Fréttablaðið - 23.12.2014, Blaðsíða 33
| FÓLK | 3
„Ég hafði verið í vandræðum með svefn
og slökun í töluverðan tíma, segir Elsa Ás-
geirsdóttir. „Ég starfa sem klæðskeri og
hönnuður og starfinu fylgir oft mikið álag.
Stundum er ég nánast ofvirk og hausinn
oft fullur af hugmyndum sem ég þarf að
framkvæma,“ segir hún og brosir.
„Ég náði alltaf að sofna en náði ekki að
sofa alla nóttina, var oft vöknuð um klukk-
an fjögur á næturnar og átti erfitt með að
sofna aftur. Það sem er líka gott við Mel-
issu er að nú heyrir fótapirringur sögunni
til, en ég átti það til að vera slæm af fóta-
pirringi þegar ég var komin í háttinn.“
Elsa las sér til um Melissa Dream-töfl-
urnar eftir að hún sá þær auglýstar og
ákvað að prófa. „Mér leist líka vel á þær
þar sem þetta er náttúruleg lausn, mér
líkar það betur. Ég hef prófað mjög margt
til að ná að hvílast og sofna en ekkert
annað hefur reynst mér svona vel. Þetta
er það eina sem hefur hjálpað mér hingað
til!
Mér líður svo miklu betur eftir að ég
næ fullum svefni, er í betra jafnvægi allan
daginn og þá verður allt annað líka í betra
jafnvægi. Til dæmis um það þá fer ég einu
sinni á ári til læknis í eftirlit og mælingar.
Eftir síðustu heimsókn fékk ég bestu nið-
urstöður sem ég hef hingað til fengið, það
sannaðist hvað svefninn er mikilvægur
fyrir heilsuna og alla líðan.“
EKKERT HEFUR REYNST EINS VEL
Svefntruflanir geta stuðlað að vanlíðan. Við búum í hröðu og erilsömu samfélagi sem veldur því að svefntruflanir eru gríðarlega algengar. Ef
þú færð ekki nægan svefn geturðu fengið bauga undir
augun, húðin orðið föl og einnig getur það valdið
þyngdaraukningu þar sem þú eykur framleiðslu á
hormónum sem kalla fram hung-
urtilfinningu.
SKAÐLEGT FYRIR LÍKAMANN
Svefnleysi veldur því að líkam-
inn endurnýjar sig hægar, sem
getur veikt ónæmiskerfið. Í
raun getur svefnleysi verið
mjög skaðlegt fyrir líkamann.
Það er ekki óalgengt að vinir og
samstarfsmenn hafi áhyggjur af
þér. Svefnleysi er svo skaðlegt
fyrir fólk að það er viðurkennt
sem áhrifarík pyntingaraðferð.
Til þess að hjálpa þér við að
losna við hvíldar- og svefnlaus-
ar nætur ættir þú að prófa Mel-
issa Dream-töflurnar. Sítrónu-
melis-töflurnar viðhalda góðum
og endurnærandi svefni.
SOFÐU BETUR
MEÐ MELISSA DREAM
Í gegnum aldirnar hefur
sítrónu melis (lemon balm),
Melissa officinalis, verið vin-
sæl meðal grasalækna. Þaðan
dregur varan nafn sitt, Melissa
Dream. Þessar vísindalegu
samsettu náttúruvörur eru
hannaðar til að aðstoða þig
við að sofa betur og vakna
endurnærð/ur og innihalda
ekki efni sem hafa sljóvgandi
áhrif. Sítr ónumelis-taflan
inniheldur náttúrulegu amínó-
sýruna L-theanine, sem hjálp-
ar til við slökun auk alhliða
B-vít amína, sem stuðla að eðlilegri taugastarfsemi.
Auk þess inniheldur taflan mikið af magnesíumi,
sem stuðlar að eðlilegri vöðvastarfsemi og dregur
þar með úr óþægindum í fótum og handleggjum
og bætir svefn.
Í BETRA JAFNVÆGI
OG SEFUR VEL
ICECARE KYNNIR Melissa Dream-töflurnar fá þig til að slaka á, sofa betur og
vakna endurnærð/ur. Þetta er ekki lyf heldur náttúruleg vítamín og jurtir.
Sigríður Helgadóttir fór að nota
Melissa Dream þegar hún var
búin að eiga nokkrar andvöku-
nætur vegna fóta óeirðar sem
truflaði svefn hennar. „Fóta-
óeirðin var mjög óþægileg og
hélt fyrir mér vöku en ég er ekki
vön að vera andvaka. Ég fór að
leita mér ráða, þá sá ég reynslu-
sögur í blöðunum um Melissa
Dream. Ég fór að lesa mér til um
vöruna og ákvað að prófa, því
það sakaði ekki að reyna.“
Sigríður tekur tvær töflur
klukkutíma fyrir svefn þegar
henni finnst hún þurfa á því
að halda. „Þá næ ég að sofna
fljótlega og svo finn ég ekki
fyrir þessum fótapirringi. Það
sem mér finnst líka æðislegt við
þessar töflur er að þær eru nátt-
úrulegar og hafa engin eftirköst
þegar maður vaknar. Ég þarf ekki
að taka þær á hverju kvöldi en
mér finnst ég ná að slaka svo vel
á þegar ég tek þær.
Ég er mjög ánægð með Mel-
issa Dream og ég mæli með því
fyrir alla sem eiga erfitt með
svefn.“
LAUS VIÐ FÓTAÓEIRÐ
FLJÓT AÐ SOFNA Sigríður slakar vel á og sefur betur þegar hún tekur Melissa Dream
enda laus við fóta óeirð þegar hún tekur töflurnar. MYND/STEFÁN
Unnur Hjartardóttir hefur lengi átt
erfitt með svefn og fundist erfitt
að slaka á vegna þreytu og verkja.
„Eftir að ég byrjaði að taka Melissa
Dream fyrir fjórum mánuðum hef
ég fundið miklar breytingar til hins
betra. Ég tek tvær töflur um það
bil klukkutíma fyrir svefn á kvöldin
og ég finn að ég slaka betur á og
þreytuverkir og fótapirringur
hafa minnkað mikið. Ég vakna út-
hvíld og mér líður almennt betur
í líkamanum eftir að ég byrjaði að
taka Melissa™.“
SLAKAR BETUR Á
ÚTHVÍLD Unnur Hjartardóttir hefur lengi átt erfitt með svefn en líður mun betur eftir
að hún byrjaði að taka Melissa Dream. MYND/VALLI
SÖLUSTAÐIR OG UPPLÝSINGAR
Melissa Dream er fáanlegt í öllum apótekum, heilsuverslunum og heilsuhillum stórmarkaðanna.
Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á heimasíðu IceCare, www.icecare.is.