Fréttablaðið - 23.12.2014, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 23.12.2014, Blaðsíða 33
 | FÓLK | 3 „Ég hafði verið í vandræðum með svefn og slökun í töluverðan tíma, segir Elsa Ás- geirsdóttir. „Ég starfa sem klæðskeri og hönnuður og starfinu fylgir oft mikið álag. Stundum er ég nánast ofvirk og hausinn oft fullur af hugmyndum sem ég þarf að framkvæma,“ segir hún og brosir. „Ég náði alltaf að sofna en náði ekki að sofa alla nóttina, var oft vöknuð um klukk- an fjögur á næturnar og átti erfitt með að sofna aftur. Það sem er líka gott við Mel- issu er að nú heyrir fótapirringur sögunni til, en ég átti það til að vera slæm af fóta- pirringi þegar ég var komin í háttinn.“ Elsa las sér til um Melissa Dream-töfl- urnar eftir að hún sá þær auglýstar og ákvað að prófa. „Mér leist líka vel á þær þar sem þetta er náttúruleg lausn, mér líkar það betur. Ég hef prófað mjög margt til að ná að hvílast og sofna en ekkert annað hefur reynst mér svona vel. Þetta er það eina sem hefur hjálpað mér hingað til! Mér líður svo miklu betur eftir að ég næ fullum svefni, er í betra jafnvægi allan daginn og þá verður allt annað líka í betra jafnvægi. Til dæmis um það þá fer ég einu sinni á ári til læknis í eftirlit og mælingar. Eftir síðustu heimsókn fékk ég bestu nið- urstöður sem ég hef hingað til fengið, það sannaðist hvað svefninn er mikilvægur fyrir heilsuna og alla líðan.“ EKKERT HEFUR REYNST EINS VEL Svefntruflanir geta stuðlað að vanlíðan. Við búum í hröðu og erilsömu samfélagi sem veldur því að svefntruflanir eru gríðarlega algengar. Ef þú færð ekki nægan svefn geturðu fengið bauga undir augun, húðin orðið föl og einnig getur það valdið þyngdaraukningu þar sem þú eykur framleiðslu á hormónum sem kalla fram hung- urtilfinningu. SKAÐLEGT FYRIR LÍKAMANN Svefnleysi veldur því að líkam- inn endurnýjar sig hægar, sem getur veikt ónæmiskerfið. Í raun getur svefnleysi verið mjög skaðlegt fyrir líkamann. Það er ekki óalgengt að vinir og samstarfsmenn hafi áhyggjur af þér. Svefnleysi er svo skaðlegt fyrir fólk að það er viðurkennt sem áhrifarík pyntingaraðferð. Til þess að hjálpa þér við að losna við hvíldar- og svefnlaus- ar nætur ættir þú að prófa Mel- issa Dream-töflurnar. Sítrónu- melis-töflurnar viðhalda góðum og endurnærandi svefni. SOFÐU BETUR MEÐ MELISSA DREAM Í gegnum aldirnar hefur sítrónu melis (lemon balm), Melissa officinalis, verið vin- sæl meðal grasalækna. Þaðan dregur varan nafn sitt, Melissa Dream. Þessar vísindalegu samsettu náttúruvörur eru hannaðar til að aðstoða þig við að sofa betur og vakna endurnærð/ur og innihalda ekki efni sem hafa sljóvgandi áhrif. Sítr ónumelis-taflan inniheldur náttúrulegu amínó- sýruna L-theanine, sem hjálp- ar til við slökun auk alhliða B-vít amína, sem stuðla að eðlilegri taugastarfsemi. Auk þess inniheldur taflan mikið af magnesíumi, sem stuðlar að eðlilegri vöðvastarfsemi og dregur þar með úr óþægindum í fótum og handleggjum og bætir svefn. Í BETRA JAFNVÆGI OG SEFUR VEL ICECARE KYNNIR Melissa Dream-töflurnar fá þig til að slaka á, sofa betur og vakna endurnærð/ur. Þetta er ekki lyf heldur náttúruleg vítamín og jurtir. Sigríður Helgadóttir fór að nota Melissa Dream þegar hún var búin að eiga nokkrar andvöku- nætur vegna fóta óeirðar sem truflaði svefn hennar. „Fóta- óeirðin var mjög óþægileg og hélt fyrir mér vöku en ég er ekki vön að vera andvaka. Ég fór að leita mér ráða, þá sá ég reynslu- sögur í blöðunum um Melissa Dream. Ég fór að lesa mér til um vöruna og ákvað að prófa, því það sakaði ekki að reyna.“ Sigríður tekur tvær töflur klukkutíma fyrir svefn þegar henni finnst hún þurfa á því að halda. „Þá næ ég að sofna fljótlega og svo finn ég ekki fyrir þessum fótapirringi. Það sem mér finnst líka æðislegt við þessar töflur er að þær eru nátt- úrulegar og hafa engin eftirköst þegar maður vaknar. Ég þarf ekki að taka þær á hverju kvöldi en mér finnst ég ná að slaka svo vel á þegar ég tek þær. Ég er mjög ánægð með Mel- issa Dream og ég mæli með því fyrir alla sem eiga erfitt með svefn.“ LAUS VIÐ FÓTAÓEIRÐ FLJÓT AÐ SOFNA Sigríður slakar vel á og sefur betur þegar hún tekur Melissa Dream enda laus við fóta óeirð þegar hún tekur töflurnar. MYND/STEFÁN Unnur Hjartardóttir hefur lengi átt erfitt með svefn og fundist erfitt að slaka á vegna þreytu og verkja. „Eftir að ég byrjaði að taka Melissa Dream fyrir fjórum mánuðum hef ég fundið miklar breytingar til hins betra. Ég tek tvær töflur um það bil klukkutíma fyrir svefn á kvöldin og ég finn að ég slaka betur á og þreytuverkir og fótapirringur hafa minnkað mikið. Ég vakna út- hvíld og mér líður almennt betur í líkamanum eftir að ég byrjaði að taka Melissa™.“ SLAKAR BETUR Á ÚTHVÍLD Unnur Hjartardóttir hefur lengi átt erfitt með svefn en líður mun betur eftir að hún byrjaði að taka Melissa Dream. MYND/VALLI SÖLUSTAÐIR OG UPPLÝSINGAR Melissa Dream er fáanlegt í öllum apótekum, heilsuverslunum og heilsuhillum stórmarkaðanna. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á heimasíðu IceCare, www.icecare.is.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.