Fréttablaðið - 23.12.2014, Page 6
23. desember 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 6
1. Hvað nær Nornahraun yfi r marga
ferkílómetra?
2. Hvaða matarréttur er vinsælastur
hjá Íslendingum á aðfangadag?
3. Hvað heitir þjálfari norsku Evrópu-
meistaranna í handbolta?
SVÖR:
1. 80. 2. Hamborgarhryggur. 3. Þórir Her-
geirsson.
HJÁLPARSTARF „Það þarf enginn að
vera einn á jólunum, hingað geta
allir komið,“ segir Rannvá Olsen,
forstöðukona Hjálpræðishers-
ins. Líkt og undanfarin ár verð-
ur Hjálpræðisherinn með hátíð-
arkvöldverð á aðfangadagskvöld
fyrir þá sem eiga ekki í önnur hús
að venda eða vilja ekki vera einir.
Fjölmargir hafa skráð sig í kvöld-
verðinn en undanfarin ár hafa
verið um 130-150 manns í kvöld-
verðinum ásamt sjálfboðaliðum.
Sú nýbreytni verður í ár að kvöld-
verðurinn verður haldinn í Tapas-
húsinu en hingað til hefur hann
verið haldinn í húsnæði Hjálpræð-
ishersins. Eigandi staðarins lánaði
Hernum staðinn en hann verður
einnig sjálfboðaliði þar um kvöld-
ið. „Það hafa svo rosalega marg-
ir bæst við hópinn og húsnæð-
ið okkar eiginlega orðið of lítið,“
segir Rannvá og tekur fram að það
hafi því verið kærkomið að fá lán-
aðan stað undir kvöldverðinn.
Hún segist ekki vita nákvæm-
lega hve margir munu vera hjá
þeim í ár en hins vegar hafi met-
fjöldi sjálfboðaliða skráð sig.
Meðal þeirra sem sækja kvöld-
verðinn eru einstæðingar og úti-
gangsfólk. Þar er boðið upp á
jólamat og eftir matinn er farið
í húsnæði Hersins þar sem verð-
ur haldin kvöldvaka. Sungnir
eru jólasöngvar, gengið í kring-
um jólatréð og allir fá gjafir. „Á
kvöldvökunni er boðið upp á heitt
kakó og smákökur. Það er æðisleg
stemming. Mikil eftirvænting og
skemmtilegt andrúmsloft,“ segir
Rannvá.
Í Konukoti, sem er næturat-
hvarf fyrir heimilislausar konur,
hafa undanfarin ár verið 5-6
heimilislausar konur á aðfanga-
dagskvöld. „Við vitum samt aldrei
fyrr en á síðustu stundu hvað þær
verða margar en við erum með
pláss fyrir átta konur þannig við
erum tilbúnar með pakka fyrir
þann fjölda,“ segir Kristín Helga
Guðmundsdóttir, verkefnastjóri
athvarfsins. Kokkur í sjálfboða-
starfi sér um eldamennskuna líkt
og undanfarin tíu ár og konurnar
fá allar gjafir. „Þær fá allar pakka
með nýrri bók, konfekti, snyrti-
vörum og einhverju fatakyns, það
er ekkert afgangs dót heldur pöss-
um við að þetta sé allt nýtt,“ segir
Kristín. Opnunartími athvarfsins
er lengdur yfir hátíðarnar og ekki
lokað yfir daginn líkt og vanalega.
„Flestir frá okkur borða hjá
Hjálpræðishernum,“ segir Tryggvi
Magnússon, umsjónarmaður Gisti-
skýlisins, sem er athvarf fyrir
heimilislausa karla.
Opnunartími er ekki lengdur
yfir jólin líkt og í Konukoti. „Ég vil
samt taka það fram að mér finnst
hafa verið villandi umræða í fjöl-
miðlum undanfarið. Hér er enginn
rekinn út á morgnana, húsið bara
lokar klukkan 10 og þá verða allir
að fara út.“
Hann segir skjólstæðinga Gisti-
skýlisins geta þá farið á Kaffistofu
Samhjálpar sem verður opin yfir
daginn og einnig í Dagsetrið á
Eyjaslóð þar sem opið verður frá
10-16 alla dagana en Gistiskýlið er
opnað klukkan 17 á daginn.
viktoria@frettabladid.is
Það á enginn að þurfa vera
einn á aðfangadagskvöld
Fjölmargir mæta í hátíðarkvöldverð Hjálpræðishersins á aðfangadagskvöld en meirihluti hópsins er einstæð-
ingar og heimilislaust fólk. Í Konukoti verður opnunartími lengdur yfir hátíðarnar en ekki í Gistiskýlinu.
