Fréttablaðið - 13.12.2014, Side 128
13. desember 2014 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 92
„Tónleikarnir með Stranglers
á Íslandi árið 1978 þjófstörtuðu
pönksenunni hér. Þeir sem hituðu
upp fyrir ykkur voru Halli & Laddi
og síðan einhver íslensk progg-
sveit. Það voru engar nýbylgju-
eða pönksveitir hér,“ sagði bassa-
leikarinn og Utangarðsmaðurinn
Jakob Smári Magnússon í sam-
tali við Bubba Morthens og Hugh
Cornwell, fyrrverandi söngvara
the Stranglers í gær.
Cornwell treður upp á Gaukn-
um í kvöld en Fréttablaðið náði að
smala saman þessum gömlu pönk-
urum í spjall um lífið og tilveruna.
„Þegar ég sá tónleikana með
ykkur árið 1978 fékk ég þessa
mögnuðu tilfinningu og hugsaði:
„Vó! Þeir eru hættulegir, þetta er
alvöru! Það vantaði „attitúdið“ og
hættuna í tónlistarsenuna, þann-
ig að þegar við byrjuðum í Utan-
garðsmönnum vorum við harðir á
þessu. Það var eins og mæður og
feður segðu krökkunum sínum:
„Ekki fara og sjá þessa gaura,“
segir Bubbi fullur nostalgíu.
Cornwell gerði sér ekki grein
fyrir því hversu mikil áhrif hljóm-
sveit hans hafði haft á þróun
íslensku tónlistarsenunnar þar til
nú. „Það var eins og þegar Ramo-
nes komu til Englands,“ segir
Bubbi. „Stranglers höfðu gríðarleg
áhrif á íslensku tónlistarsenuna.
Ef þú pælir í því þá komu Strang-
lers, síðan við og síðan Björk og alls
kyns hlutir út úr þessu. Það var
eins og að kasta steini í vatn og sjá
bylgjurnar. Þið höfðuð meiri áhrif
en þið gætuð ímyndað ykkur.“
En hvernig kom til hugmyndin
um að fara til Íslands á þessum
tíma? „Núna vilja allir koma hing-
að en á þessum tíma var það alls
ekki raunin,“ segir Bubbi.
Cornwell segir það hafa verið
sniðugum umboðsmönnum að
þakka. „Umboðsmennirnir okkar
voru mjög klárir en þarna vorum
við nýbúnir að klára plötuna Black
and White. Þeir stungu upp á því
að fara til Íslands út af plötunni,
sem var svarthvít rétt eins og
Ísland, með snjóinn og myrkrið og
allt það,“ segir Cornwell.
Á þessum tímapunkti í samtal-
inu brýst rokkarinn Smutty Smiff
inn en hann er einmitt að flytja
Cornwell inn. „Ég elska þetta!
Þetta er eins og að sjá aðalsmenn
pönksins samankomna! Það er
fyndið þetta með söguna, hvernig
þú hugsar ekkert um hana á meðan
allt á sér stað. Þegar þú varst að
spila ber að ofan, Bubbi, lítandi
út eins og Iggy Pop, og þegar Joe
Strummer og Sid Vicious voru að
horfa á mig spila – þá hugsuðum
við ekkert um að þetta yrði hluti
af tónlistarsögunni.“
Cornwell segir þá skemmtilega
sögu. „Við vorum að hita upp fyrir
Patti Smith á sínum tíma. Þarna
var Joe Strummer, sem þá var í
hljómsveitinni 101ers. Hann kom
baksviðs til mín eftir tónleikana,
faðmaði mig með tárin í augun-
um og sagði: „Hugh, mig langar
að vera í hljómsveit eins og þú!“
Vikuna eftir það stofnaði hann The
Clash.“
thorduringi@frettabladid.is
Þjófstörtuðu pönk-
senunni á Íslandi
Hugh Cornwell, fyrrverandi söngvari Stranglers, og Utangarðsmennirnir Bubbi
og Jakob Smári tóku spjallið í tilefni af tónleikum Cornwells á Gauknum í kvöld.
