Ég fann fyrir svefn truflunum, verkjum um líkamann og skap- sveiflum. Það var alveg ótrúlega fljótt sem ég fann góð áhrif af Femarelle, því að eftir aðeins tvo daga var ég farin að sofa betur. Ég er mjög ánægð með áhrifin af Femarelle, því að skapið hefur lagast og verkirn- ir minnkað. Mér líður mun betur og er sáttari með sjálfa mig.“ LOKSINS VERKJALAUS „Mig langar að deila með ykkur reynslu minni af notkun Femarelle,“ segir Eva Ólöf Hjaltadóttir. „Mér hafði ekki liðið nógu vel í svolítinn tíma, ég er á lyfjum við sykursýki og vegna veikinda í skjald- kirtli. Ég hafði þyngst vegna lyfjanna og svo hef ég einnig verið með gigt og haft verki vegna þess. Mér fannst óþægilegt að vera of mikið innan um fólk, var orðin svolítið þunglynd af van- líðan. Mér fannst ekki gott að vera í hávaða og var því mjög mikið að einangrast frá félagslífi. Vegna sykursýkinnar og skjaldkirtils- sjúkdómsins hef ég svitnað mjög mikið þótt ég hafi ekki verið í áreynslu. Það var þannig að ég þurfti að skipta um bol þrisvar á dag. Ég er 71 árs og var ekki sátt við hvernig mér leið, vildi geta tekið meiri þátt í lífinu. Ég las umfjöllun um Femarelle og leist vel á að prófa náttúrulega og horm- ónalausa meðferð, sérstaklega þar sem ég sá að hún gæti linað verki. Ég hef núna notað Femarelle undanfarna mánuði og hef endur heimt mitt fyrra líf. Mér líður svo vel að nú get ég farið daglega út að ganga með hundinn, fer einnig í sund á hverjum degi, sæki félagsvist og fer í bingó vikulega,“ segir Eva. „Mig er hætt að verkja um allan líkam- ann og ég nota Femarelle sem náttúru- lega verkjameðferð því að ef ég er með verk tek ég aukalega af því. Eftir að ég hafði verið á Femarelle í um það bil sex mánuði fann ég að ég var hætt að svitna eins og ég gerði daglega og get núna verið í sama bolnum allan daginn. Mjög mikill léttir fyrir mig. Svo er það besta við þetta að núna segja börnin mín og tengdabörn að ég sé orðin miklu líflegri og hressari. Mér finnst meira gaman að hitta barnabörnin mín því ég get veitt þeim meiri athygli. Ég hef að auki misst 11 kíló án þess að reyna það vegna þess að mér líður betur og ég get hreyft mig óhindrað.“ Bryndís Guðmundsdóttir segist hafa byrjað á breytingaskeiðinu fyrir sjö árum. „Ég hef verið á þremur tegundum af hormónalyfjum, þurfti oft að skipta um tegundir.“ ● Femarelle er fáanlegt í öllum apótekum, heilsuverslunum og heilsuhillum stórmarkaðanna. ● Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á heimasíðu IceCare, www.icecare.is. Eva Ólöf Hjaltadóttir Soffía Káradóttir Selma Björk Grétarsdóttir
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.