Fréttablaðið - 23.12.2014, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 23.12.2014, Blaðsíða 10
23. desember 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 10 VIÐSKIPTI Jólatréssalan hefur geng- ið vel fyrir þessi jólin og er langt gengið á lagerinn víða. Heiða Ósk Gísladóttir hefur staðið vaktina í Jólatréssölunni Landakoti. Heiða Ósk segir að flestar stærðir séu uppseldar. Aðspurð segir hún að fólk hafi verið fyrr á ferðinni í ár að kaupa jólatré en í fyrra. Það hafi verið mikið að gera í fyrra. „Mér finnst fólk líka vera að kaupa stærri tré núna,“ segir Heiða Ósk. Kristinn Einarsson í Húsasmiðj- unni tekur undir með Heiðu Ósk og segir hann söluna hafa gengið mjög vel. Hann vill þó ekki segja hversu mörg tré hann hefur selt. „Við erum með svipað magn og undanfarin ár,“ segir hann. Kristinn segir fólk fyrr á ferðinni í ár að kaupa tré en oft áður. „Og það er líka fyrr að skreyta. Þetta sjáum við í sölu á jólatrésfótum og skrauti. En hérna áður fyrr skreyttu allir á Þorláksmessu,“ segir Kristinn. Hann telur að þessi breyting sé til- komin vegna erlendra áhrifa. „Og sérstaklega frá Ameríku. Þar er fólk að skreyta jafnvel bara í upphafi aðventu. Svo kannski finnst fólki bara gott að vera tímanlega í því. Jólatré er náttúrlega gríðarmik- ið skraut og það er fyrirferðarmikið í stofunni. Fólkið vill bara fá jóla- stemninguna fyrr,“ segir Kristinn. Hann telur að álíka mikið hafi selst af gervitrjám í ár og í fyrra. Normannsþinurinn sé alltaf vinsæl- asta lifandi jólatréð. Kristinn tekur einnig undir með Heiðu að fólk kaupi stærri jólatré nú en oft áður. „Stærri jólatré eru að seljast meira en þau gerðu áður fyrr,“ segir hann. jonhakon@fréttabladid.is Íslendingar setja tré fyrr upp nú en áður Sala á jólatrjám hefur gengið vel. Söluaðilar segja að fólk kaupi trén fyrr nú en oft áður og kaupi stærri tré. Normannsþinur er vinsælasta tegundin nú sem fyrr. NÓG AÐ GERA Hagnaður af sölu trjánna sem Heiða Ósk selur, rennur að hluta til í sjóði Styrktarfélags krabbameins- sjúkra barna. Hún segir að margir komi til að styrkja mál- staðinn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Vegna ítrekaðra fyrirspurna er þetta skráða vörumerki og þessi lén auglýst til sölu: www.reykjavikwhalewatching.is og www.reykjavikwhalewatching.com Tilboðsfrestur til og með 10. jan 2015 Tilboð sendist á stefan@lth.is Áskilinn réttur til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Frekari upplýsingar veitir: Stefán Bj. Gunnlaugsson, hrl. LL.M. Lögmenn Thorsplani - Fjarðargötu 11 - 220 Hafnarfi rði - Sími 555 3033 - lth@lth.is PI PA R\ TB W A • SÍ A • 13 36 39 Fallegar jólagjafir - okkar hönnun og smíði jonogoskar.is Sími 5524910 Laugavegi 61 Kringlan Smáralind STJÓRNMÁL Fylgi allra flokka meirihlutans í borginni utan Sam- fylkingar hefur aukist ef marka má Þjóðarpúls Gallup. Af þeim flokkum sem sæti eiga í borgarstjórn styrkja Píratar sig mest, eða um tæp fimm prósentu- stig. Þannig mælist flokkurinn með 10,6 prósenta fylgi. Halldór Auðar Svansson, fulltrúi Pírata í borgarstjórn, segir þetta vissu- lega ánægjulega niðurstöðu. „Þetta sýnir að það virðist fara okkur vel að axla ábyrgð í borgar- stjórn og taka þátt í meirihluta- samstarfi.“ Píratinn segir það greinilegt að flokkurinn eigi sterk- an og stóran stuðningshóp en við- urkennir að hann hafi ekki skilað sér nógu vel á kjörstað í vor. Nafni hans Halldórsson, oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn, telur að fylgi Sjálfstæðisflokks muni aukast á kjörtímabilinu en samkvæmt könnuninni stendur flokkurinn nánast í stað og er með 25,3 prósenta fylgi. „Ég reikna með því að það eigi eftir að komast betur á framfæri því sem við höfum verið að leggja áherslu á og gera athugasemdir við.“ Björt framtíð myndi ná inn einum manni til viðbótar í borgar- stjórn ef gengið yrði til kosninga nú en fylgi flokksins mælist nú 17,7 prósent. Þetta er aukning um tvö prósent en Vinstri hreyfingin – grænt framboð eykur fylgi sitt til jafns við Bjarta framtíð. Fram- sókn og flugvallarvinir myndu hins vegar missa annan fulltrúa sinna í borgarstjórn. Flokkurinn mælist með 5,6 prósenta fylgi sem er fimm prósentustiga lækkun frá kosningum. Samfylkingin mælist með minna fylgi en í kosningum, eða 28,9 prósent miðað við 31,9 pró- sent í vor. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segist ánægður með niðurstöðurnar. „Samstarfsflokkar okkar eru allir að bæta við sig. Það er mjög ánægjulegt. Við mælumst aðeins lægri en í kosningum en erum áfram stærsti flokkurinn og megum vel við una. Meirihlutinn í heildina er tæp sjötíu prósent,“ segir borgarstjórinn. „Allavega virðist þessi könnun benda til þess að við séum að gera eitthvað rétt.“ - nej Fjögurra flokka meirihlutinn í borginni sterkari: Framsókn tapar manni í borgarstjórn MEIRIHLUTINN STYRKIST Ákvörðun um að mynda fjögurra flokka meirihluta var umdeild á sínum tíma en fylgi meirihlutans hefur aukist frá kosningum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM DÓMSMÁL Hæstiréttur dæmdi Jónínu Benediktsdóttur í gær til þrjátíu daga fangelsisvistar vegna umferðarlagabrots og var hún að auki svipt ökuréttindum ævilangt. Hún neitaði sök í málinu en dóm- urinn sagði verulegt ósamræmi í framburði hennar hjá lögreglu og fyrir dómi. Jónína var ákærð fyrir umferð- arlagabrot með því að hafa ekið bifreið undir áhrifum áfengis og ekið utan í járngrind. Atvikið átti sér stað 18. júní 2013 og áfengis- magn í blóði hennar mældist 1,5 prómill. Jónína kvaðst hafa neytt áfengisins eftir að hún lét af akstri bílsins. Hæstiréttur taldi fullyrðingar Jónínu ekki samræmast niðurstöð- um mælinga. Vitni sem hringdi í lögreglu sagðist hafa séð hana skipta um sæti við vin sinn eftir að hún keyrði á. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að ákærða hefði með brotinu framið ölvunaraksturs- brot öðru sinni. - nej Missir ökuréttindi ævilangt vegna ölvunaraksturs: Jónína Ben í fangelsi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.