PÖNKIÐ LIFIR Bubbi, Cornwell og Jakob, með húðflúr af einkennisdýri Stranglers,
Rattus Norvegicus. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Stranglers höfðu
gríðarleg áhrif á íslensku
tónlistarsenuna. Ef þú
pælir í því þá komu
Stranglers, síðan við og
síðan Björk.
Bubbi Morthens
„Við vorum heima hjá mér eitt kvöldið að leggja
höfuðið í bleyti og það kom upp í umræðuna hvað
maður hefur oft týnt stökum vettlingi,“ segir
Karen Bergljót Knútsdóttir, ein þeirra sem standa
fyrir Alþjóðlegum degi einmana vettlingsins. „Við
ákváðum að gera eitthvað svona samfélagslega
skemmtilegt sem myndi ekki snúast um peninga
eða hagnað, svo að fólk gæti komið saman.“
Aðstandendur dagsins munu koma saman í dag
klukkan 13.00 við gatnamót Skólavörðustígs og
Laugavegar til að para saman eins eða líka vett-
linga. „Hugmyndin er sú að koma með körfu og
við ætlum að bjóða fólki, ef það á staka vettlinga
eins og margir eiga, að koma þá með þessa vett-
linga, setja þá í körfuna og mögulega finna hinn
týnda vettling.“
Karen segir að þó nokkrir séu búnir að melda
sig og að hugmyndin sé að gera þetta árlega. „Við
fengum svo góð viðbrögð en við vorum búin að
ákveða að gera þetta hvort sem við fengjum góð
viðbrögð eða ekki,“ segir Karen og hlær. - þij
Para saman týnda vettlinga
Alþjóðlegur dagur einmana vettlingsins er í dag. Menn geta fundið týndan vettling.
FENGU GÓÐ VIÐBRÖGÐ Karen segir hugmyndina vera að
halda þetta árlega. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Dansparið efnilega Harpa Stein-
grímsdóttir, 15 ára, og Kristinn
Þór Sigurðsson, 14 ára, náðu þeim
árangri um seinustu helgi að ná
fjórða sæti á opnu heimsmeistara-
móti í samkvæmisdönsum í París.
„Þetta er í rauninni ótrúlega
góður árangur því það hefur bara
gerst þrisvar í sögu Íslands í dans-
heiminum að íslenskt danspar
fari í úrslit á heimsmeistaramóti,“
segir Lind Einarsdóttir, móðir
Hörpu.
Harpa og Kristinn keppa í flokki
14-15 ára. „Þetta er mjög sterkur
hópur sem þau kepptu í og 60 pör
hófu keppni. Þarna voru gríðar-
lega sterkir dansarar eins og eitt
par sem vann International-keppn-
ina, sem er ein stærsta danskeppni
heims. Þannig að þetta var rosa-
lega sterk keppni í þeirra aldurs-
hópi,“ segir Lind.
Kristinn og Harpa eru í Dans-
íþróttafélagi Hafnarfjarðar. „Þau
hafa dansað saman í eitt og hálft
ár og síðan þau byrjuðu á því er
búið að ganga alveg ótrúlega vel.
Þau hafa farið mjög langt á erlend-
um mótum,“ segir Lind. - þij
Efnilegt danspar í úrslitin í París
Harpa Steingrímsdóttir og Kristinn Þór Sigurðsson lentu í fj órða sæti um helgina.
HARPA OG KRISTINN Hafa dansað
saman í eitt og hálft ár.
FR
ÉT
TA
BL
AÐ
IÐ
/Ö
RV
AR
M
Ö
LL
ER
leggur af stað
í dag kl. 16.00!
Jólalest Coca-Cola fer í sína
árlegu hringferð laugar-
daginn 13. desember með
tilheyrandi ljósadýrð og
jólatónum. Þetta verður 19.
skiptið sem Jólalestin ekur
um Höfuðborgarsvæðið og
gleður íbúa og vegfarendur.
Fylgstu með ferð
Jólalestarinnar á coke.is
#Jolalestin
C
o
c
a
-C
o
la
a
n
d
t
h
e
C
o
n
to
u
r
B
o
tt
le
a
re
r
e
g
is
te
re
d
T
ra
d
e
m
a
rk
s
o
f
T
h
e
C
o
c
a
-C
o
la
C
o
m
p
a
n
y.