KONUKOT Kristín Helga, verkefnastjóri Konukots, segir allt gert til þess að skapa heimilislega og notalega stemmingu á jól-
unum í Konukoti. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Þær fá allar pakka
með nýrri bók, konfekti,
snyrtivörum og einhverju
fatakyns, það er ekkert
afgangs dót heldur pöss-
um við að þetta sé allt
nýtt.
Kristín Helga Guðmundsdóttir,
verkefnastjóri Konukots.
LÖGREGLUMÁL 21 árs gömul kona
ógnaði starfsfólki Make Up Gall-
ery á Glerártorgi í gær með
hnífi og seildist eftir peningum
í versluninni. Hnífinn hafði hún
tekið ófrjálsri hendi í versluninni
Nettó. Þetta staðfestir Ragnar
Kristjánsson, varðstjóri lögregl-
unnar á Akureyri.
„Konan á við nokkra vanheilsu
að stríða, hún ógnar þarna starfs-
fólki með eggvopni og biður það
um peninga. Verslunarmiðstöðin
var full af fólki á þessum tíma
svo viðbúnaður okkar er mikill
þegar við fáum tilkynninu um
vopnað rán. Sérsveit lögreglunn-
ar er kölluð út sem og sjúkrabíll
til taks. Við erum hæstánægðir
með að enginn slasaðist þarna,“
segir Ragnar.
Starfsmaður verslunarinnar,
Hildur Líf Higgins, náði með
undarverðum hætti að róa kon-
una þannig að hún settist á stól
í versluninni. „Ég sýndi bara
manneskjunni hlýju og kærleika
og við það róaðist hún. Það er oft
þannig að kærleikurinn getur
gert mikið og í þessu tilviki
heppnaðist það.“
Gréta Baldursdóttir verslunar-
stjóri segir viðbrögð starfsmanns-
ins henni til sóma. „Það er alveg
frábært að geta nýtt sér reynslu
og með þessum hætti að sýna
svona fádæma yfirvegun í erfiðum
aðstæðum. Margir einstaklingar
hefðu líklega ekki sýnt svona yfir-
vegun. Ég held að hún megi vera
afar stolt af viðbrögðum sínum.“
- sa
Hildur Líf Higgins, starfsmaður Make Up Gallery á Glerártorgi, náði að róa konu með hníf:
Yfirvegun starfsmanns stöðvaði vopnað rán
MAKE UP GALLERY Starfsmaðurinn
segist aðeins hafa hlustað og sýnt
konunni kærleika og þannig náð að róa
hana niður. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
VIÐSKIPTI Aðföng hafa ákveðið að
taka úr sölu og innkalla kókos-
olíu frá vörumerkinu Himneskt.
Það eru 200 gramma krukkur en
ástæða innköllunarinnar er að í
einni krukku fannst aðskotahlut-
ur. Innköllunin varðar eingöngu
vörur sem eru merktar bestar
fyrir dagsetninguna 31. júlí 2016,
en það er áletrað ofan á krukku-
lokið.
Varan var í sölu í verslunum
Bónuss, Hagkaups, Stórkaupa,
matvöruverslununum KS, 10-11
og Gló Fákafeni. Viðskiptavinum
verslananna sem keypt hafa vör-
una geta skilað henni í verslunina
þar sem hún var keypt gegn
fullri endurgreiðslu. Aðföng biðja
viðskiptavini verslananna sem
kunna að verða fyrir óþægindum
vegna þessa innilega afsökunar.
- sks
Aðskotahlutur fannst:
Innkalla olíu
SAMGÖNGUR Gámaskipið Detti-
foss, sem er í eigu Eimskips,
missti í gær nokkra gáma í sjó-
inn um 160 mílum norðvestan
Færeyja. Þegar Fréttastofa náði
tali af Ólafi William Hand, upp-
lýsingafulltrúi Eimskips, í gær-
kvöldi, hafði hann ekki enn fengið
upplýsingar um það hversu marg-
ir gámar höfðu fallið útbyrðis.
Aftakaveður var þá á svæðinu og
eru menn ekki sendir upp á dekk
í slíkum aðstæðum til að athuga
hvað hafi farið í sjóinn. - bá
Dettifoss lenti í aftakaveðri:
Gámar í sjóinn
DETTIFOSS Skipið lenti í aftakaveðri í
gær og gámar féllu útbyrðis.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VEISTU SVARIÐ?