Fréttablaðið - 23.12.2014, Page 42
23. desember 2014 ÞRIÐJUDAGUR
| MENNING | 38
Úthlutað hefur verið úr Styrkt-
arsjóði Guðmundu Andrésdóttur
í Listasafni Íslands og að þessu
sinni hlutu myndlistarmennirnir
Anna Hrund Másdóttir, Dagrún
Aðalsteinsdóttir og Pétur Már
Gunnarsson styrki úr sjóðnum að
upphæð kr. 600.000 krónur hvert.
Samkvæmt skipulagsskrá Styrkt-
arsjóðs Guðmundu Andrésdóttur
er markmið hans „að styrkja og
hvetja unga og efnilega myndlist-
armenn til náms“, en Guðmunda
gaf fyrirmæli um stofnun sjóðs-
ins í erfðaskrá sinni og er hann í
vörslu Listasafns Íslands.
Guðmunda Andrésdóttir (1922-
2002) tilheyrir þeirri kynslóð
listamanna sem á sjötta áratug
síðustu aldar ruddi abstraktlist-
inni braut í íslenskri listasögu.
Það var innan þessa tjáningar-
forms sem Guðmundu tókst að
þróa mjög svo persónulega list-
sköpun, sem gerir framlag henn-
ar til samtímalistar á Íslandi
sterkt og áhrifamikið. Sam-
kvæmt erfðaskrá sinni arfleiddi
hún Listasafn Íslands, Lista-
safn Háskóla Íslands og Lista-
safn Reykjavíkur að listaverkum
sínum. - fsb
Styrktarsjóður Guð-
mundu styrkir þrjú
Þrír ungir myndlistarmenn hafa hlotið styrkveitingu
úr Styrktarsjóði Guðmundu Andrésdóttur.
BÆKUR ★★★★ ★
Alzheimer tilbrigðin
Hjörtur Marteinsson
TUNGLIÐ
Hjörtur Marteinsson hlaut Bók-
menntaverðlaun Tómasar Guð-
mundssonar 2014 fyrir ljóða-
bókina Alzheimer tilbrigðin og
lesandi sem sökkvir sér ofan
í ljóðin er ekki lengi að skilja
hvers vegna. Hér er sjaldgæf-
lega vel ort um erfiðan efnivið.
Ljóðmælandinn fylgist með afa
sínum hverfa inn í myrkur Alz-
heimer-sjúkdómsins um leið og
hann rifjar upp í örstuttum mynd-
um þeirra fyrri samskipti og líf
afans sem hann sjálfur er búinn
að gleyma. Hver myndin eftir
aðra raðast upp og treginn eykst
á meðan þokan í huga afans þétt-
ist jafnt og þétt.
Einhverjum kann að þykja
þessi lýsing á ljóðunum benda
til þess að hér sé róið á mið til-
finningasemi og væmni en ekkert
gæti verið fjær sanni. Treginn er
undirliggjandi í gegnum bókina
en tilfinningunum er haldið vand-
lega í skefjum, sterkar myndirnar
koma hughrifunum fullkomlega
til skila:
Gítarinn hans sýnist
uppstoppaður
þar sem hann hallar sér að veggnum.
Síðast þegar hann lék á hann
blánaði himinninn yfir elliheimilinu
af fjarlægð
sem hljómar
þegar dimmir á haustin. (bls. 21)
Eins og sést af þessu ljóði, sem
nefnist Hljómurinn, hefur Hjört-
ur bæði myndmál og hrynjandi
vel á valdi sínu og það vekur í
raun furðu að svo gott ljóðskáld
skuli einungis hafa sent frá sér
tvær ljóðabækur á undan þessari,
Ljóshvolfin árið 1996 og Myrkur-
bil árið 1999. Hann kann þetta út
í æsar og næmt auga myndlist-
armannsins skilar óvenju sterku
myndmáli sem dregur upp lit-
brigði lands og lífsbaráttu eldri
kynslóða í örfáum en firnasterk-
um dráttum. Ljóðmálið er agað
og fágað, hvorki of né van, og les-
andi grípur andann á lofti yfir
faglegri beitingu tungumálsins:
Síðustu bréfin
Myrkrið yfir mér hefur þést
eftir að ég henti bréfunum frá afa í
hraunið.
Næst þegar ég heimsæki hann
er svartur éljabakki yfir gamla bænum
hans.
Um leið og ég stíg út úr bílnum
taka élin að falla.
Kornin eru í sömu stærð
og punktarnir úr síðustu
bréfum mínum til afa. (bls. 19)
Ljóðin eru hvorki margmál né
flúruð, hér fer skáld sem gerir
sér grein fyrir því að „orð eru
dýr“ og spreðar þeim ekki að
óþörfu.
En þótt bókin sé ekki nema
31 síða er hér sögð stór og mikil
saga, saga sem snertir lesand-
ann djúpt, fær hann til að hugsa
og á köflum kyngja kekkinum í
hálsinum. Hjörtur Marteinsson
hefur stimplað sig rækilega inn
sem ljóðskáld með Alzheimer
tilbrigðunum og óskandi að við
þurfum ekki að bíða önnur fimm-
tán ár eftir næstu ljóðabók frá
honum.
Friðrika Benónýsdóttir
NIÐURSTAÐA: Sterk ljóð með trega-
fullri sögu, sem sögð er af næmi og
listfengi.
Hvorki hér né nú
STYRKVEITING F.v. Anna Líndal, fyrir hönd sjóðsins, Gunnar Helgi Magnússon,
fyrir hönd Péturs Más Gunnarssonar, Halldór Björn Runólfsson safnstjóri, Dagrún
Aðalsteinsdóttir og Anna Hrund Másdóttir. MYND: LISTASAFN ÍSLANDS
HJÖRTUR MARTEINSSON „Hér fer skáld sem gerir sér grein fyrir því að „orð eru
dýr“ og spreðar þeim ekki að óþörfu.“ FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Á djasskvöldi Kex Hostels
á Þorláksmessu kemur fram
kvartett saxófón- og klarinett-
leikarans Hauks Gröndal. Ásgeir
J. Ásgeirsson leikur á gítar,
Þorgrímur Jónsson á kontra-
bassa og Erik Qvick á tromm-
ur. Þeir mun flytja fjölbreytt-
an jóladjass í bland við annað
efni.
Tónlistin hefst kl 20.30 og
stendur í u.þ.b. tvær klukku-
stundir með hléi. Aðgangur
ókeypis. Kex Hostel er á Skúla-
götu 28.
Djasskvöld á
Þorláksmessu